Musica - 01.03.1949, Blaðsíða 21

Musica - 01.03.1949, Blaðsíða 21
í Odda. Helgi var vel menntaður maður og lék vel á harmóníum. Eg man jafn vel eftir þessum at- burði, sem hefði hann skeð í gær, ég var að leika mér, með öðrum börnum, 'þegar ég heyrði yndislega hljóma, ég skyldi ekki í fyrstu hvað þetta var, enn mér var þá sagt að þetta væri Helgi bóndi að leika á harmóníum. Ég fékk að fara inn í stofu til Helga, enn hann spurði mig hvort mér þætti gaman að leik hans, ég hélt ná það, og þarna lék hann fyrir mig hvert lagið af öðru, og ég varð æ, hrifnari. Eftir þetta gat ég ekki hugsað um annað enn orgel- ið, ég hafði allt fyrir orgel hvort sem ég var að leik eða vinnu, og að lokum kom að því, að ég varð að ségja húsbónda mínum frá löngun minni, og bað ég 'hann um hálfsmánaðar frí til að læra á orgel, enn einn vinnumannanna hafði lofað að sjá mér fyrir fæði og húsnæði. Veitti húsbóndinn mér fúslega faraleyfi og lærði ég svo orgelleik hjá Einari Brynjólfssyni frá Þjótanda í hálfan mánuð og gefur að skilja, að ég lærði ekki mikið meira. enn nóturnar, og þar sem ég hafði ekkert hljóðfæri heima tapaði ég niður mestu af því sem ég hafði lært. Enn 4—5 árum síðar réðist ég í að taka víxil og kaupa mér gamalt kirkjuorgel, og eftir það fór mér að þoka áfram, sérstaklega breyttist hagur minn er ég flutti til foreldra minna aftur 1914, þá gat ég æft mig þegar ég vildi, og varð mikið til sjálfs míns ráð- andi“. „Hvenær lékstu í fyrsta sinni við messu?“. Við skulum sjá, jú! það var árið 1911, enn þá lék ég í forföllum organista kirkjunnar, enn það var síðasta messan við þá kirkju, því hún var ri'fin nokkru síðar. Arið 1914 varð ég orgelieikari við Olafsvallarkirkju og var þar í rúmt ár“. „H ve hátt var kaupið þá?“. „25 krónur á ári og þótti allt of mikið, 1917 fór ég svo til Reykjavikur og komst í tíma til Páls Isólfssonar, og kenndi hann mér í einn vetur. Mér fannst Páll leggja sig allan fram við að kenna mér, og á ég ihonum mikið að þakka fyrir það. Er ég ætlaði að greiða fyrir kennsluna var ekki við það komandi. Þetta er ekki í einasta skipti er Páll hefir komið svona fram við fátæka pilta er voru að afla sér menntunar. Ég minnist þess, að eitt sinni var ég heima hjá Páli, er unglingspiltur er hafði lært hjá honum um veturinn kom, og vildi greiða fyrir kennsluna, Páll hélt nú ekki „hafðu það fyrir nesti, góði“ sagði hann hlægjandi. Skömmu eftir að ég fór í tíma til Páls, komst ég að sem orgelleikari við Sjómannastofuna, og var þar í 2—3 ár, og kom upp allgóðum söngflokk. Þá varð ég fyrir því láni að kynnast Sigfúsi Einarssyni og fékk ég hann til að kenna mér á pípuorgel. Eftir að ég hafði verið hjá honum í einn mánuð varð ég aðstoðarmaður hans og það starf hafði ég í 14 ár (Sigfús var orgelleikari við Dómkirkjuna). Eftir að Sigfús féll frá, varð ég aðstoðarmaður Páls og hefi ég gegnt því starfi síðan. Sigfús reyndist mér sem bezti faðir, og var mér afar góður, og samstarfið við Pál hefir verið mjög gott. Auk starfs míns við dómkirkjuna, hef.i ég verið orgelleikari við Fríkirkjuna í Hafnarfirði í 8 ár og nú síðast orgelleikari við Laugarneskirkjuna frá því að hún var stofnuð. Annars hefi ég leikið í um 40 kirkjum við eina eða fleirri athafnir frá því að ég byrjaði að leika á orgel“. „Hvaða álit hefir þú á starfi söngmálastjóra þjóð- kirkjunnar?" „Hann hefir unnið geysimikið starf, enn ég álít að fyrst hafi átt að þjálfa orgelleikarana og taka svo kórana fyrir“. „Hvernig eru kjör orgelleikara nú?“. „Sæmileg í Reykjavík, enn með öllu óviðunandi úti á landi, ég held, að sveitaorgelleikari fái 100—200 krónur í árslaun og þurfa þeir flestir að borga með sér við starfið, er það auðvita með öllu óviðunnandi. Launakjör orgelleikara, sérstaklega úti á landi, þarf að endurskoða liið allra fyrsta, þau eru safnaðarstjórn- unum til stór skammar". „Þú hefur samið eithvað er það ekki?“ „Jú, eithvað lítilsháttar, tvö lög hafa komið út eftir mig á prenti „Sjá himinn opnast hlið“ og „Munaðar- leysinginn,, enn auk þess á ég um 20 lög í handriti". „Hefur þú áhuga á nútímatónlist?“ „Sumt af nútímatónverkunum finnst mér falleg, enn sumt fer fyrir ofan garð og neðan hjá mér, mín uppáhaldstónskáld eru Bach og Hándel, og ég hefi mezta ánægju af píanó og orgeltónlist“. „Er von á 2. hefti samhljóma á næstunni?“ „Ef ég vinn stóra vinninginn í happdrættinu ætla ég að leggja í að gefa út annað hefti“, segir Kristján hlæjandi, „nú sem stendur á ég ekki næga peninga til að gefa með því“. T. A. MUSICA 21

x

Musica

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Musica
https://timarit.is/publication/725

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.