Bankablaðið - 01.04.1953, Síða 28
AÐALFUNBUK
Starfsmannafélags Utvegsbankans
Þriðjudaginn 20. janúar síðastliðinn var
aðalfundur Starfsmannafélags Útvegs-
bankans haldinn í hátíðasal bankans.
Formaður félagsins, Adolf Björnsson setti
fundinn og skipaði fundarstjóra Gunnl.
G. Björnson, en ritara fundarins Sig. Gutt-
ormsson.
Fundarstjóri lýsti fundinn lögmætan og
löglega til hans boðað.
Flutti þá formaður skýrslu stjórnar um
starfsemi félagsins á liðnu starfsári, og skal
hún hér rakin í höfuðatriðum.
Fráfarandi stjórn tók við störfum þann
5. marz 1952 og var skipuð Adolf Björns-
syni formanni, Guðm. Einarssyni varafor-
manni, Sig. Guttormssyni ritara, Ingibjörgu
H. Briem gjaldkera og Hjálmari Bjarna-
syni meðstjórnanda.
Á félagsárinu höfðu 5 félagsmenn liætt
störfum en 7 nýir ráðist í þjónustu bank-
ans. Félagatala er nú 80 í aðalbanka og 21 í
útibúunum eða samtals 101 félagi í Starfs-
mannafélagi Útvegsbankans.
Á starfsárinu hefir stjórn félagsins unnið
að staðfestingu á endurbótum á Eftirlauna-
sjóði starfsmanna, en því máli væri eigi enn
komið örugglega og heilu í höfn þótt all-
mikið hafi áunnist.
Launamál starfsmanna hafa verið tekin
til nýrra athugunar og umbætur fengist á
starfskjörum félagsmanna á Seyðisfirði.
Starfsfólk bankans hefir á undanförnum
árum og af fullri ástæðu talið skattþunga
þann er á herðar þess er lagður of þungan
og seigdrepandi og einkum erfitt að ynna
þá greiðslu af hendi í einu lagi á síðasta
hluta ársins. Var af starfsfólkinu talið eðli-
legra og heppilegra að deila greiðslunum
mánaðarlega á allt árið. Tókust um það
samningar við bankastjórn og aðalgjald-
húsbændur að bæta kjör og kaup fólksins
einmitt vegna þess að félagið átti hlut að
máli, en ef hver einstaklingur hefði paufað
út af fyrir sig, með kröfur sínar. Félags-
skapur er nauðsynlegur og oft sterkari en
rök og sanngirni einstaklingsins.
Á þessum tímamótum má Félag starfs-
manna Landsbankans, held ég, vel við una
þann árangur er náðst hefur á liðnum ár-
um. Margir dugnaðarmenn hafa verið í
stjórn þess, og nú er vaxin upp vel menntuð
og prýðileg bankamanna stétt. Félagið er
orðið stórt og sterkt, og aðrir bankar hafa
einnig fyrir löngu stofnað sín félög. Og svo
allir eitt sambandsfélag bankamanna, hér
á landi. Mörgu góðu og þarflegu í menn-
ingar og menntamálum bankamanna hefur
verið á komið, svo sem utanförum banka-
manna til fræðslu og frama. Auðvitað með
aðstoð bankaráða og bankastjóra bank-
anna, sem margir eru fyrrverandi starfs-
menn Félags starfsmanna Landsbanka ís-
lands.
Um leið og ég þakka mínum góðu, gömlu
félögum og starfssystkinum velvild og vin-
semd, óska ég félaginu heilla og hamingju
og Landsbanka íslands velmegunar og bless-
unar á komandi tímum.
Þorsteinn Jónsson.
18 BAN KABLAÐIÐ