Morgunblaðið - 12.12.2008, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 12.12.2008, Qupperneq 8
8 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 2008 Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is „VIÐ erum ekki komin á leiðarenda, ég held að það sé fjarri því. Þetta er eitt skref af mörgum. Vonandi þurf- um við ekki að taka fleiri svona stór en þau geta verið af öðru tagi,“ sagði Geir H. Haarde forsætisráðherra í gær þegar kynntar voru tillögur rík- isstjórnarinnar um niðurskurð fyrir aðra umræðu fjárlaga. Með 45 millj- arða niðurskurði á að koma í veg fyr- ir að halli á ríkissjóði fari í 215 millj- arða króna. Í tillögum stjórnarinnar er gert ráð fyrir að halli á rekstri rík- issjóðs verði 165-170 milljarðar á næsta ári, en samkvæmt fjárlaga- frumvarpi frá því í október átti hall- inn að verða 57 milljarðar. Geir sagði að við bankahrunið hefðu aðstæður breyst mikið, tekjustofnar væru að hverfa og annað að rýrna með lægri tekjum og minni umsvifum. Bæði kemur til niðurskurðar á nú- verandi rekstri og frestun verkefna hjá ríkinu. „Við gerum ráð fyrir því að dregið verði úr framkvæmdum fyrir sem nemur 11 milljörðum, dregið verði úr rekstrarkostnaði sem nemur 13 milljörðum. Dregið verði úr tilfærslum til hinna ýmsu hópa sem þeirra hafa notið um 11 milljarða. Alls eru þetta 42 milljarð- ar og gert er ráð fyrir að þeir þrír sem vantar skili sér þegar unnið verður að endanlegri útfærslu frum- varpsins. Þetta eru 45 milljarðar og við erum ekki úrkula vonar um að það verði hægt að ganga lengra.“ Tekjuskattur verður hækkaður um 1% úr 22,75% í 23,75%. Einnig verður heimild veitt til hækkunar á útsvari sveitarfélaga. Ráðherrarnir lögðu áherslu á reyna ætti að lágmarka byrðar tekjulægri hópa. Geir sagði að ekki yrðu á þessu stigi gerðar breyt- ingar á barna- og vaxtabótum. Per- sónuafsláttur myndi hækka. Standa vörð um tekjulægstu hópana Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utan- ríkisráðherra benti á að lágmarks- framfærslutrygging almannatrygg- inga hækkaði til jafns við hækkun vísitölu neysluverðs á árinu 2008. Það þýddi um 20% hækkun um áramót fyrir tekjulægsta hópinn og 9,6% hækkun fyrir aðra bótaþega. „Þannig erum við að standa vörð um tekju- lægstu hópana,“ sagði hún. Samdráttur í nýframkvæmdum á næsta ári verður 11 milljarðar króna. Mest verður um niðurskurð í vega- framkvæmdum og áhersla er lögð á að framkvæmdir sem ráðist verður í séu mannaflsfrekar. Dregið verður úr fjölgun leiguíbúða, húsbyggingu á vegum Stofnunar Árna Magnússonar verður slegið á frest sem og nýbygg- ingu fangelsis á Litla-Hrauni. Þá kom fram á fundinum að til stæði að fresta framkvæmdum vegna nýrrar flugvélar og varðskips Land- helgisgæslunnar. Spurður um þetta segir Björn Bjarnason dómsmálaráð- herra hins vegar að áætlun um smíði varðskipsins haldist þó að greiðslur kunni að færast til. „Ekki komin á leiðarenda“  Skera á niður um 45 milljarða í ríkisrekstri á næsta ári til að minnka halla á ríkissjóði  Ríkisstjórnin segir vörð staðinn um tekjulægri hópa  Skorið niður í vegaframkvæmdum og byggingum frestað Morgunblaðið/RAX Niðurskurður Bæði kemur til niðurskurðar á núverandi rekstri og