Bankablaðið - 01.12.1979, Síða 43
Þórður B. Sigurðsson, lorstöflumaður Reiknistofu bankanna:
80 afgreiðslustaðir njóta
þjónustu RB
í upphafi erindis síns fjallaði Þórður B.
Sigurðsson uin vélakost bankanna á árunum
upp úr lokum síðari heimsstyrjaldar, þegar
hann hóf störf í banka. A hverju vinnuborði
var {}á Victor samlagningarvél með 100 takka
borði og sveil á hliðinni til þess að draga inn-
stimplaða tölu inn í reikniverkið. Að vísu var
ein slík vél rafknúin í Búnaðarbankanum þar
sem Þórður starfaði og auk þess tvær 10 takka
rafknúnar Remington-vélar. Meginvinnan um
hver áramót á þeim dögum var samlestur á
strimlum til leiðréttingar á upptökuvillum.
Þessar vélar lögðu við og drógu frá, en við
vaxtareikning allan voru notaðir svonefndir
„rokkar“, handsnúnir.
A 5. áratugnum tóku vélknúnar samlagn-
ingar- og margföldunarvélar að leysa hand-
knúnu vélarnar af hólmi, og þar með staðnaði
tækniþróun í bönkum hérlendis í um það bil
20 ár. Vélum Ijölgaði að vísu með vaxandi
verkelnum og teknar voru í notkun bókhalds-
vélar, NCR, Kienzle og Olivetti til að bóka í
sparisjóðsbækur og á spjöld, en að meginuppi-
stöðu voru þær vélar byggðar á sömu tækni og
vélknúnu samlagningarvélarnar. Þessar vélar
eru enn í dag í notkun.
Arið 1964 varð vendipunktur í tækniþróun
íslenskra banka. Þá tók Verslunarbanki Islands
h.f. IBM-rafreikni á leigu að hálfu á móti Eim-
skipafélagi Islands h.f. Þessi rafreiknir var af
gerðinni IBM 360/20, tegund 4 með tveimur
seguldiskum, vél til lestrar, röðunar og götunar
spjalda og jjrentara, sem skrilaði 350 línur á
mínútu.
Þremur árum síðar fékk Landsbanki íslands
rafreikni af sömu gerð, en tegund 5 og Iðnaðar-
Þórður B. Sigurðsson, forstöðumaður RB.
banki íslands h.f. fékk IBM System 3 árið
1972.
Vélakostur Landsbankans og Iðnaðarbank-
ans er ennþá í notkun að mestu óbreyttur, en
Verslunarbankinn skipti um rafreikni á þessu
ári og helur nú vél af gerðinni Digital PDF
11/34.
Hinir bankarnir fimm hafa ekki leigt eða
keypt rafreikni, heldur tóku þeir í byrjun þessa
áratugar að kaupa rafreikniþjónustu hjá öðr-
um. Utvegsbankinn hjá Iðnaðarbanka og Bún-
aðarbankinn hjá IBM, en Samvinnubankinn
og síðar Alþýðubankinn hjá SÍS. Og enn má
bæta við Sparisjóði Reykjavíkur og nágxennis,
sem fékk rafreikniþjónustu hjá Sláturfélagi
Suðurlands.
í byrjun árs 1972 var ákvörðun tekin um
stofnun Reiknistofu bankanna og undirbún-
ingur hafinn. Fyrsti starfsmannahópurinn réð-
BANKABLAÐIÐ 27