Jazzblaðið - 01.06.1951, Page 7
Eftirmdður Charlie Christian lokáins kominn:
TAL FARLOW
Of oft hafa ágæt-
ir hljóðfæraleikarar
leikið jazz, án þess
að verða neitt þekkt-
ir, nema þeim mönn-
um, sem leikið hafa
með þeim. — Síðan,
eftir að hafa verið á hátindi getu sinn-
ar — og eftir að hafa lagt sitt stærsta
framlag til jazzins — verða þeir skyndi-
lega þekktir alþýðunni.
Slíks eru mörg dæmi.
Louis Armstrong varð ekki frægur
fyrr en viðburðaríkasta tímabil jazz-
ferils hans var liðið. Ekki var tekið við
Charlie Parker fyrr en albúm hans, þar
sem hann leikur með aðstoð strengja-
hljóðfæra, kom út, en það var nokkrum
árum eftir að hinar ágætu plötur hans:
Koko, Relaxin’ at Camarillo, Don’t blame
me og ýmsar fleiri slíkar höfðu verið
gefnar út.
Lester Young er að líkindum þekktari
nú en nokkru sinni fyrr; ekki fyrir það,
sem hann leggur jazzinum til, heldur
vegna þess, að heill hópur tenórleikara
hefur notfært sér það, sem hann gerði
á sínum beztu árum milli 1930—40, og
í dag leika þeir útfærslu á stíl hans.
Mörg fleiri slík tilfelli eru handbær.
En við skulum vona, að slíkt hendi
ekki Tal Farlow.
Vegna þess að ef það kemur fyrir,
förum við á mis við að heyi'a í bezta
og hugmyndaauðugasta guitarleikara
Bandaríkjanna.
Farlow leikur með tríói Red Norvo.
Ef þið hafið aðeins heyrt fyrstu plötur
þeirra, þá skuluð þið ekki trúa því, sem
þið heyrið þar. Upptakan var gerð í
flaustri og þess vegna mjög mis-
heppnuð.
En þið þurfið ekki að hafa orð okk-
ar einungis fyrir þessu. Fjöldi fólks
víðsvegar um landið hefur hlustað á
Tal með Norvo og dáist það að tón
hans, tækni, hinum eftirtektaverðu sól-
óum og hinu ósjálfráða vali á hinum
heppilegustu og fyllstu hljómum, þegar
hann leikur með öðrum einleikurum. —
Manni er nær að halda, að þetta sé sú
leið, sem Charlie Christian hefði valið,
væri hann á lífi.
Hinn grannvaxni og fátalaði Tal Far-
low fæddist fyrir 29 árum í Greensboro,
Norður-Carolina. Hann tók að leika á
guitai', einvörðungu vegna þess að það
hljóðfæri var til á heimilinu. Hann
hefur aldrei notið neinnar kennslu. í
raun og veru varð hann' ekki atvinnu-
hljóðfæraleikari fyrr en 22 ára gamall.
Hann var skiltamálari að atvinnu.
En árið 1942 eftir að hafa leikið með
nokkrum danshljómsveitum í Greens-
boro um helgar, ákvað hann að fara til
Framh. á bls. 9
JatMaJiJ 7
/