frestun verkefna hjá ríkinu á næsta ári. Í HNOTSKURN »Sumar sparnaðar-aðgerðanna kalla á reglugerðarbreytingar sem eru á valdi ríkisstjórn- arinnar. »Öðru þarf að breyta meðlögum og eitt stórt frum- varp, bandormur, verður lagt fram á þingi eftir helgina vegna þessa. »Gert er ráð fyrir aðtekjur ríkissjóðs fari á næsta ári niður fyrir 400 milljarða. »Ríkisstjórnin segir aðsparnaður eigi að koma sem minnst niður á velferð- arkerfinu, menntakerfinu, heilbrigðiskerfinu og lög- gæslu. »Ýmsar sparnaðarkröfurverða gerðar. M.a. er gert ráð fyrir að sjúkrahús og heilsugæsla skeri niður um 3%, en 5% sparnaðar- krafa verði á stjórnsýslu- stofnanir, eins og ráðuneytin sjálf. »Spara á hjá Lánasjóði ís-lenskra námsmanna um einn milljarð. MEÐAL þess sem ríkisstjórnin leggur til er að sveit- arfélögum verði heimilað að hækka útsvar sitt um 0,25%, og verði að hámarki 13,28%, segir Halldór Hall- dórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Hann telur líklegt að nokkur sveitarfélög, sérstaklega á landsbyggðinni, muni nýta sér heimildina. „Þau voru mjög aðþrengd fyrir,“ bendir hann á. Hins vegar hafi töluverður fjöldi sveitarfélaga lýst því yfir að þau muni ekki auka álögur á íbúa að sinni. Þá megi nefna að sveit- arfélög á borð við Garðabæ og Seltjarnarnes nýti ekki í dag hámarksútsvar, en langflest séu í hámarkinu, þar á meðal Reykjavík, þar sem séu um 115 þúsund íbúar. Sveitarfélög muni endurskoða fjárhagsáætlun sína á þriggja mánaða fresti á árinu 2009 og Halldór telur að mörg þeirra muni vafalaust velta fyrir sér hækkun útsvars. Hann segist hafa fengið staðfest frá ríkisstjórninni að rík- ið muni áfram greiða aukaframlag í jöfnunarsjóð sveitarfélaga þótt það lækki úr 1,4 milljörðum í einn milljarð. Þá muni ríkið áfram greiða fast- eignaskatta af sínum eignum eins og sveitarfélögin hafi haldið fram að það eigi að gera. Hærra útsvar blasir víða við Halldór Halldórsson ENGIN breið sátt næst á vinnumarkaði þegar rík- isstjórnin ræðst að þeim sem standa höllustum fæti. Þetta segir Gylfi Arnbjörnsson, formaður Alþýðu- sambands Íslands, um tillögur um niðurskurð hjá ríkinu á næsta ári, sem kynntar voru í gær. Hann segir ljóst að endurskoðun kjarasamninga, sem unnið hafi verið að undanfarið, verði frestað fram í janúar. „Við gerðum viðsemjendum okkar grein fyrir því í [gær]morgun að við treystum okkur ekki til að halda þeim viðræðum áfram. Okkur þykir einsýnt að viðfangs- efni næstu daga og fram að jólum verði að glíma við rík- isstjórnina.“ Hvort takist að fá hana inn á vitrænar brautir sé spurning. „Ég þori ekki lengur að vera bjartsýnn um að það tak- ist.“ Gylfi gagnrýnir útfærslu ríkisstjórnarinnar á niðurskurðinum. Lífskjör öryrkja og lífeyrisþega verði skert harkalega. „Að kalla það að standa vörð um velferðina finnst mér vera öfugmæli aldarinnar,“ sagði hann. Þá sé einnig verið að ráðast á byggingageirann, þar sem stefni í 50% atvinnu- leysi. Vandinn tvöfalt meiri Gylfi Arnbjörnsson „Það er ákveðin viðleitni hjá ríkisstjórninni að bæta hag þeirra sem verst eru staddir,“ segir Halldór Sævar Guð- bergsson, formaður Öryrkjabandalagsins (ÖBÍ), um til- lögur ríkisstjórnarinnar. Vísar hann til hækkunar