Morgunblaðið - 12.12.2008, Page 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 2008
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16
Patti húsgögn
landsins mesta úrval af sófasettum
kr.239.900,-
verð nú
verð áður 359.900
Sófasett 3+1+1
VERÐHRUN
Eftir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur
gag@mbl.is
EKKI er óeðlilegt að gömlu bank-
arnir hafi keypt skuldabréf hverjir í
öðrum. En að bankarnir hafi keypt
skuldabréf af eigendum sínum er það.
Þetta segir Vilhjálmur Bjarnason, að-
júnkt í Háskóla Íslands.
„Bankaskuldabréf eru almennt tal-
in í lagi en þegar bankarnir eru farnir
að lána eigendum hver annars og þeir
eru aðeins þrír er komin kerfislæg
áhætta þar sem aðeins einn þarf að
klikka svo allt kerfið hrynji. Það gerð-
ist,“ segir hann. „Ýmislegt bendir til
þess að ekki hafi verið forsendur fyrir
peningamarkaðssjóðunum þar sem
markaðurinn er of lítill. Skuldabréfa-
markaðurinn var svo þröngur að
menn sýndu dómgreinarskort við
kaupin,“ segir Vilhjálmur.
Funduðu um sjóði Landsbanka
Morgunblaðið óskaði eftir viðtali
við Ásmund Stefánsson, formann
bankaráðs Landsbankans, en fékk
ekki. Hópur fólks, sem stendur að
heimasíðunni rettlaeti.is og tapaði
þriðjungi á peningamarkaðssjóði
Landsbankans, fór á fund bankans í
fyrrakvöld. Hann fer fram á bætur.
Fundinn sat einnig Jóhann Haukur
Hafstein lögmaður. Hann hefur höfð-
að mál fyrir umbjóðendur sína til að
hnekkja leyndinni sem hvílir á sam-
setningu sjóða Landsbankans.
„Þeir bera fyrir sig bankaleynd en
ég tel fráleitt að hún eigi við. Fólkið
sjálft átti peningana og vill vita hvert
þeirra eigin fjármunir fóru.“ Taka
átti málið fyrir í Héraðsdómi Reykja-
víkur í dag en því hefur verið frestað
um viku.
Jóhann vinnur bæði fyrir ein-
staklinga og fyrirtæki, sem áttu í inn-
lendum og erlendum sjóðum bank-
ans. Viðskiptavinirnir töpuðu
hlutfallslega mismiklu eftir því hvort
sjóðirnir voru í krónum, evrum eða
öðrum gjaldmiðlum. Jóhann hefur
ekki fengið upplýsingar um hvort
tapið sé vegna ólíkrar eignasamsetn-
ingar innan sjóðanna eða vegna geng-
isáhættunnar. „Ég hélt að sjóðirnir
hefðu átt að vera sjálfstæðir en ég hef
heyrt að féð hafi allt runnið í aðalsjóð-
inn, þann innlenda.“
Töluverð frávik frá stefnunni
Á fundinum skýrðu forsvarsmenn
Landsbankans frá bréfi sem sent var
þeim þúsundum sem áttu í sjóðunum
í gær.
Á annað þúsund manns, sem áttu í
sjóðum Landsbankans, hefur skráð
sig á heimasíðuna www.rettlaeti.is og
berst fyrir því að fá sparifé sitt bætt.
Í hádegisfréttum RÚV kom fram
að skuldabréf í bönkunum hefðu verið
stór hluti sjóðanna og skuldabréf í
Kaupþingi um 30 prósent. Lítið hefði
verið af ríkisbréfum í innlenda sjóðn-
um eða 0,2 prósent. Töluverð frávik
hefðu verið frá fjárfestingastefnunni.
Viðskiptanefnd Alþingis óskaði um
miðjan nóvember eftir svörum um
sjóði bankanna þriggja, m.a. sam-
setningu þeirra, en hefur ekki fengið.
Nefndarformaðurinn Ágúst Ólafur
Ágústsson ítrekaði beiðnina í gær.
Engin leyndarmál
Krafan á ríkisbankana að upplýsa eignastöðu peninga-
markaðssjóðanna eykst Skuldabréf í bönkunum trygg
„Ég er einn þeirra, sem töpuðu fé í peningamarkaðssjóði
Landsbankans, og einn af stofnendum rettlaeti.is sem
berst við Golíat. Þegar vefurinn fór í loftið í [fyrradag]
fengum við upphringingu frá Elínu, bankastjóra Lands-
bankans, þar sem hún boðaði okkur til fundar. Mjög
óvænt, Ásmundur Stefánsson [formaður bankaráðs] og
lögmaður bankans sátu einnig fundinn.
