Jazzblaðið - 01.06.1951, Side 11
Margar góðar sólóar gefur að heyra hjá
þeim, en eru þær bara ekki eins ef maður
kemur aftur um næstu helgi?
Dægurlög leika þeir vel, en eru með
þau of fá. Betur mætti vanda til út-
setninga þeirra. Vel útsett dægurlög eru
miklu skemmtilegri músík en illa leik-
inn jazz, og hafa margar hljómsveitirn-
ar hér einmitt flotið á því, að þær vanda
sig við dægurlögin. Einnig vantar nokk-
uð á, að þeir séu með ný lög, eitt og eitt
eru þeir með, en það eru stöðugt að
koma ný lög. Þau sem voru vinsælust í
síðasta mánuði eru ef til vill gleymd í
þessum. Það verður að fylgjast með
tímanum.
Að endingu nokkur heilræði til hljóm-
sveitarinnar. Ef vera mætti að þó ekki
nema eitt þeirra yrði tekið til greina, þá
er tilgangi þessarar greinar náð. Fleiri
og nýrri dægurlög, betur útsett en þau,
sem fyrir eru. Leggja meiri rækt við
hinu fáu jazzlög, sem leikin eru. Bragi
getur varla orðið betri harmonikuleik-
ari. Sennilega finnst ekki sá hljóðfæra-
leikari liér á landi, sem eru honum
fremri, en margir eru þeir, sem leika
betri jazz en hann. Ekkert mælir samt
á móti því, að Bragi geti ekki orðið
fyrsta flokks jazzleikari, ef hann kærir
sig um. Hánn hefur tækni á hljóðfæri
sitt. Hefur næman smekk fyrir jazz-
músík, og með því að framfylgja betur
þessu hvorutveggju á ekkert að þurfa
að standa í vegi fyrir honum, þ. e. a. s.
ef hann er þá ekki áhugalaus fyrir
þessu, og lítum vér til himins i bæn um
að svo sé eigi.
Það, sem sagt hefur verið um jazzinn
og Braga á einnig, nærri því allt við
um Guðmund. Hann hefur góða tilfinn-
ingu fyrir jazz, en sólóuppbyggingar
hans eru of gamlar í hettunni. Gaman
væri, ef Guðmundur legði meiri rækt
við jazzfiðluleikinn. Hann hefur þegar
sýnt, að þar er hann enginn skynskipt-
ingur, en hann vantar herzlumuninn.
Guðjón er duglegur píanóleikari. —
Með iðni og ástundun hefur honum tek-
izt að ná góðum nótnalestri, sem aðrir
píanóleikarar hér hafa til skamms tíma
ekki talið mikils virði. Guðjón er aftur
á móti ekki’ stórkostlegur jazzpíanóleik-
ari. Eins og Guðmund skortir hann
betri hugmyndir í sólóum. Honum hefur
mikið farið fram í tækni og sem jazz-
píanóleikari er hann í stöðugri framför,
það skal viðurkennt. Guðjón Pálsson frá
í fyrra var ekki hálfur maður á við Guð-
jón Pálsson nú.
Pétur er efnilegur bassaleikari, spil-
ar nokkuð hreint en ekki nógu ákveðið.
„Ásláttur“ hans mætti vera sneggri.
Þorsteinn er ágætur trommuleikari.
Leikur léttan en ákveðinn rhythma.
Ekki leikur hann samt nógu „varier-
andi“ með burstunum. Það er ótrúlegt,
live mikið er hægt að gera í hægum lög-
um með burstum.
Oddur.
MÚSÍKÞÆTTIR 1 ERLENDUM
ÚTVARSSTÖÐVUM
Nokkrar breytingar viO listann yfir þœtti í júni,
sem birtist i síðasta hefti.
Sunnud. Hljómsveit kl. 13,15 (var áður kl.
13,40). Mánud. Vinsæl lög kl. 18,30, verður ekki
í júnl. Þriöjud. Nýjar plötur kl. 21,15 (var
áður kl. 22). Miövikud. Jazzhljómsveit kl. 23,15
verður ekki í júní. Föstud. Jazzplötur kl. 20,15
(var áður kl. 21,15). Laugard. kl. 20,15 kemur
nýr þáttur; „Make believe ballroom" og verður
fram til 15. sept. Kl.' 23,15 kemur jazzhljóm-
sveit (var áður jazzplötur). Annnað í listanum,
sem birtist I síðasta blaði helzt óbreytt. —
The Voice of America, í júní; Mánud. 17,15
Here are the answers. Þriöjud. kl. 15,45 Jam-
session, kl. 17,15 Make believe bailroom. —
Föstud. kl. 16,45 Jam-session. — Laugard. kl.
17,15 Your hit parade.
11