Musica - 01.06.1949, Blaðsíða 9
Þróun Sæveruds er athyglisverð, og hefir hann
getað skapað sinn eiginn stíl, en hann er einfald-
ur, ákveðinn og rökfastur, en rætur tónlindar
hans er í hinum frjóa þjóðlega jarðveg.
Síðustu 10 árin hefir Sæverud búið í hinum
fagra bústað sínum Siljustöl, nokkrar mílur frá
Bergen, þar hefur hann lifað góðu fjölskyldulífi,
\ nánum tengslum við hina fögru norsku náttúru.
Tóndœmi tír „Sinfóníu So/arosa", eftir Sceverud.
Merkasta verk Sæveruds er efalaust sinfónía
dolorosa. Verkið er ekki sinfónía í orðsins réttu
merkingu, það er aðeins einn kafli með einu
thema, sem aldrei er notað í sama formi, en
breytist stöðugt Stíllinn er hreinn, og meðferð
hljómanna er sinfónískur.
Það má vænta sér mikils af Sæverud, því að
norska moldin er frjó, og Sæverud kann að not-
færa sér hráefnið.
K/aus Eggc.
inu sióð, er afar sterk í byggingu sinni, og sýnir
þann spenning og þá sálarlegu áþján, sem norska
þjóðin varð að þola.
Egge hefur ekki aðeins form sinfóníunnar á
vald' sínu, heldur eru sónötur hans, skemmtilega
byggðar cg sveigjanlegar.
Klaus Egge er fæddur í Þelamörk árið 1906,
og er nemandi Fartein Valen og Gmeindl í Berl-
ín. Hann kom fyrst fram á sjónarsviðið árið 1934,
en þá var uppfært verk eftir hann á tónskálda-
kvöldi í Osló
Hann hefir verið ritstjóri norska tónlistartíma-
ritsins „Tonekunst“.
Þekktustu verk hans eru, ein sinfónía, tveir
píanókonsertar, fiðlusónata og píanótríó.
Harðangurstónlistin og norsk sveitatónlist hefur
haft mikil áhrif á Egge og eru öll verk hans með
hreinTnorskum blæ.
Sinfónía Egges sem er samin meðan á hernám-
Aðalthemað i sinfóniu Eggc.
Stíll Egges er enn í deiglunni, en hann er einn
skemmtilegasti persónuleiki meðal hinna ungu
norsku tónskálda.
Ludvig Irgens Jensen, er fæddur í Osló 1894,
MUSICA 9