Fátt nýtt kom fram á þessum fundi, allri ábyrgð var
vísað á Landsvaka, sem að vísu hefði verið í eigu gamla
Landsbankans. Ekki gátum við fengið upplýsingar um
fjárfestingar sjóðsins nema að takmörkuðu leyti, feng-
um þó staðfest að bankinn hefði lánað sjálfum sér, Samson og fleiri fyr-
irtækjum í eigu eigendanna, sem hlýtur að teljast skandall. Síðan kom upp
mjög athyglisverður punktur. Peningamarkaðssjóðir bankanna voru iðnir
við að lána hver öðrum, mynduðu nokkurs konar ástarþríhyrning, bjuggu
til kúlu sem var innihaldslaus, líkt og FL, Fons og fleiri hafa gert, til að láta
hlutina líta betur út. Einnig kom fram að fjárfestingastefna sjóðsins var
þverbrotin með því að selja út bestu bréfin, ríkistryggðu bréfin. Svo sem
ekkert nýtt, en það sem var skondnast var að okkur hafði verið bent á að
senda fyrirvarabréf til bankans um að við litum á 68,8% greiðslunnar sem
hlutagreiðslu en ekki uppgjör, og hafði Fjármálaeftirlitið bent okkur á að
við ættum að stíla það á Landsvaka ehf. Við spurðum Elínu og Ásmund um
hvort þau vissu hvert símanúmerið hjá Landsvaka væri, eða netfang.
Nei, Landsvaki hafði hvorki síma né netfang, var vistað í efstu skúffunni
hjá Stefáni Héðni [Stefánssyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra eignastýr-
ingasviðs]. Landsvaki ehf. hafði ekki heldur starfsmenn, það voru bara
starfsmenn Landsbankans sem tóku að sér að sinna þeim störfum sem inna
þurfti af höndum, kostulegt. Dæmigert skúffufyrirtæki, og eftirlitslaus
kennitöluflakkari í eigu Landsbanka Íslands. Allt í einu fannst mér ég vera
að eltast við hagamús en ekki að takast á við Golíat,“ ritar Ómar Sigurðs-
son í bréfi til Morgunblaðsins. Hann tapaði milljónum á peningamark-
aðssjóði Landsbankans.
Barist við Golíat eða hagamús
Ómar Sigurðsson
Morgunblaðið/Samsett mynd
Bankarnir og peningamarkaðssjóðir Viðskiptavinir bankanna töpuðu mismiklu á peningabréfum bankanna. Þeir
sem áttu í sjóðum Kaupþings og Glitnis töpuðu 15% en 31,2 prósentum á innlendum sjóði Landsbankans.
ÞAR sem hægt hefur verið á fram-
kvæmdum við byggingu Tónlistar-
og ráðstefnuhússins við Reykja-
víkurhöfn hafa nokkrir ráð-
stefnuhaldarar sem höfðu bókað
aðstöðu þar árið 2010 ákveðið að
leita til annarra aðila, bæði hér-
lendis og erlendis.
„Það voru margir búnir að bóka
fyrir árið 2010 og þónokkrir hafa
ákveðið að fara annað. Þeir sem
skipuleggja svona ráðstefnur eru
fljótir að flytja sig til þegar þeir
sjá að húsið verður ekki tilbúið á
tíma,“ segir Þórhallur Vilhjálms-
son, markaðs- og kynningarstjóri
eignarhaldsfélagsins Portus.
Eignarhaldsfélagið er eigandi
tónlistarhússins og mun það einnig
annast rekstur hússins. Sam-
kvæmt áætlun átti tónlistarhúsið
að vera tilbúið í desember 2009.
Nú er ekki lengur unnið á tvískipt-
um vöktum og um helgar eins og
áður.
„Það er verið að bíða og sjá til
hvaða ákvarðanir verða teknar í
málinu,“ segir Þórhallur.
Portus, sem er í eigu Lands-
bankans og Nýsis, samdi við ríkið
og Reykjavíkurborg um að byggja
tónlistar- og ráðstefnuhús við
austurhöfnina. Óljóst er hvernig
fjármagna á þær framkvæmdir
sem eftir eru en verkið er um það
bil hálfnað. ingibjorg@mbl.is
Leita annað
með ráðstefnur
Afbókanir vegna tafa á verklokum
Morgunblaðið/Ómar
Tónlistarhúsið Tafir á verklokum.
