Morgunblaðið - 12.12.2008, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 12.12.2008, Qupperneq 10
10 Fréttir MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 2008 Í leiðara Morgunblaðsins fyrr ívikunni var fjallað um hug- myndir um einhliða upptöku evru hér á landi. Þar stóð að margir hefðu talið málið afgreitt með skýrslu Evrópunefndar undir for- ystu Björns Bjarnasonar, sem skil- aði skýrslu í fyrravor og taldi ein- hliða upptöku óraunhæfan kost.     Björn Bjarna-son vitnaði til leiðarans á heimasíðu sinni og skrifaði: „Ég er einn þeirra, sem töldu málið ekki afgreitt með skýrslu Evr- ópunefnd- arinnar, sem ég veitti forystu. Mér þótti nefndin ekki fá fullnægjandi svör um mál- ið. Hélt ég því áfram að skoða það, eftir að nefndarstarfinu lauk, eins og þeir vita, sem fylgst hafa með skrifum mínum um það. Umræður síðustu vikna sýna einnig, að full ástæða er til að velta þessum kosti vel fyrir sér í núverandi vanda.“     Björn skrifaði á sömu heimasíðuí júlí 2007, eftir að Valgerður Sverrisdóttir hafði rætt um mögu- leikann á einhliða upptöku evru: „Hvers vegna tekur Valgerður ekki mark á öllum sérfræðing- unum, sem segja, að upptaka evru án aðildar að Evrópusambandinu sé glapræði? Hvers vegna að lemja hausnum við steininn og láta eins og unnt sé að taka upp evruna með einu pennastriki? Hverjum er greiði gerður með málflutningi af þessu tagi?“     Þarna virðast engar efasemdir íhuga dómsmálaráðherrans um að niðurstaða skýrslu Evrópu- nefndarinnar standi.     Hvenær hætti upptaka evru ánaðildar að Evrópusambandinu að vera glapræði? Eða sérfræðing- arnir sem höfðu uppi varnaðarorð að vera marktækir? Björn Bjarnason Höfuð og steinar                      ! " #$    %&'  (  )                       *(!  + ,- .  & / 0    + -                            ! " 12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (  #  # # # #     $  $ $ $ $     :  3'45 ;4 ;*<5= >? *@./?<5= >? ,5A0@ ).?   %     %                                           *$BC               ! " #  !    ! !  *! $$ B *! &$ '!  $ !   "! () " <2 <! <2 <! <2 & !' * +  ,-. *"/  C -                  B  $%   &'%   %(! )%       *)!  *  +  ! ,  ,   )%    - +   /    .+    "  &'%      (%      /  %   01**"22 *"!( 3" .("+  Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ HALLDÓR STAKSTEINAR VEÐUR ÞAÐ vakti óneitanlega mikla athygli þegar það kom í ljós að dánartilkynning, sem birtist á síðum Morgunblaðsins í fyrradag, reyndist vera upp- spuni frá rótum. Maðurinn, sem sagður var lát- inn, reyndist vera á lífi og afplánar dóm á Litla- Hrauni. Þetta var vinnustaðagrín sem gekk of langt, segir sá sem bjó til auglýsinguna. „Þetta átti ekkert að fara neitt lengra,“ sagði Sigurbjörn Adam Baldvinsson, sem einnig af- plánar dóm á Litla-Hrauni, í samtali við mbl.is. Það hafi verið mistök að tilkynningin birtist í Morgunblaðinu. Sigurbjörn vísar því alfarið á bug að um hafi verð að ræða tilraun til fjársvika. Í dánarauglýs- ingunni segir að maðurinn hafi látist eftir lang- varandi veikindi og var þeim sem vildu minnast hans bent á reikningsnúmer. Reikningurinn og kennitala, sem upp voru gefin, eru Sigurbjörns sem aðspurður segist ekki hafa hugmynd um hver sendi dánartilkynninguna til birtingar í blaðinu. Lögreglan á Selfossi, sem hefur málið til rann- sóknar, hefur tekið skýrslu af Sigurbirni og öðr- um sem málið varðar. Vinnustaðagrín sem gekk of langt Fangi á Litla-Hrauni segir birtingu falskrar dánartilkynningar mistök Morgunblaðið/RAX Litla Hraun Lögreglan á Selfossi hefur tekið skýrslu af þeim sem taldir eru tengjast málinu. NÝ HÁLENDISBÓK! SKRUDDA Eyjarslóð 9 - 101 Reykjavík s. 552 8866 - skrudda@skrudda.is www.skrudda.is Einstök bók um ævintýralegar jöklaferðir um hávetur, samskipti jeppamanna og leiðir og landslag á hálendinu. Frábær bók handa öllu áhugafólki um hálendið og fjallaferðir! MÆÐRASTYRKSNEFND Reykja- víkur fær í dag, föstudag, afhenta Þjóðarskútuna frá Víkurvögnum. Fyrirtækið fékk 186 manns til að að- stoða sig við að búa til Þjóðarskút- una. Myndir af öllum sem þátt tóku í verkefninu eru á skútunni. Skútan verður nú nýtt sem söfnunarbaukur til aðstoðar Mæðrastyrksnefnd en sífellt fleiri leita aðstoðar hennar, sérstaklega nú fyrir jólin. Afhendingin fer fram í Smára- lind kl. 17 í dag, á 2. hæðinni fyrir framan Debenhams. Þjóðarskútan afhent

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.