Morgunblaðið - 12.12.2008, Side 2

Morgunblaðið - 12.12.2008, Side 2
2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 2008 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt- ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is STÓRN Ferðamálasamtaka Suð- urnesja ræðir þá hugmynd að fá leyfi til að flytja hreindýr á Reykja- nesskagann eða í Landnám Ingólfs. Tilgangurinn er að auðga dýralíf svæðisins og draga að ferðafólk. Ferðamálasamtökin tóku hug- myndina til umræðu á fundi í vik- unni að tillögu formannsins, Krist- jáns Pálssonar. Segir hann að málinu hafi verið vel tekið en tekur fram að það sé enn á hugmyndastigi. Minnir Kristján á að hreindýr hafi lengi verið á Reykjanesi, meðal ann- ars í miklum harðindum í lok átjándu aldar og á þeirri nítjándu og komist ágætlega af. Nú sé landið mun minna nýtt af mönnum og skepnum og því ættu að vera enn betri skilyrði. Kristján segir að hreindýrin séu falleg og tignarleg dýr, engum hættuleg, og telur að margir íbúar höfuðborgarsvæðisins og bæjanna í nágrenni hefðu áhuga á að skoða villt hreindýr í náttúrulegu um- hverfi. Þá gætu þau haft aðdrátt- arafl fyrir ferðafólk. Tekur Kristján fram að ekki sé ætlunin að leyfa veiðar, það samrýmist ekki hug- myndinni um friðland villtra dýra. Áhugi er á því að þarna verði ein- hver hundruð dýra. Telur Kristján að stofninn megi flytja frá Noregi eins og gert var í upphafi eða frá Austurlandi. Heimildir eru um að dýrin hafi haldið sig mikið í Bláfjöll- um og nágrenni en farið niður á lág- lendi Reykjanesskagans í mestu harðindum. Reiknar hann með að svo færi einnig nú, ef hreindýr væru flutt á svæðið, þau héldu sig vænt- anlega mest í Brennisteinsfjöllum og á Sveifluhálsi. Kristján hefur áhuga á að kanna vilja meðal íbúa svæðisins en reikn- ar síðan með að sækja um leyfi hjá Umhverfisstofnun, viðkomandi sveitarfélögum og ef til vill fleirum. Villt hreindýr í Landnám Ingólfs Ferðamálasamtök Suðurnesja ræða flutning hreindýra á Reykjanesskaga Morgunblaðið/RAX Flótti Hreindýrin eru tignarleg en venjulega fljót að forða sér þegar fólk nálgast, hvort sem það er í veiðihug eða fer með friði. Í HNOTSKURN »Þrjátíu hreindýr voru fluttfrá Noregi á árinu 1777 og sleppt á land á Hvaleyri, sunn- an Hafnarfjarðar. Runnu þau þegar til fjalla og tímguðust all- vel. »Hreindýrahópur sem for-faðir Kristjáns Pálssonar flutti frá Hammerfest í Noregi var settur á land við Straums- vík á árinu 1785. »Hreindýrin voru veidd tilmatar og fækkaði mjög í stofninum. Talið er að gengið hafi verið of nærri törfunum og það hamlað tímgun í stofninum. »Hreindýr voru þó á Reykja-nesskaganum fram á tutt- ugustu öld. Árni Óla segir frá því að síðasta hreindýrið þar hafi verið fellt árið 1930. MIKIÐ flóð gerði í gær þegar Skaftá ruddi sig eftir óvenjulega mikið vatnsveður. Myndaðist stífla vestan við Systrastapa en þegar hún lét undan fyllti flóðið farveginn og meira til. Bíll og kerra sjást hálf á kafi í vatninu, sem gjálfraði við heyrúllur og nærliggjandi hesthús. Á myndinni má sjá ferðaþjónustuskilti í vegkanti og talið var að þar væri flóðdýptin þrír metrar. Í gærkvöldi var Skaftá aftur í venjulegum ham. Stórrigningar og Skaftá ruddi sig með látum Ljósmynd/Gunnar Þorkelsson Mikla gusu gerði er jakastífla brast Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is „KÚABÆNDUR eru eins og aðrir í mjög þröngri stöðu. Þetta er auðvit- að býsna alvarlegt. Það var varla á bætandi,“ segir Baldur Helgi Benja- mínsson, framkvæmdastjóri Lands- sambands kúabænda (LK). Bein- greiðslur fyrir hvern mjólkurlítra munu rýrna talsvert að raunvirði á næsta ári. Í nýja fjárlagafrumvarp- inu er gert ráð fyrir að þær hækki um 5,7% á næsta ári, en fylgi ekki verðbólgu, sem verður samkvæmt nýjustu spám miklu meiri. Baldur Helgi segir þessa tekju- rýrnun háða mikilli óvissu, vegna óvissu um verðbólguna. Þetta geti komið út á 3,50-5,00 króna skerðingu á hvern mjólkurlítra. Hann tekur dæmi af búi sem framleiðir 200 þús- und lítra á ári og missir þá af 700 þúsund til milljón krónum á árinu. Brjóta staðfesta samninga „Peningarnir eru stórmál. En áfallið, að verða vitni að því að ríkið standi ekki við gerða samninga, er jafnvel stærra mál,“ segir Baldur Helgi, sem setur þó fyrirvara um að ekki sé búið að afgreiða frumvarpið, en „ef svo fer sem horfir erum við að sjá ríkið ekki standa við samninga sem er búið að staðfesta af landbún- aðarráðherra og fjármálaráðherra, staðfesta á Alþingi og samþykkja í almennri atkvæðagreiðslu meðal bænda haustið 2004.