Musica - 01.06.1949, Síða 11

Musica - 01.06.1949, Síða 11
Gagnrýnandinn Sig. Skagfield „Gagnryni“ sú er Sigurður Skagfield, óperu- söngvari hefir undanfarna mánuði birt í Tíman- um, hefir vakið furðu allra þeirra er lesið hafa. Hefir Skagfield með offorsi og látum ráðist á marga okkar ágætustu listamenn, og marga óvið- komandi, sem hann hefir notað tækifærið til að skeyta skapi sínu á. Ur hófi keyrir þó gagnryni hans á flutningi Tón- listarfélagsins og Sinfóníuhljómsveitar Reykjar- víkur á sálumessu Mozarts, sem er áreiðanlega illgjarnasta gagnryni, er birst hefir á íslenzkri tungu, og þótt víðar væri leitað „Gagnrýnin“ hefst með því að Skagfield segir, lesendum draugasögu: „Samtíðarmenn Mozart þóttust sjá fyrir, að hann ætti ekki langa lífdaga fyrir höndum og vildu þessvegna með einhverjum ráðum fá hann til að semja sálumessu, í því augnamiði segir sag- an“. Klæddist einn af helstu aðalsmönnum Vínar- borgar hettubúningi og málaði sig dólgslega í and- litið, heimsótti meistarann og krafist þess með draugslegri röddu, að hann skrifaði sálumessu. Þrisvar kom hinn reiði „andi“ í heimsókn til meistarans og að síðustu lofaði Mozart „andan- um“, að skrifa sálumessu og hafa hana til á ákveðnum tíma, sem „andinn“ tiltók. Mozart var þá bæði fátækur og veikur, sóttist verkið seint og síðustu taktana skrifaði hann í rúminu að dauða kominn“. Hvaðan Skagfield hefir þessa draugasögu skal ég láta ósagt, nema ef hún skyldi vera frumsaminn, ef svo er á Skagfield áreiðanlega mikla framtíð fyrir sér sem höfundur þesskonar sagna. Auk þess hve ótrúlegt það er að samtíðarmenn Mozarts skyldu leika slíkan skrípaleik í stað þess að gefa honum peninga fyrir nausynlegri fæðu. Vil ég nú segja hið rétta í þessu máli, svo að Skagfield geti skrifað það bak við eyrað í næsta skifti. Walsegg greifi pantaði þessa sálumessu hjá Mozart, og ætlaði að gefa hana út undir eigin nafni, og til að enginn skyldi þekkja hann, kom hann klæddur í dulargerfi, á fund Mozarts. Auk þess lauk Mozart aldrei við sálumessuna, nem- andi hans Siiszmayer lauk verkinu skömmu eftir dauða meistarans, þó eftir fyrirsögn hans. Skul- um við nú næst snúa okkur að kafla 2. og 3. í grein Skagfields, enn þeir eru helgaðir Tónlisar- félaginu, sem honum virðist vera sérstaklega upp- sigað við, og hefur hann eflaust sínar ástæður til þess. I kafla 4 hefst svo sjálf „gagnrynin11. Skagfield byrjar á að segja að uppfærslan hafi um margt verið athyglisverð, en eftir það sleppir hann sér alveg og segir m. a.: „Sópranarnir sungu með hásum og hörðum rödd- um . . . Píanissímó, „ekki til í dæminu“ . . . eilífur kraftasöngur með járnsmiðsins pákuslögum utan úr horni hljómsveitarinnar . . . forsöngur sólistana var hikandi, ójafn og illa samæfður . . . Sinfóníuhljómsveitin (með því nafni) aðstoðaði . . . hljómsveitin hamaðist gjörsamlega óæfð og „disciplin“ — laust . . . hin ofboðslega óhreina samæfing þessarar hljómsveitar . . . átakanleg hljóð er ýmsir úr hljómsveitinni ráku upp á sín „instrument“ . . . (hinir betri í hljómsveitinni), hverfa fyrir óhljóðum hinna, . . . hin klassisku meistaraverk er ekki hægt að uppfæra og klæða í hirðfífilsbúning, . . . að endingu, klykkir „gagn- rýnandinn“ út með þessari spaklegu athugasemd. „Meðlimir þessarar hljómsveitar ættu að vita það, að þeir eiga að spila, en ekki að saga, því að hér eru engar sögunarmyllur“. Þá veit maður það. Eftir að hafa lokið þessu hefur Skagfield efa- laust þurkað af sér svitan, og hafist handa að nýju og hefst svo 5. kafli, sem er nokkurskonar eftirmáli. Þar kvartar Skagfield m. a. yfir því: „. . . að hér MUSICA 1 1

x

Musica

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Musica
https://timarit.is/publication/725

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.