Musica - 01.06.1949, Síða 3

Musica - 01.06.1949, Síða 3
780.5- niui iHuJica 2. ÁRGANGUR JÚNÍ 1949 1. TÖLUBLAÐ Ú tgefandi: Drangeyjarútgáfan. RITSTJÓRARABB Hversvegna eru hljómleikar svo illa sóttir? Það er staðreynd að aðsókn að hljómleikum hér á landi er afleit, enn þó má undanskilja jazz- hljómleika, og hljómleika frægra útlendinga. Tón- listarfélagið, kórar og önnur músikfélög hafa því gripið til þess ráðs, að safna styrktarmeðlimum til þess yfirleitt, að geta haldið starfsemi sinni áfram. Það sagði glöggur maður fyrir skömmu, að tónlistarunnendur hér í Reykjavík væru ekki fleiri enn eitt þúsund, og er það sorglega lítill prósentafjöldi í hinni 55,000 nxgnna borg. Hvað er rétt í fullyrðingu þessari er óvitað, en víst er, að margir okkar fremstu listamanna, er lagt hafa í sjálfstæða hljómleika, hafa orðið að gefa í hálf húsin, og leggja með sér fleiri þús- undir, fyrir utan allt það erfiði er þeir hafa á sig lagt. Margar ástæður hafa verið látnar uppi um, af hverju aðsóknin að hljómleikunum væri svo léleg. Sumir hafa haldið fram, að inngangseyrir væri of hár. Til eru auðvita dæmi um, að menn hafi kveink- að sér við að greiða 15 krónur fyrir miða að prýðis hljómleik, en hafa svo næsta laugardagskvöld með glöðu geði eytt hundruðum króna í drykkju- skap í einhverju kaffihúsa bæjarins. Margir hafa kvartað yfir, að hljómleikarnir væri yfirleitt á slæmum tíma, og hygg ég að þeir hafa mikið til síns máls, því að vitað er að margir geta ekki komið við, að fara á hljómleika kl. 7, þar eð þeir losna ekki úr vinnu sinni fyrr enn þá. ____ ui 181 r.an Auk þess hafa verið færðar fram margar aðrar ástæður, mismunandi trúlegar, en eitt er sam- eiginlegt með þeim öllum, að ef áhugin væri virkilega fyrir hendi, þá myndu allir góðir hljóm- leikar verða vel sóttir. Þá munu margir spyrja, hvernig eigi að vekja áhuga fólksins fyrir tónlistinni. Hafa okkur borist mörg bréf um þetta mál, og eru tillögur margra bréfritaranna mjög athygglisverðar. — Munu nokkur bréf um þetta mál verða birt í næsta hefti. Tónlistin sem stjórnmálalegt vopn? Miklar deilur hafa risið í sambandi við negra- söngvarann fræga Paul Robeson, en hann hefir látið all ófriðlega á hljómleikum sínum undan- farið, sungið rússneska baráttusöngva og haldið pólitíska ræðu, en áheyrendur hafa flautað og æpt að honum. Auk þess refsaði hann danska blaðinu ,,Poli- tikken“ fyrir afstöðu þess með Atlandshafsbanda- laginu með því að biðjast undan að syngja á hljómleikum blaðsins, en söng í stað þess að hljómleikum fyrir danska kommúnistablaðið „Land og Folk“. I Suður-Afríku hafa plötur, er Robeson hefur sungið inn á verið bannaðar, og annarsstaðar hefir mótmælaalda risið upp gegn honum. Áður en Paul Robenson fór í þessa hljómleika- ferð, hafði hann ferðast um mörg lönd, og haldið fjölda fyrirlestra, og hann hafði ákveðið að syngja ekki fyrst um sinn að minsta kosti, heldur helga baráttu negranna, krafta sína. MUSICA 3

x

Musica

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Musica
https://timarit.is/publication/725

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.