Musica - 01.03.1949, Side 22
PERSÓNUR:
Daland, norskur skipstjóri,
bassi.
Senta,
dóttir hans,
sópran.
SÖNGLEIKIR V.:
Hollendingurinn fljúgandi
eftir Richard Wagner
Erik,
veiðimaður,
tenór.
Mary,
fóstra Sentu,
alt.
Stýrimaður
á skipi Dalands,
tenór.
Hollendingurinn fljúgandi,
baritón.
Söngleikur í 3 þáttum. Textinn er eftir tónskáldið. Fyrsta uppfærzla í Dresden
árið 1843.
Textinn byggist á sögu Heine „Die memoren des Herrn Schnabelewopski" sem
Wagner las í Riga árið 1838 Er Wagner þurfti að fara hina hættulegu sjóferð
frá Riga til London árið eftir og lenti í fárviðri og skipið varð að leita skjóls
í fjörðum Noregs, myndaðist sagan í huga hans.
Hollendingurinn fljtigandi var upprunalega munnmælasaga er gekk meðal sjó-
manna urn heim allan, og hafa margir rithöfundar t. d. Marryat samið
skáldsögur um kynjaskipið og skipstjóra þess.
Wagner sem var hljómsveitarstjÓri í Dresden stjórnaði sjálfur uppfærslu verksins,
enn það naut litilla vinsælda fyrst til að byrja með, enn þessi söngleikur er
merkilegur að því leyti, að hin nýja stefna Wagners kemur fyrst fram í þessum
söngleik, hann skarar langt fram úr söngleikjum samtíðarinnar bæði vegna
textans og einnig fyrir það hve náið tónlistin fylgir textanum.
Leikurinn gerist á strönd Noregs.
1. þáttur.
Skip Dalands hefir orðið að flýja undan stormi inn
á fjörð skammt frá heimili Dalands.
Þegar skipinu hefir verið fest, fara ailir að sofa,
enn stýrimaðurinn er einn á verði, og syngur til að
halda sér vakandi enn fellur þó brátt í mók.
Þá kemur skip Hollendingsins fljúgandi fram við
sjóndeildarhring og siglir hratt inn fjörðinn, þar sem
akerum er kastað við hlið noska skipsins.
A meðan hin óhugnanlega skipshöfn dregur hljóð-
lega saman hin blóðrauðu segl, fer Hollendingurinn
á land.
Yfir hinum óhamingjusama manni hvílir álaga-
dómur, vegna þess, að hann hafði eitt sinn ætlað
að ógna himninum, og var þessvegna dæmdur til að
sigla um á höfunum til dómsdags, enn 7. hvert ár
mátti hann fara á land, og ef hann gæti unnið ást
einhveriar konu, og hún verið honum trú til dauðans,
var hann laus við álagadóminn, enn sviki hún hann,
varð hann aftur að fara út á hafið, friðlaus og
fordæmdur.
Daland vaknar nú, vekur stýrimanninn, og fer
á land til að heilsa upp á hina ókunnu menn.
Hollendingurinn segist koma langt að, biður Dal- úr 1. þxtti.
22 MUSICA