Musica - 01.12.1949, Blaðsíða 3
ÍHluMca
2. ÁRGANGUR
DESEMBER 1949
Útgefandi: Drangeyjarútgáfan.
4. TÖLUBLAÐ
RITSTJÓRARABB
Prentunarkostnaður og prentmyndakostnaður
hefir eins og öllum er kunnugt hækkað mjög, en
vegna mikillar fjölgunar áskrifenda hafa útgefend-
ur séð sér fært, að halda verði blaðsins óbreyttu.
Eftir áramót mun blaðið breyta nokkuð um svip,
verða minna að blaðsíðutölu, en koma í þess stað
út 10 sinnum á ári, þannig að efni það er blaðið
flytur í hvert sinn verður nyrra en ella, og kaup-
endur og áskrifendur fá blaðið mun reglulegra
en verið hefir.
Áskriftargjald helst óbreytt kr. 40.00 yfir árið,
en blaðið mun kosta 50.00 fyrir árg. til þeirra er
kaupa blaðið í lausasölu.
Það er miklum erfiðleikum bundið að halda
slíku blaði úti, en allir þeir aðilar er Musica hefir
leitað til, hafa sýnt blaðinu velvilja, og aðstoðað
það á hvern þann hátt sem þeir hafa getað.
Á vetvangi tónlistarinnar hefir árið sem nú er
að líða verið frekar viðburðasnautt og engin stór-
breyting hefir orðið á þróun tónlistarmálanna hér
á landi.
í stöðugu stímabragi stendur með stofnun
sinfóníuhljómsveitarinnar, og af þeim aðilum er
eiga að standa að henni, hefir aðeins einn, lýst
yfir fullum stuðningi sínum.
Sinfóníuhljómsveitin er og verður aðaláhuga-
mál allra tónnunnenda hérlendis, og fyrr en hún
verður starfhæf, verður ekki hægt að tala um
fullkomið menningarlíf hér, í þessa orðs fyllstu
merkingu.
48,5% af dagskrá útvarpsins er nú helguð tón-
listinni, og þótt þetta magn tónlistar gefi á engan
hátt neina hugmynd um gæði þess er flutt er, er
ekkert vafamál að ríkisútvarpið hefir fyllsta skiln-
ing á hlutverki tónlistarinnar og mannbætandi
áhrifum hennar.
Tónlistarskólinn á í miklum húsnæðisvandræð-
um, og það svo mjög, að skólinn hefir orðið að
neita mörgum umsækjendum um skólavist.
Kórar og hljómsveitir eru og í sífeldum vand-
ræðum með æfingarpláss, og háir það yfirleitt
allri tónlistarstarfsemi.
Ríkisvaldið og bæjarstjórnin hefir sýnt og sýnir
enn, að þessir aðilar hafa ekki skilning á verðmæt-
um tónlistarinnar, og vilja ekki annað til hennar
kosta, en það er minnst má komast af með.
Þannig hefir ríkisvaldið t. d. neitað tónskáldum
um leyfi til að fá verk sín prentuð erlendis (engin
prentsmiðja er til sem prentar nótur hér á landi),
og þannig gert þeim ókleift að kynna verk sín
hvort sem er á innlendum sem erlendum vetvangi,
og er þessi framkoma stjórnarvaldanna algert eins-
dæmi, og óskiljanleg með öllu.
Þróun tónlistarinnar er nú í höndum ríkisvald-
sins, og það er þess að ákveða hvort að við eigum
að hjakka í sama farinu, eða halda fram á við
Islandi og íslendingum til sóma.
Stofnun sinfóníuhljómsveitar og Tónlistarhöll, er
markmiðið okkar allra, er tónlist unna, og við verð-
um að treysta þeim fulltrúum okkar er við höfum
MUSICA 3