Útvarpstíðindi - 04.06.1945, Blaðsíða 12
108
ÚTVARPSTIÐINDI
Nú varð umsjónarmannium litið á
mig — eflaust hefir honum fundist
einkennilegt hve lengi ég horfði á
þetta andlit í speglinum, sem tómleiki
sálarinnar skein úr og sljóleiki þess,
sem engu hefir framar að glata í lífinu.
En umsjónarmaðurinn skildi ekki
neitt — vissi ekki neitt. Hann horfði
algjörlega blygðunarlausum augum á
mig, Iíkt og sálarlaus maður. En það
skildi hann vita sá góði maður, að það
var fyrir neðan virðingu mína að
ympra á endurgreiðslu af einum fimm
krónum, svo smásálarlegur og Iítilfjör-
legur gat ég aldrei orðið.
Ég reyndi að brosa um leið og ég
staulaðist fram. En umsjónarmaður-
inn hneigði sig virðulega og sagði:
— Þakka yður fyrir, herra listmál-
ari! —
Og ég hugsaði: Ef til vill var um-
sjónarmaðurinn eftir allt ekki algjör-
legalega sálarlaus. Hann hélt auðsjá-
anlega að ég væri maður sem munaði
ekki minnstu vitund um að gefa einar
skítnar fimm krónur fyrir að bursta
skóna sína — og það gerðu sko engir
smákarlar! Það var þó alltaf nokk-
uð. — I—
í leiðslu fékk ég ungu stúlkunni í
fatageymslunni númerið. Hún fékk mér
rennblautan frakkann minn og hattinn.
— Það var fjandi kaldranalegt að
þurfa að fara aftur í frakkann svona
blautann.-------
Svo féllu hringekjudyr hótelsins á
hæla mér.-------Ég var aftur kominn
út í ofviðrið og rigninguna. Ég bretti
kragann upp í háls. Mér var að verða
hrollkolt. Svo slafsaði ég áfram í götu-
aurnum. — Götuljósin spegluðu sig í
fagurgljáandi skónum mínum, meðan
það var. . . . Frh. á bjs. 109.
RIKISUTVARPIÐ
Takmark Ríkisútvarpsins og ætlunarvMrk
er að ná til allra þegna landsins með hvers-
konar fræðslu og skemmtun, sem því er unnt
að veita.
/ .
AÐALSKRIFSTOFA ÚTVARPSINS
annast um afgreiðslu, fjárhald, utborganir,
samningagerðir o. s. frv. — Útvarpsstjóri er
venjulega til viðtals kl. 2—4 síðd. Sími skrif-
stofunnar er 4993. Sími útvarpsstjóra 4990.
INNHEIMTU AFNOTAOJALDA
annast sérstök skrifstofa. — Sími 4998.
ÚTVARPSRÁÐIÐ
(Dagskrárstjórnin) hefur yfirstjóm hinnar
menningarlegu starfsemi og velur útvarps-
efni. Skrifstofan er opin til viðtals og af-
greiðslu frá kl. 2—4 síðd. Sími 4991.
FRÉTTASTOFAN
annast um fréttasöfnun innanlands og frá
útlöndum. — Fréttaritarar eru í hverju hér-
aði og kaupstað landsins. Sími fréttastofu
4994. Sími fréttastjóra 4845.
AUGLÝSINGAR
Útvarpið flytur auglýsingar og tilkynningar
til landsmanna með skjótum og áhrifamikl-
um hætti. Þeir, sem reynt hafa, telja út-
varpsauglýsingar áhrifamestar allra auglýs-
inga. Auglýsingasími 1095.
VERKFRÆÐINGUR ÚTVARPSINS
hefur daglega umsjón með útvarpsstöðiimi,
magnarasal og viðgerðastofu. Sími verk-
fræðings 4992.
VIÐGERÐARSTOFAN
annast um hverskonar viðgerðir og brayt-
ingar viðtækja, veitir leiðbeiningar og
fræðslu um not og viðgerðir viðtækja. Sími
viðgerðarstofunnar 4995.
Ríkisútvarpitf.
TAKMARKIÐ ER:
Útvarpið inn á hvert hcimilil Allir lands-
menn þurfa að eiga kost á því, að hlusta á
æðaslög þjóðlífsins; hjartaslög heimsins.