Bankablaðið - 01.12.1938, Side 50

Bankablaðið - 01.12.1938, Side 50
122 BANKABLAÐID Lög Sambands íslenzkra ban kamanna Löyin, ein.s og gengið var frá þeim á síðasta aðalfundi, eru svohl.jóð- andi: 1. gr. Sambandið heitir: Samband íslenzkra bankamanna. Bankamenn, í lögum Jjessum, teljast allir starfsmenn banka og spari- sjóða hér á landi. Stofnendur sambandsins: Félag starfsmanna Landsbanka íslands og félag starfsmanna Útvegsbanka íslands h/f. 2. gr. Tilgangur sambandsins er: a. Að vinna að skipulagðri félagsstarfsemi íslenzkra bankamanna, b. að gæta hagsmuna bankamanna í hvívetna og hafa á hendi forustu fyrir þeim út á við í þeim málum, er snerta starf og k.jör sambands- félaga almennt. 3. gr. Rétt til þátttöku í sambandinu hafa félög bankamanna, er hlýta vilja iögum sambandsins, og á sama hátt einstakir bankamenn, þar sem ekki eru starfandi félög. Hver einstakur meðlimur starfsmannafélags telst sambandsfélagi með fullum réttindum og skyldum. Ekki getur þó nema eitt félag við hver.ja bankastofnun orðið meðlimur sambandsins, enda sé meir en helmingur starfsmanna við stofnunina með- iimir þess. Enníremur geta verið styrktarfélagar, félagar, sem áður hafa verið meðlimir sambandsins, en eru ekki lengur starfandi bankamenn, án þess að hafa verið vikið úr stöðu sinni. Styrktarfélagar hafa hvorki atkvæð- isrétt á fundum né eru kjörgengir í st.jórn sambandsins. 4. gr. Nú vill félag ganga í sambandið, og skal þ'á st.jórn þess senda sam- bandinu skriflega beiðni um það, ásamt útdrætti úr fundargerð, er sýni, að lögmætur fundur í félaginu hafi samþykkt að ganga í sambandið, skrá yfir alla meðlimi sína og lög félagsins. Vilji starfsmaður í banka eða sparisjóði, sem ekkert starfsmannafélag er við, ganga í sambandið, skal hann senda skriflega beiðni um það til sambandsins. Stjórn sambandsins úrskurðar um beiðnina og tilkynnir úrslit innan tveggja vikna. 5. gr. Aðalfundur skal haldinn í októbermánuði ár hvert. Aðalfund skal boða með skriflegri tilkynningu til félagsstjórna og einstakra meðlima, sem ekki eru félagsbundnir eða með 'auglýsingu í Bankablaðinu. Félags- stjórnin sjái um nánari birtingu fundarboðsins. í fundarboði skal greina fundarefni. Önnur málefni má taka til umræðu á fundinum, ef % fundar- manna samþykkja það, enda sé helmirigur félagsmanna, búsettra í Reykja- vík, á fundi. Þeir sambandsfélagar, sem búsettir eru utan Reykjavíkur eða fjarver- andi eru úr bænum, geta gefið öðrum félagsmönnum umboð til þess að mæta fyrir sína hönd á aðalfundum og greiða atkvæði í sínti rmfni. Aðal fundur er lögmætur, ef hanr: hefir verið löglega boðaður eftir úrskurði íundarst jóra. 6. gr. Stjórn sambandsins, sem kosin er til eins árs í senn á aðalfundi,

x

Bankablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.