Musica - 01.03.1949, Qupperneq 19
venjulegast með því, aS meistarinn rífur í hár sér í
örvæntingu, ef hann fær ekki bæn sína uppfyllta.
Eitt sinn stjórnaði Toscanini hljómsveit í litlum
ítölskum bæ, og var hljómsveitin heldur léleg, klari-
nettistanum varð á að taka öfuga nótu, enn Toscanini
sló af.
„Enn þetta voru mistök, meistari" sagði hinn mis-
heppnaði klarinettleikari kjökrandi.
„Mistök“ hvæsti Toscanini „hljómsveitin er ekkart
annað enn mistök“. það eru ekki aðeins hljóðfæraleik-
ararnir sem óttast hann, heldur einnig stjórnendur
þeirra félaga sem hafa Toscanini í þjónustu sinni.
Toscanini hefir verið lengi í þjónustu NBC útvarpsins
í New York og lék þar á ákveðnum tímum, enn í
eitt sinn, ákvað stjórn útvarpsins að breyta útsending-
artímum Toscaninis, enn þar sem enginn í stjórn-
inni þorði að ræða um þetta við Toscanini fengu
þeir ungan starfsmann til að fara til meistarans með
skilaboðinn, og þeir fullyrða, að aldrei hafi nokkur
maður komið eins fljótt út frá meistaranum, í fylgd
með ýmsum lauslegum munum sem meistarinn gat
valdið, og það þarf ekki að taka fram, að útsendinga-
tímar Toscaninis urðu óbreyttir.
Þrátt fyrir þessa „voða“ lýsingu á meistaranum er
hann virtur og elskaður að hljóðfæraáeikurunum,
því að leggi hljóðfæraleikari sig fram, á hann von á
uppörfandi augnaráði meistarans fullt þakklætis, og
til þess að fá slíka uppörfun leggja tónlistarmennirnir
sig alla fram.
Toscanini fæddist árið 1867 í hinum litla ítalska
bæ Parma, sem liggur í héraðinu Emilia.
Til gamans má nefna að í þessu héraði er fæðingar-
bær Verdi, Busetto og Bologna ein af mestu tón-
listarbæjum Italíu, þar sem m. a. Mozart og Rossini
hafa stundað nám.
Faðir Toscanini hafðj verið hermaður í liði Gari-
baldi og móðir hans var af bændaættum, og ekki er
vitað til að neinna tónlistargáfna hafi orðið vart í
ættinni.
A Ítalíu og sérstaklega í Parma er tónlistin sjálf-
sagður hlutur, og er Toscanini var 9 ára gamall, var
hann settur í tónlistarskóla Parma, þar sem hann
stundaði celloleik hjá Pr. Carini og tónfræði hjá
Giusto Dacci, og árið 1885 tók hann próf með hæztu
einkun úr skólanum. Hin ungi Toscanini hafði þó
ekki háar hugmyndir um sjálfan sig, og honum tókst
brátt að komast í leikhúshljómsveit Claudio Rossis
og á 19 ára afmælisdegi sínum kom hann til Rio de
Janeiro með hljómsveitinni. Eitt kvöld átti að upp-
færa „Aída” eftir Verdi, og var hvert einasta sæti
uppselt, enn þá varð hljómsveitarstjórinn skyndilega
lasinn, og um tima leit út fyrir að fresta yrði upp-
færslunni, enn þá bentu hljómsveitarmeðlimirnir á
Toscanini, sem hafði vakið á sér athygli fyrir miklar
tónlistargáfur, og fékk stjórn hljómsveitarinnar hann
til að taka að sér stjórnina.
Toscanini samþykkti það, og virðuglegur og rólegur
gekk hann upp að hljómsveitarstjórapallinum, lokaði
„partitúrnum“ og stjórnaði þannig söngleiknum öll-
um án þess að nokkuð óhapp kæmi fyrir.
Þannig atvikaðist það, að er Toscanini nokkru síðar
snéri aftur til Italíu var hann orðinn þekktur hljóm-
sveitarstjóri.
Hann lagði brátt alla Italíu fyrir fætur sér, og
1898 var hann ráðinn við Scala söngleikjahúsið í Míl-
ano og stjórnaði því ásamt hinum fræga forstjóra
þess Gatti-Casazza.
Eftir að hafa starfað við Scala í 10 ár fór Toscanini
með Gatti-Casazza til Bandaríkjanna, þar sem
Toscanini tók við stjórn hljómsveitar hússins, enn
Gatti-Casazza við söngleikjahúsinu.
Amerísku tónlistarmennirnir höfðu lítið álit á þess-
um litla ítala með svarta yfirvaraskeggið, enn brátt
kom annað hljóð í strokkinn er Toscanini, þegar á
Wladimir Horowitch, tengdasonur Toscaninis, Wanda kpna
hans og dóttir þeirra á heimili þeirra í Neu' Yorþ.
MUSICA 19