Bankablaðið - 01.12.1938, Page 47
BANKABLAÐIÐ
119
Ym islegt
Þórarinn Benedikz bankaritari í Út-
vegsbanka íslands h.f. lét af störfum í
bankanum 30. nóvember síðastliðinn.
Frá þeim tíma er hann ráðinn aðal-
bókari hjá Shell á íslandi h.f.
Þórarinn Benedikz kom i Útvegs-
bankann 1. desember 1934. Starfs-
tími hans í bankanum varð því aðeins
rjett fjögur ár.
Þórarinn tók mikinn þátt í félags-
málum bankamanna og var í stjórn
F.S.Ú.Í. undanfarin þrjú ár, fyrst
gjaldkeri og síðan ritari. Hann var
góður félagi og naut þar trausts sem
og á öðrum sviðum.
Nú hefir hann kosið að hafa vista-
skipti. Við því verður ekkert sagt.
Það er eftirsjá að slíkum starfs-
manni og Þórarni. Eftirsjá fyrir bank-
ann, viðskiptamenn hans og ekki
sízt munu starfsfélagar hans í Útvegs-
bankanum sakna hans.
Þórarni Benedikz fylgja beztu óskir
Bankablaðsins og félaga um hamingju
og gengi í hinu nýhafna starfi og þakk-
ir fyrir gott samstarf á undanförnum
árum.
Bjarni Jónsson fyrv. bankastjóri og
Jón Maríasson aðalbókari voru meðal
þeirra, er sæmdir voru riddarakrossi
Fálkaorðunnar 1. des. síðastliðinn.
Sveini Kaaber hefir verið veittur
styrkur úr Námssjóði Landsbankans
og mun hann fara utan í næsta mán-
uði.
Stefán Stefánsson
varð 60 ára 5. þ. m.
Aðalfundur F.S.L.Í. var haldinn 18.
október síðastliðinn. — 1 stjórn voru
kosnir: formaður Þorgils Ingvarsson,
ritari Gunnl. G. Björnson, og gjald-
keri Einar Þorfinnsson.
Forsíöumyndirnav eru teknar af Páli
Jónssyni.
Hjúskapar-»obligo«
Svanbjörn Frímannsson og Hólm-
fríður Andrésdóttir.
Karl Johnson og Sigríður Kristins-
dóttir.
Bankablaðið óskar til hamingju.