Bankablaðið - 01.04.1953, Page 11
11. árg. 1. tölub. 1953.
ALDARFJÓRÐUNQSSTARF
Félftgs stoi'fsmonno Lnndsbnnkn íslnnds
fli Idarfjórðungur er ekki langur tími, þó
er það svo, að á ekki lengri tíma hafa
margir samferðamenn horfið sjónum okk-
ar. Félagsheildir sem myndaðar voru af
mörgum ungum og framsæknum félögum
hafa í þeim skilningi glatað uppruna sín-
um. Yngri menn og konur hafa tekið við.
Þeir, sem voru ungir fyrir aldarfjórðungi
og voru framarlega í sveit hinna ýmsu
félaga eru nú „reyndir og ráðsettir“ borg-
arar. Þannig hefir einnig farið fyrir þeim
félögum, sem hafa fjórðung aldar að baki:
Þau eru reynd og ráðsett og hafa skapað
sér virðulegan sess í hópi félagssamtaka í
bænum.
Félag starfsmanna Landsbankans er eitt
í þeirra hópi, sem minnast aldarfjórðungs-
starfs. Þegar litið er yfir hóp stofnenda
félagsins þá eru þeir sorglega fáir sem prýða
hópinn í dag. Okkar félag er engin undan-
tekning frá reglunni, að tímans tönn hefir
verið hér að verki.
Á stofnfundi félagsins sem haldinn var,
miðvikudaginn 7. marz 1928, voru stofn-
endur taldir tuttugu og sjö. Af þeim eru
nú sjö starfandi í bankanum. Má sjá að
aldarfjórðungurinn er sorglega langur tími
í starfssögu félagsins. Fyrir þá sem ekki
hafa fylgst með félaginu frá stofnun, verð-
ur gerð tilraun til að rifja upp nokkra
þætti úr félagsstarfi liðinna ára. Svo að
þeir sem í félaginu eru í dag, og aðrir
bankamenn, geti gert sér í hugarlund
bjartsýni stofnenda fyrsta starfandi banka-
BANKABLAÐIÐ 1