Bankablaðið - 01.12.1979, Qupperneq 58
stjórninni að einbeita störfum sínum að jwí
að leysa vandamálið með launþegafjármagnið
fyrir hönd allra félagsmanna á næsta stjórnar-
tímabili.
A árinu 1978 skipaði sambandsstjórnin sér-
stakanefnd til Jæss að vinna að málinu. Nefnd-
in hefur lagt til tvíjrætta lausn, sem hefur að
geyma að hluta til sjóðamyndun á grundvelli
greiddrar kaupgjaldsupphæðar, og sem nær til
starfsgreinarinnar allrar, og að hluta ágóða-
kerfi, sem veitir starfsfólkinu í hverju fyrirtæki
fyrir sig rétt til hluta af ágóðanum. Nefndin
leggur áherslu á gildi ágóðakerfisins. Það |)ýðir
aukin áhrif starfsfólksins á einstök fyrirtæki og
vekur áhuga starfsfólksins í ríkara mæli fyrir
fyrirtækinu og gengi þess sem slíku. Þetta
myndi hafa í för með sér, að Jrað fyrirkomulag,
sem nú er við lýði innan Handelsbanken og
S-E-banken getur virkað áfram.
Þrátt fyrir að Jrátttakendur væru mismun-
andi langt á veg komnir í Jressu máli, þá var
ráðstefnan í Vedbæk vettvangur mikilvægra
reynsluskipta. Það var einnig tilgangur þessar-
arar ráðstefnu. Nú heldur umræðan á Norð-
urlöndum áfram. Á seinni hluta ársins 1980
mun NBU standa fyrir ráðstefnu um þessi mál.
Ef til vill verður málið þá Jrað vel á veg komið
að j:>að gefi tilefni til aukinna aðgerða laun-
þegasamtakanna.
Jan-Erik Lidström.
Formenn norrœnu bankamannasambandanna, ásamt framkvanndastjóra NBU. Frá vinstri: Árni Sveinsson, formaöur
SÍB, Jan-Erili Lidström, framkveemdastjóri NBU, Birte Brandt, formaöur DBL, og forseti NBU, Fritz P. Johansen,
formaÖur NBF, Gustaf Setterberg, formaöur SBmf. Pauli Salmio, formaöur PTH.
42 BANKABLAÐIÐ