Útvarpstíðindi - 04.06.1945, Qupperneq 6
102
ÚTVARPSTIÐINDI
Eftir stríðið:
Þýðing
útvarpsins
á stríðstímum
Almenningstækin
og nýungar þeirra
Viðtal við SVEIN INGVARSSON
forstj. Viðtækjaverzlunar ríkisins
Það mun óhætt að fullyrða a?i hús-
undir íslenzkra útvarpsnotenda bíða
eftir möguleika á því að geta endur-
nýjað viðtæki sín og að jafnframt bíði
þúsundir einstaklinga, sem ekki hafa
átt viðtæki áður, eftir tækifæri til að
eignast þau.
Það er víst að mikil ös verður hjá
Viðtækjaverzlun ríkisins strax og eitt-
hvað greiðist úr með viðtækjaíram-
leiðslu og þó sérstaklega, ef hin nýju
tæki eftirstríðs áranna verða mikið
endurbætt, frá því sem áður var og
freisti manna til tækjaskipta.
Útvarpstíðindum hafa borizt nokkr-
ar fyrirspurnir um þetta að undan-
förnu, en ritstjóramir gátu litlu svarað
og sneru „Tíðindin“ sér því til Sveins
Ingvarssonar forstjóra Viðtækjaverzl-
unarinnar og þáðu hann um upplýs-
ingar.
Sveinn Ingvarsson
forstjóri Viðtækjaverzlunar ríkisins.
„Ég er fús til að rabba við yður um
þessi mál, því að sennilega bíður eng-
inn nýrrar viðtækja-framleiðslu með
meiri óþreyju en ég“, sagði forstjórinn,
„en upplýsingarnar verða því miður
ekki eins fullkomnar og ég hefði sjálf-
ur kosið, því betra er að gefa engar
upplýsingar en að byggja á ágizkunum
annara, sem vel geta brugðist og ef til
vill eru bornar fram eins mikið í þeim
'tilgangi að vekja áhuga fyrir tækja-
sölu eins og því að upplýsa hvenær
smíði tækja verði hafin.
Ég vil því taka það strax fram að
spurningunni sem útvarpsnotendum
leikur mest forvitni á að fá svarað,
hvenær viðtæki verði aftur á b'.ðstól-
um, mun ég Ieiða hjá mér að svara,
öðru vísi en víst er, að þess verður
ekki mjög langt að bíða úr þessu.
Ég sá nýlega, í amerísku tímariti,