Musica - 01.06.1949, Síða 19

Musica - 01.06.1949, Síða 19
kynnast Hándel, heldur gaf það tilefni til endur- mats á verkum hans. Skyndilega komust tónlistarmenn álfunnar, að raun um að einhver Hándel hafði samið fyrir hundrað ára fjöldan allan af óratóríum, söngleikj- um, kammertónlist, píanóverkum, og orgelverk- um og síðast en ekki síst hina undurfögru Conserto Grossi. En við skulum kynna okkur nánar lífsferil hins misheppnaða lögfræðistúdents, og sérvitra þrá- kálfs Friedric Hándel. Hándel fer til Hamborgar. Engum gat dottið í hug, að sonur hins hertoga- lega líflæknis og virðingamanns Georg Friederich Hándels í hinum góðu og virðulega bæ, Halle, myndi leggja fyrir sig annað en hinn virðinga- verða, krókalausa og heiðarlega veg, embættis- mannastétta hinna þýzku smábæjar. Hándel eldri var gott dæmi hinar heiðarlegu og duglegu borgarastéttar 17. aldarinnar. Einkenni þessarar stéttar var heiðarleiki, spar- semi og guðsótti, blandaður þröngsyni, sem þó ekki útilokaði heilbrigða skynsemi. Þar af leið- andi hlaut slíkur maður sem Hándel eldri, að hafa mikla lítilsvirðingu á öðru eins starfi og lista- mannsstarfinu, og frá hans sjónarmiði var tónlist ekkert annað en trúðmennska, og er í ljós kom, að Hándel yngri hafði áhuga á tónlistinni, var áhuganum miskunarlaus't haldið niðri. En yngri Hándel hafði erft frá föður sínum auk skynseminnar, mikinn sálarstyrk, og er faðir hans sagði hið miskunarlausa, „Má ekki“ sagði sonur, „Ég skal“. Og á endanum varð faðirinn að beygja sig. Það var eftir heimsókn í nágrannakirkjuna í Weissenfels, að hertoginn tók eftir gáfum og hæfi- leikum drengsins er hann fékk að leika á kirkju- orgelið, og þá fékk Hándel kennara, og hann var svo lánsamur að fá sem kennara hin duglega tónlistannann og kennara Friedrich Wilhelm Zachow. Hjá Zachow lærði Hándel tónfræði og kynntist hinum þýzka barokstíl, en einnig eldri og yngri erlendri tónlist. Hándel lærði einnig að leika á öll þau hljóð- færa, er voru notuð í hljómsveit baroktímans, og fékk þá mikla ást á óbóinu. Hándel eldri dó árið 1697, og hann hafði svo mikil áhrif á soninn, að til að fara eftir vilja hans lét hann skrá sig við háskólann í Halle sem lögfræðinema, en jafnframt hafði hann stöðu sem orgelleikari, og „samdi eins og óður væri“. En Hándel var mishepnaður stúdent, enda hætti hann brátt námi við háskólann og lagði land undir fót og fór til Hamborgár, óskalands allra tónlist- manna þeirra tíma, þar sem Reinhard Keiser lagði fólkið fyrir fætur sér með söngleikjum sínum, sem eru fullir dásemlegrar tónlistar, enda var hann um margt fyrirmynd Mozart í byggingu laglínunnar. Keisir var afar gáfaður tónlistarmaður, en afar léttlyndur, og er vel gekk, skemmti hann sér taumlaust, en varð svo að verja löngum tíma á milli skemmtana við að róa skuldheimtumenn. Seinast flutti hann til Kaupmannahafnar, þar sem hann varð konunglegur hljómsveitarstjóri og dó þar. Hándel fékk í verkum Keiser yfirlit yfir það svið sem hann sjálfur átti eftir að afla sér frægðar á, en til að byrja með, fór hann í hljómsveit Hamborgarsöngleikjahússins sem annar fiðlari, og með hægðinni hlustaði hann á, lærði og öðlaðist skilning á rriörgu því, er átti eftir að koma honum að gagni síðar meir. Enn þá kynntist hann Johann Mattheson. Framh. Tónlistarmenn mótmœla lœkunn ó listamannalaunum Á tónlistarfundi, sem haldinn var nýlega í Rvík, var samþykkt svofelld ályktun: „Stjórnarfundur Tónskáldafélags Islands felur sérstakri nefnd, að leiðrétta þann misskilning fjár- veitingarnefndar alþingis, að íslenzkum listamönn- um og höfundum hafi þegar tekizt að afla sér tekna vegna þáttöku íslands í Bernarsambandinu, og mótmælir eindregið þeirri tillögu nefndarinnar að lækka laun listamanna um 75 þúsund krónur. Fundurinn felur nefndinni að leita fulltingis alþingis til þeirra ráðstafana, sem nauðsynlegar eru til að hagnýta Bernarsambands samþykktina í þágu íslenzkra höfunda“. Ályktuninni fylgir löng greinargerð til fjárveit- inganefndar með rökstuðningi tónlistarmannanna. MUSICA 19

x

Musica

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Musica
https://timarit.is/publication/725

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.