Bankablaðið - 01.12.1978, Síða 25
stækkandi, og félögum fjölg-
andi, er mikill hugur í fólki
að kaupa jafnvel annan sum-
arbústað.
Að höfðu samráði við
starfsfólk, var opnunartíma
bankans breytt þann 1. okt.
sl. Var það gert til samræmis
við breyttan opnunartíma
annarra einkabanka.
Árshátíð F.S.A. var haldin
4. nóv. sl. í hliðarsal Hótel
Sögu. Reyndist það hin ágæt-
asta veisla og var gleði mikil.
Með bankastjórann sem for-
söngvara í fjörugum söngv-
um, náðist snemma mjög góð-
ur andi, sem gerði hátíðina
eftirminnilega og sérstaklega
skemmtilega.
Frá Starfsmannafélagi
Reiknistofu bankanna
Aðalfundur Starfsmannafé-
lags Reiknistofu bankanna
var haldinn þann 16. mars
1978. Hefðbundin aðalfundar-
störf fóru fram með venjuleg-
um hætti.
Björn Gunnarsson sem ver-
ið hefur formaður félagsins
undanfarin tvö ár baðst ein-
dregið undan endurkosningu.
Nöfn núverandi stjórnar-
manna voru birt í síðasta
bankablaði.
Kosning í nefndir fór sem
hér segir:
Kjararáð:
Gísli Jafetsson,
Ólöf Þráinsdóttir.
Skemmtinefnd:
Ingibjörg Tómasdóttir,
Pálmi Bjarnason.
íþróttanefnd:
Guðbrandur K. Jónsson,
Magnús Dan Bárðarson.
Orlofsheimilanefnd:
Gísli Jafetsson,
Rolf Hansen.
Mikill uppgangur var í fé-
lagslífi starfsmanna Reikni-
stofunnar á árinu, enda
starfsmenn stofnunarinnar
ungir að árum.
Á vegum skemmtinefndar
hafa verið haldnar nokkrar
skemmtanir. Ber þar hæst árs-
hátíð félagsins er haldin var í
febr. og haustfagnaður sem
haldinn var í nóvember. Auk
þess hefur skemmtinefnd
gengist fyrir tveimur mynda-
kvöldum þar sem starfsmenn
hafa sýnt myndir úr ferðalög-
um sínum. Hafa verið sýndar
myndir frá Kína, Tyrklandi,
Krít og fleiri stöðum. Auk of-
angreindra liða eru á dagskrá
skemmtinefndar leikhúsferðir
og spilakvöld.
í apríl var haldið hið árlega
hraðskákmót S.R.B. þar sem
keppt er um titilinn hrað-
skákmeistari S.R.B. Þátttaka
í mótinu var góð eða um
helmingur starfsmanna. Eftir
harða keppni stóð Ólöf Þrá-
insdóttir uppi sem sigurvegari
mótsins. Sigraði hún alla and-
stæðinga sína nema einn,
Níels Skjaldarson, en hann
lenti í öðru sæti.
íþróttanefndin gengst fyrir
vikulegum íþróttaæfingum í
félagsheimili KR. íþróttaflokk-
BANKABLAÐIÐ 19