TILLAGA um siðareglur fyrir borgarfulltrúa í Reykja-
vík var lögð fyrir borgarráð í gær og var samþykkt að
vísa henni áfram til umfjöllunar hjá borgarstjórnarflokk-
unum. Mun vera um að ræða fyrstu siðareglurnar í ís-
lensku stjórnkerfi fyrir kjörna fulltrúa.
Í samþykkt borgarráðs er lagt til, að reglurnar verði
unnar undir forystu stýrihóps, sem borgarstjóri skipi í
samráði við stéttarfélög og fulltrúa embættismanna.
Í tillögunni um siðareglurnar segir, að markmið þeirra
sé að skrá og skilgreina þá háttsemi, sem kjörnir fulltrú-
ar skuli sýna af sér við öll störf. Þá er einnig fjallað um
starfsskyldur kjörinna fulltrúa, valdmörk og hagsmuna-
árekstra.
Í einni lagagreininni er fjallað um gjafir og fríðindi en
verið er að útfæra þær nánar og einnig um boðsferðir,
aukastörf og stjórnarsetur kjörinna fulltrúa.
Í reglunum er sérstök grein um trúnað, að kjörnir
fulltrúar gæti þagnarskyldu um það, sem þeir fá vitn-
eskju um í starfi sínu en leynt á að fara vegna einka- eða
almannahagsmuna. Þá er fjallað um stöðuveitingar, að
farið skuli að lögum í því efni, og loks segir, að siðaregl-
urnar skuli vera aðgengilegar starfsfólki borgarinnar, al-
menningi og fjölmiðlum á heimasíðu borgarinnar.
Samstaða var í borgarráði um að vísa tillögunni áfram
til borgarstjórnarflokkanna en Ólafur F. Magnússon lét
bóka, að hann saknaði þess, að borgarfulltrúum skyldi
ekki gert að upplýsa um fjárframlög til þeirra í prófkjöri.
Þau gætu valdið hagsmunaárekstri.
Einhugur í borgarráði um
siðareglur fyrir borgarfulltrúa
ÁRVAKUR, útgáfufélag Morgun-
blaðsins og mbl.is, hefur samið við
Nýja Glitni um skammtímafjár-
mögnun rekstrarins á meðan unnið
er að endurfjármögnun félagsins. Í
gær var lokið við að greiða út laun til
starfsmanna, sem greiða átti um síð-
ustu mánaðamót.
Að sögn Einars Sigurðssonar, for-
stjóra Árvakurs, hefur félagið átt í
lausafjárerfiðleikum, bæði vegna
ástandsins sem skapaðist vegna
hruns fjármálakerfisins og einnig
vegna þess að blaðið 24 stundir var
lagt niður. Einar segir að starfs-
menn þess blaðs hafi síðan þá verið
áfram á launaskrá án þess að tekjur
kæmu á móti.
Einar segir að næst verði hafist
handa við að ræða við þá sem hafa
lýst áhuga á að koma að rekstri fé-
lagsins. Þar sé um að ræða á annan
tug aðila. Stefnt sé að því að þeim
viðræðum verði lokið á næstu vikum.
Árvakur og Nýi Glitnir
semja um fjármögnun
BÆJARSTJÓRI Akureyrar, Sigrún Björk Jak-
obsdóttir, og sveitarstjóri Grímseyjar, Garðar Óla-
son, undirbúa nú sameiningu sveitarfélaganna.
Hyggjast þau óska eftir leiðbeiningum frá sam-
gönguráðuneytinu. „Það er ekki víst að það þurfi að
halda kosningar í Grímsey og á Akureyri um sam-
eininguna. Við ætlum að óska eftir því við ráðuneyti
sveitarstjórnarmála að það liðki til fyrir þessu,“ seg-
ir Sigrún Björk.
Kosið var um sameiningu Hríseyjar og Akureyrar
samhliða forsetakosningunum 2004. Sigrún Björk
gerir ráð fyrir því að sérstakt hverfisráð verði í
Grímsey eins og í Hrísey. „Það er tengiliður við bæj-
arkerfið. Síðan eru haldnir reglulegir borgarafundir
eða viðtalstímar eftir því sem verkast vill.“
Garðar segir að sér sýnist sem Grímseyingum lít-
ist vel á sameininguna. „Ég held að þetta breyti ekki
miklu en vona bara að við verðum Grímseyingar
áfram.“
Sigrún bendir á að stjórnsýslan verði bæði fag-
legri og sterkari. ingibjorg@mbl.is
Vona að við verðum
Grímseyingar áfram