Musica - 01.06.1949, Page 12
hafi aldrei til langdvalar dvalið fyrsta flokks erl-
endir hljómsveitarstjórar, nema góðir og gegnir
miðlungarar, sem einnig vilja ,,Imponera“ okkur
með skriffinsku“. Þó að ekki sé vel skýrt hvað
Skagfield meinar með þessum orðum, er þó skilj-
anlegt, að hann er að reyna að hnýta í þá erlendu
hljómsveitarstjóra er hér dveljast Dr. Urbants-
chitsch og Róbert Abraham, en hann ætti að hafa
vit á, að vera þessum mönnum þakklátur fyrir
það sem þeir hafa gert fyrir íslenzka tónlist, og
það ástfóstur er þeir hafa tekið við íslenzk þjóð-
lög. Og mætti hinn mæti tenór taka þessa menn
sér til fyrirmyndar. Að endingu hnýtir hann í rit-
stjóra „tónlistarfélagsblaðsins“, vil ég benda Skag-
field á að eina tónlistarblaðið sem út er gefið er
„Tónlistarblaðið Musica“, og hlít ég því að taka
þessa sendingu til mín, þótt blaðið sé í engu
áhangandi Tónlistarfélaginu, en styðji í einu og
öllu, þróun tónlistarlífsins hér á landi, og hverja
þá sem, að þeirri þróun stuðla. Virðist það fara
í taugar Skafields.
Auk þess skil ég ekki í, hvaða sambandi ég
hefi við sálumessu Mozarts, nema að Skagfield
hafi heyrt þar eina draugasöguna enn.
Það er skemmtilegt að kynna sér rithátt Skag-
fields, fyrst byrjar hann í barnatímastíl og segir
lesundunum draugasögu, þvínæst skammast hann
pínulítið, er svo góður aftur, en verður svo
skyndilega feikna vondur og illur, stappar niður
fótunum, og rótar upp orðaflaumi svo að urgar í
pennanum, en verður svo skyndilega dapur, svo
að þátturinn endar með hinu raunsæja kvæði
Ingemanns er Skagfield ætti að leggja sér á minni:
Vi er ej skapt
for höjhed og blæst
at blive í graven
det tjener os best.
En svo illa vill til, að Skagfield hefir þetta
kvæð rangt eftir, en það er þannig rétt:
Vi er ej skapt
for höjhed og blæst
at blive ved jorden
det tjener os best.
Ég vil að endingu ráðleggja Skagfeild að lesa
yfir þá gagnrýni er hann ætlar að senda frá sér,
daginn eftir að hún er skrifuð.
Fólki með yfirspentar taugar á ávalt að láta
skapið sjatna dálítið áður, en það gerir eitthvað
sem það svo e. t. v. sér eftir seinna.
Ég vildi óska, að Sigurður Skagfield tæki þess-
ar vinsamlegu ráðleggingar til greina, þá myndi
vegur hans gerast annar, en hann er nú.
Mínar beztu óskir.
Tage Ammendrup.
o
Við þökkum áskrifendum Musica fyrir hjálp-
semi þeirra og aðstoð við innheimtu áskriftar-
gjalda blaðsins fyrir 1. árg.
Einnig þökkum við áskrifendum fyrir þær góðu
undirtektir er áskriftarsöfnun blaðsins hefir hlotið.
Hafa nýir áskrifendur streymt inn undanfama
2 mánuði, og erum við vel á vegi með að ná marki
okkar sem er 500 nýir áskrifendur fyrir áramót
og treystum við á áframhaldandi aðstoð allra vel-
unnara blaðsins.
o
Við þökkum lesendum fyrir allan þann fjölda
bréfa er okkur berst um ýmis efni.
Hefir okkur verið mikill styrkur af þessum bréf-
um, og haft mikið gagn af að heyra álit lesenda á
efni blaðsins.
o
Ejtii' niðurs\urð jjárvcitingancjndar á styr/( til
sinjóniuhljómsveitar Rcyl(javí\ur.
12 MUSICA