Musica - 01.06.1949, Page 28

Musica - 01.06.1949, Page 28
NYJAR NOTUR Nýlega er komin á markaðinn 10 einsöngslög, eftir Friðrik Bjarnason, orgelleikara við þjóðkirkj- una í Hafnarfirði. Lögin heita: Tónaflug, texti Jónas Guðlaugsson, Vorblær, texti Fríða Hallgríms, Stjörnur um sumarnótt, texti þýddur af Matth. Jochumssyni, Það Kvöldar, texti Kristmann Guðmundsson, Ferðbúinn, texti Örn Arnarson Hljóðar nætur, texti Sigurjón Friðjónsson, Haustljóð, texti Sigurður Jónsson frá Brún, Hvíldir, texti Jón Magnússon, Sólarlag, texti Þorsteinn Gíslason. Lögin eru hvert öðru fallegra, og mega ein- söngvarar okkar hrósa happi yfir að fá þessi lög á söngskrá sína. Lithoprent hefir annast ljósprentunina eftir handriti höfundar, og hefir hún tekist vel. Frágangur heftisins er mjög vandaður. Verð krónur 10,00 Tónlistarblaðinu Musica hefir borist 1. hefti söngvasafns Landsambands blandaðra kóra. Er í heftinu 55 lög fyrir blandaðar raddir eftir innlenda sem erlenda höfunda. Björgvin Guðmundsson tónskáld tók heftið saman, og er allur frágangur þess hinn vandaðasti. Von er á næstunni á 2. hefti þessa söngvasafns, og er blönduðum kórum um land allt hinn mesti styrkur að þessari útgáfu. Verð 1. heftis er kr. 25,00. L. B. K. var 10 ára 5. desember, og hefir unnið að málum blandaðra kóra mikið gagn með starfi sínu, m. a. með söngmótum og fyrirgreiðslu á starfi blandaðra kóra. í stjórn sambandsins eru nú, Jón Alexanders- son, formaður; Eðvald B. Malmquist, gjaldkeri og Steindór Björnsson ritari. Vornótt eftir Jónatan Ólafsson, píanóleikara er nýkomið á markaðinn. Lagið er vel fallið til söngs, og mun áreiðanlega njóta vinsælda, og verða jafn mikil plága og „Tondeleyo“ var (og er jafnvel enn) á sínum tíma. Frágangur er ágætur. Verð krónur 6.00. O Rússneska söngaðferðin Framh af myndaopnu. „Pú“ til þess að þroska resónans. hefðbundið dálæti okkar á „púi“ er mjög til þess fallið, að þroska resónans. Jafnvel söngvur- um, sem aldrei nota það í starfi sínu, væri gagn- legt að æfa það í hófi, vegna þess, hve vel það er til þess fallið, að flytja röddina fram. Leyndar- dómurinn við „púið“, sem resónansæfingu, er það, að finna tóninn titra á vörunum og í andlitinu Ef þessi titringur finnst ekki glögglega (eins og kitl- andi suð), resónerar röddin ekki rétt. Auðvitað höfum við skapað okkur sérstakt kerfi á kóræfingum okkar. Á þeim tíma, er flestir hljómleikar eru haldnir, höfum við lítinn tíma til æfinga oftar en þrisvar til fjórum sinnum á mán- uði. En um sumarmánuðina æfum við í ákafa bæði við að útbúa dagskrár og raddtækni. Sex vikur sumarsins æfum við okkur átta stundir á dag, — fjórar um morguninn og fjórar eftir hádegi. Þá eru nýjar dagskrár samdar. Eg vel lögin, skipti þeim í raddirnar og fer yfir valið með kórnum í heild og útskýri áhrifin, sem keppt er að. Næst því er vinnan með einstökum raddflokkum. Þeg- ar hver rödd hefur sungið sitt hlutverk fimm eða sex sinnum, leggjum við nóturnar til hliðar og syngjum blaðalaust. Þegar hér er komið, hafa allir skilið að hvaða marki er keppt, þeir kunna hlutverk sín og geta einbeitt sér að laginu án þess að horfa á nóturnar. Þá hefst sú stranga vinna, að fága og hreinsa! Það er mjög örfandi að finna hve smekkvísi amerískra hlustenda er að aukast. Fyrst þegar við sungum hérna, fyrir um það bil tólf árum, virtust áheyrendurnir skoða okkur sem einskon- 28 MUStOA

x

Musica

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Musica
https://timarit.is/publication/725

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.