um 19,9% til þeirra sem hafa lægstu bæturnar. Aðrir bóta- þegar hækki um 9,6%. „Við teljum að ef farið yrði að lög- um um almannatryggingar ætti sá hópur að fá 13% hækkun um áramótin,“ segir Halldór. Þarna virðist menn því vera að búa til jöfnuð milli öryrkja. „En ég hefði viljað sjá menn búa til jöfnuð í samfélaginu, til dæmis með því að setja á hátekjuskatt,“ segir Halldór. Hjá ÖBÍ eigi menn eftir að skoða tillögurnar þegar þær koma fram. Eftir eigi t.d. að koma í ljós hvar niðurskurðurinn í heil- brigðiskerfinu verður. Til stóð á aðalstjórnarfundi bandalagsins í gær að setja á stofn aðgerðahóp sem fengi það verkefni að fara yfir fjárlögin og vinna hratt. Jafna með hátekjuskatti Halldór Sævar Guðbergsson Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur og Ingibjörgu B. Sveinsdóttur EKKI er unnt að mæla með því að félagar í Tannlæknafélagi Íslands skrifi undir óbreyttan samning vegna forvarnaskoðunar 3 og 12 ára barna sem kynntur var stjórn félagsins 1. desember síðastliðinn. Þetta segir í ályktun sem sam- þykkt var á félagsfundi tannlækna í gærkvöld. Í ályktuninni segir jafnframt að mikill meirihluti félaga í tann- læknafélaginu hafi gengið að samningnum um forvarnaskoðun, sem er foreldrum að kostn- aðarlausu, með það að leiðarljósi að þar væri stigið mikilvægt skref í rétta átt. Eindreginn ásetningur hafi verið hjá samningsaðilum að útvíkka síðan samninginn til hags- bóta fyrir fleiri aldurshópa. Tannlæknafélagið segir stjórn- völd algjörlega hafa brugðist þeirri skyldu sinni að tryggja við- unandi tannheilsu íslenskrar æsku. Verulegt áhyggjuefni „Það er mjög nauðsynlegt að börn komist til tannlæknis, til að mynda í forvarnaskoðunina sem þriggja og tólf ára börnum hefur verið boðið upp á,“ segir Hólm- fríður Guðmundsdóttir, tannlæknir hjá Lýðheilsustöð, sem segir það jafnframt áhyggjuefni hækki tann- læknar taxta sína vegna 40 til 50 prósenta hækkunar á aðföngum. Margrét María Sigurðardóttir, umboðsmaður barna, tekur í sama streng. „Það er áhyggjuefni að ekki sé búið að framlengja samn- inginn,“ segir hún og bætir við að væntanlegar hækkanir á taxta tannlækna séu ekki síður áhyggju- efni. Óvæntir erfiðleikar Reynir Jónsson, tryggingayfir- tannlæknir hjá Sjúkratryggingum Íslands, segir samninginn um for- varnaskoðunina hafa verið tíma- bundinn samning til reynslu. „Það átti að þróa samninginn og skoða betur,“ segir Reynir. Eng- inn hafi hins vegar séð fyrir nú- verandi efnahagsörðugleika. „Ég veit þó að rætt hefur verið við tannlækna og þeim boðið að halda þessum samningi áfram og ég veit að endurgjald fyrir þessa þjónustu í fyrra var verulega hátt.“ Hann bendir líka á að gjaldskrá endurgjalds er alfarið ákveðin af heilbrigðisráðuneytinu og breyt- ingar á henni eru ekki á hendi Sjúkratryggingasjóðs, sem sér eingöngu um afgreiðslu reikning- anna samkvæmt lögum og reglum. Tannlæknar hafna óbreyttum samningi um forvarnaskoðun 3 og 12 ára barna Börn verða að komast til tannlæknis Morgunblaðið/Jim Smart Tannheilsa Nauðsynlegt er að börn komist til tannlæknis og hefur þriggja og tólf ára börnum verið boðið upp á ókeypis forvarnaskoðun.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.