“ Sameiginleg afstaða forsvars- manna bænda er að standa beri við gerða samninga og að skerðingin sé algerlega á ábyrgð stjórnvalda. „Nú ríkir óvissa um hvort staðið verði við samninginn, og eru það gríðarleg vonbrigði og áfall fyrir kúabændur,“ var ritað á heimasíðu Landssambands kúabænda í gær. Brjóta mjólkursamninga  Beingreiðslur til bænda munu ekki hækka í takt við verðbólgu á næsta ári  700 þúsund til milljón króna skerðing fyrir ríflega meðalstórt kúabú yfir árið Í HNOTSKURN »Samningurinn sem umræðir er „um starfsskilyrði mjólkurframleiðslu“ og var undirritaður 10. maí 2004. »LK segir bændur í 22 árhafa getað treyst á að rík- ið standi við samninga. »Landbúnaðarráðherra gatþess á haustfundi LK 13. október sl. að það yrði gert. HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær karl- mann í 18 mánaða fangelsi fyrir að hafa tvívegis haft samræði við 17 ára stúlku, sem gat ekki spornað við verknaðinum vegna andlegra annmarka og líkamlegrar fötlunar. Hann var bílstjóri í afleysingum hjá Ferðaþjónustu fatlaðra á þeim tíma, í nóvember 2006. Honum var einnig gert að greiða henni 800 þúsund krónur í skaðabætur. Héraðsdómur hafði áður dæmt manninn í tveggja ára fangelsi og til að greiða stúlkunni eina milljón króna. Hæstiréttur taldi, gegn neit- un mannsins, að honum hefði ekki getað dulist að stúlkan væri and- lega fötluð. Í héraðsdómi kom fram að brotið hefði haft alvarleg áhrif á stúlkuna. Skerðing á vitsmuna- þroska gerði henni erfiðara fyrir en ella að vinna úr áfallinu. Misnotaði tvívegis fatlaða stúlku HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt karl- mann í tveggja ára fangelsi og 750 þúsund króna bótagreiðslu fyrir kynferðisbrot gegn 14 ára stúlku. Maðurinn kom ölvaður heim að morgni í maí í fyrra til tveggja sona sinna sem stúlkan gætti. Í dómnum segir að í stað þess að borga stúlkunni fyrir barnagæsl- una þegar í stað svo hún kæmist heim hafi hann neytt yfirburðaað- stöðu gagnvart henni þegar hann fékk hana til að setjast í sófa í stof- unni. Þar sýndi hann henni grófa kynferðilsega áreitni með því að af- klæða hana og reyna að hafa við hana kynmök. Í fangelsi í tvö ár fyrir kynferðisbrot KYNFERÐISAFBROTADEILD lögreglunnar á höfuðborgarsvæð- inu er nú að rannsaka meinta nauðgun á þrettán ára stúlku á hót- eli í Reykjavík á mánudag. Fleiri en einn aðili eru taldir tengjast málinu og er einn þeirra farinn af landi brott. Málið barst til lögreglu í gegnum barnaverndarnefnd og er rannsókn þess á frumstigi. Samkvæmt upp- lýsingum Björgvins Björgvins- sonar, yfirmanns kynferð- isafbrotadeildar, leitaði stúlkan á sérstaka bráðamóttöku vegna kyn- ferðisafbrota. Ekki liggja enn fyrir niðurstöður þeirra rannsókna sem þar voru gerðar. Grunur um að þrettán ára stúlku hafi verið nauðgað HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi í gær ökukennara í þriggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn fjórum nemendum sínum. Fórnarlömbin voru allt piltar á aldrinum 14 til 17 ára og lærðu bæði á bíl og skellinöðru hjá mann- inum þegar brotin voru framin. Grunur er um að ökukennarinn, Haukur Helgason, hafi brotið gegn fleiri piltum en aðeins fjórir vildu gefa skýrslu hjá lögreglu. Brotin framdi hann á löngum tíma. Þau grófustu eru talin framin á árunum 1996-1998 en síðast er vitað um brot Hauks gegn piltum árið 2002. Ökukennarinn var dæmdur fyrir kynferðismök gegn tveimur þeirra en fyrir að hafa tekið klámfengnar myndir af hinum tveimur. Við rann- sókn málsins og húsleit hjá Hauki komu í ljós myndir af fleiri piltum. Fram kom að hann hafði bæði tekið þær sjálfur og fengið þær aðsend- ar. Ökukennarinn er nú búsettur í Svíþjóð en þangað fór hann eftir að rannsókn lögreglu hófst. Dæmdur fyrir brot gegn fjórum piltum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.