Musica - 01.03.1949, Blaðsíða 27
Kaupmannahöfn.
Það er von á óvenjulega mörgum listamönnum til
Danmerkur þetta tónlistatímabil og margir hafa þegar
gist landið.
I janúar héldu hljómleika m. a. rússneski píanóleik-
arinn Nikolai Orloff, söngvararnir Axel Schiötz, Sig-
urd Hjörling og heitmey hans Edith Oldrup.
I febrúar verða í Danmörku þessir listamenn: píanó-
leikarinn Pnina Salzmann frá Palestínu, sænski píanó-
leikarinn Hans Leygraf og norðmaðurinn Robert
Riefling, auk þessara listamanna koma svo með vor
inu, Edwin Fisher, Ellabella Davis, Adolf Buch,
Doris Doree,Solomon, Ida Haendel, Andor Földes
Doi is Dorec.
og svo sjálfur Benjamino Gigli, auk fjölda danskra
listamanna, meira að segja er ein íslenzk listakona á
þessum langa' lista heimsfrægra listamanna, enn það
er Elsa Sigfús.
Þýz\aland.
Eigandi hins þekkta þýzka orgelfyrtækis Walcker
& Co., í Ludwigsburg dó fyrir skömmu 79 ára að aldri.
Fiðluleikarinn Georg Kulenkampff dó þann 4. okt.
1948 í Schaffhausen eftir fárra daga veikindi. Hann
var 50 að aldri er hann lést.
Tónlistarlíf Þýzkalands er mikið að rétta við eftir
stríðið, enda leggja þýzk stjórnarvöld jafn í vestur- sem
austur-Þýzka'landi mikla áherzlu á að endurbyggja
menningarlíf landsins, sérstaklega tónmenninguna,
væri betra að fleirri lönd létu þessar framkvæmdir
þjóðverja verða sér til fyrirmyndar.
Wien.
Ríkissöngleikjahúsið í Wien mun byrja tónlistar-
tímabilið með verkum eftir tvo unga og tiltölulega
óþekkta höfunda.
Verkin eru „Palestrina" eftir Hans Pfitzner og
„Tarassenko“ eftir Franz Salmhofer.
Rússland.
Sjostakovitsch og fl. rússnesk tónskáld hafa fengið
áminningu frá tónskáldaráði Sovétríkjanna, vegna m.
a. slælegrar þáttöku þeirra í störfum félagsins.
MUSICA 27