Musica - 01.03.1949, Side 28
Prokofiejj.
Þeir listamenn er sérstaklega hafa fengið ákúrur
eru Sjostakovitisch, Chatja'turian og Prokofjeff.
I skýrslu fél'agsins 'segir m. a. „ . . . eru kyrrir í
Moskva og öðrum stórbæjum, enn fara ekki í áróðurs-
ferðir um námu- og iðnaðarhéruðin“. Auk þess eru
tónskáldin sökuð um óþjóðlega stefnu í tónsmíðum
sínum.
— Walter Giesekin, hinum fræga þýzka píanóleik-
ara, hefir verið vísað úr landi í Bandaríkjunum, og lítur
út fyrir að stjórnarvöldin þar hafi vísað honum úr
landi, eftir að skríll hafði gert aðsúg að honum.
Er leitt að vita, að slíkur listamaður sé látinn gjalda
þess, þótt hann hafi leikið fyrir nazista, og má öllum
vera ljóst, að stjórnmál og list er tvennt óskylt, ann-
að fullt klækja og spiHingar, hitt gjöf guðs til handa
þjáðu mannkyni.
Það ætti að hafa hendur í hári þeirra er æstu skríl-
inn upp í það ódæði er hann framdi gagnvart lista-
manninum, sem nú snýr til baka, til ættjarðar sinnar
smánaður og hæddur.
Bandaríkjn.
N. Y. Herald Tribune hefir birt skemmtilega
og fróðlega skrá frá tónlistartímabilinu 1947.
Það kemur í ljós að sinfóníuhljómsveitirnar hafa
leikið 263 verk eftir 95 tónskáld.
Til gamans skulum við líta svolitið á þessa skýrslu.
Beethoven hefir verið vinsælasta tónskáldið með 18
uppfærð verk (á 48 hljómleikum) næstur kemur
Mozart einnig með 18 verk (á 38 hljómleikum),
Tschaikowsky 11 (32), Brahms 8 (22), Wagner, 8
(19), Debussy 8 (18), Bach 9 (17).
Charles Múnch hefir tekið við stjórn sinfóníuhljóm-
sveitarinnar í Boston af Serge Kusevitski, sem hefir
nú stjórnað henni í 25 ár.
llise Stevens nýtur sívaxandi vinsælda í Banda-
ríkjunum, auk söngs sins við Metropolitan, fer hún
langar hljómleikaferðir um öll Bandaríkin.
Rise Stevens lék m. a. í hinni frægu tónlistarmynd
„Carnegie hall“.
ísland.
Verk eftir Karl O. Runólfsson voru uppfærð í
útvörpum Wien, Gratz og Salzburg í sumar og auk
þess í Noregi og Danmörku.
Rise Stevens.
Listamenn og saltfiskur.
Elsta farþegaskip landsins „Súðin“ varð fyrir áfalli
skammt undan Vestmannaeyjum sunnudaginn 23.
janúar, enn hún var þá á leið til Italíu með saltfisk
og listamenn.
Sjórinn braut allt og bramlaði, enn hvorki lista-
mennina né saltfiskinn sakaði.
Gamalt máltæki segir að „fall sé faraheill“ og von-
andi sannast það á hinum ungu listamönnum.
28 MUSICA