Morgunblaðið - 12.12.2008, Síða 16

Morgunblaðið - 12.12.2008, Síða 16
16 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 2008 Rannsókn í refsimáli gæti síðar spillst FRÉTTASKÝRING Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur ben@mbl.is OPINBER rannsókn í refsimáli vegna bankahrunsins gæti spillst sé ekki tryggt að sérstök rannsókn- arnefnd vegna hrunsins starfi sam- kvæmt ákvæðum stjórnarskrár og Mannréttindasáttmála Evrópu, að mati lögfræðinga. Lagafrumvarp um störf nefndarinnar er nú til afgreiðslu hjá allsherjarnefnd Alþingis. Morgunblaðið greindi í gær frá áhyggjum laganefndar Lögmanna- félagsins vegna frumvarpsins, sem hún telur að stangist í veigamiklum atriðum á við mannréttindi, s.s. þagn- arskyldu og friðhelgi einkalífs. Eva B. Helgadóttir, formaður laganefnd- arinnar, undirstrikar að félagið sé ekki andvígt því að lög um rannsókn bankahrunsins séu sett. Hins vegar sé mikilvægt að vandað sé til verka við lagasetninguna, svo ekki sé hætta á að lögin fari að virka gegn tilgangi sín- um. Helst vekja áhyggjur ákvæði um meðferð upplýsinga sem sérstök rannsóknarnefnd aflar. „Segjum t.d. að við rannsókn nefndarinnar verði til gögn um glæp sem einstaklingur hef- ur framið,“ segir Eva. „Þegar til op- inberrar rannsóknar kæmi gætu þessar upplýsingar ónýst hafi ekki verið passað upp á réttindi sakborn- ings við nefndarrannsóknina.“ Lært af olíumálinu Undir þetta tekur Björg Thor- arensen, lagaprófessor við HÍ. „Það er hætta á að ef reglur um máls- meðferð, réttarstöðu manna við rann- sókn og meðferð upplýsinga eru óskýrar komi síðar í ljós að brotið hafi verið gegn stjórnarskrárvörðum rétt- indum manna. Það gæti orðið til þess að rannsókn sakamáls sem síðar er höfðað ónýttist. Við þekkjum svipuð dæmi t.d. úr olíumálinu svokallaða, þar sem samkeppnisrannsókn og lög- reglurannsókn sköruðust og ekki voru skýrar reglur um hvernig fara ætti með gögn sem aflað var í rannsókn samkeppnisyfirvalda. Að auki voru lagaákvæði um réttarstöðu manns við málsmeðferðina óljós.“ Hún bætir við að samkeppnislögunum hafi verið breytt þannig að skýrt sé að ekki megi nota upplýsingar sem koma fram í samkeppnismáli gegn manni í saka- máli. Meðal þess sem laganefnd Lög- mannafélagsins gagnrýnir er ákvæði í frumvarpinu sem heimilar rannsókn- arnefndinni að birta upplýsingar telji hún að almannahagsmunir séu ríkari en hagsmunir þess er upplýsingarnar varða. Eva bendir á að þarna reiði frumvarpið sig á skynsemi einstakra nefndarmanna. Betra væri að setja í lögin skýrar reglur um hvaða sjón- armið eigi að gilda við birtingu slíkra upplýsinga, enda brjóti birting þeirra í bága við friðhelgi einkalífs viðkom- andi. Hún segir ákveðinn eðlismun á þessu og þegar friðhelgi einkalífs sé rofin, t.d. með því að hlera síma grun- aðs manns í sakamáli, því slíkur gjörn- ingur sé háður úrskurði dómara. Eðlileg krafa samfélagsins Lagafrumvarpið felur í sér marg- vísleg frávik frá því venjulega, að sögn Bjargar, t.a.m. hvað varðar rannsókn- arnefndina og málsmeðferðina fyrir henni. Hún telur þó að markmið frum- varpsins sé skynsamlegt, enda séu uppi afar sérstakar aðstæður í þjóð- félaginu. „Það er eðlileg krafa samfélagsins að það fari fram rannsókn á ástæðum og aðdraganda bankahrunsins. Rann- sókn eins og þessi gæti leitt til þess að málum verði vísað í ákveðna farvegi, t.d. til sakamálarannsóknar, og jafn- vel rannsóknar um brot á ráðherra- ábyrgðarlögum, auk þess að veita yf- irsýn yfir aðdragandann.“ Því er ekki óeðlilegt, að mati Bjarg- ar, að nefndin fái ákveðnar rannsókn- arheimildir. Hins vegar sé ljóst að nefndinni beri að virða mannréttinda- ákvæði stjórnarskrárinnar í störfum sínum, t.d. við meðferð upplýsinga um persónuleg málefni. Eva er því sammála að svo ýktar aðstæður geti kallað á óhefðbundnar aðferðir. „Það er vel þekkt að setja svona nefndir og Danir hafa t.a.m. mikla reynslu af því, ekki síst út frá svokölluðu Tamílamáli,“ segir hún. „Það mál fór alla leið fyrir Mannrétt- indadómstól Evrópu sem úrskurðaði að málsmeðferðin hefði verið í lagi.“ Hún segir því hægt að læra af reynslu annarra í þessum efnum. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Alþingi Vonast er til að Allsherjarnefnd afgreiði í dag lagafrumvarp um rannsókn á aðdraganda og orsökum falls íslensku bankanna. Í HNOTSKURN »Rannsóknarnefnd er heim-ilt að birta upplýsingar, t.a.m. um fjármál manna, til að rökstyðja niðurstöður sínar. » Í frumvarpinu er ákvæðium að skylda til upplýs- ingagjafar sé ávallt ríkari þagnarskyldu. »Lögfræðingar vara við ofmiklum flýti við setningu laga að undanförnu, sem snerta mikilsverð mannrétt- indi. Birgir Ármannsson, formaður allsherjarnefndar, segir frumvarp um rann- sókn á bankahruninu vera á lokastigi í umfjöllun nefndarinnar. „Við höfum verið að fara yfir fjölmörg álitaefni, m.a. þau sem lögmannafélagið vekur athygli á,“ segir hann en gefur ekkert upp um hvort og þá hvaða breytinga sé að vænta á því. „Niðurstaða okkar hlýtur að mótast af því að frumvarpið nái þeim til- gangi sínum að hægt sé að kalla fram nauðsynlegar upplýsingar og stað- reyndir varðandi hrun bankanna, og eins af sjónarmiðum um réttaröryggi og mannréttindi.“ Hann vonast til þess að allsherjarnefnd ljúki umfjöllun sinni um frum- varpið í dag. „Við reynum að vinna málið hratt en á hinn bóginn viljum við líka vinna það vel,“ segir hann og bætir því við að forseti Alþingis leggi frumvarpið fram með stuðningi formanna allra flokkanna sem þar sitja. Niðurstöðu að vænta í dag Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn TEKIST var á um lögmæti rannsókna á verðsamráði olíufélaganna á sínum tíma og hvort rannsókn gæti bæði farið fram á stjórnsýslustigi, þ.e. hjá samkeppn- isyfirvöldum og hjá lögreglu. Þegar Hæstiréttur staðfesti frávísun héraðsdóms í máli ákæruvaldsins gegn fyrrv. forstjórum olíufélag- anna gagnrýndi Hæstaréttur að engin fyrirmæli væri að finna í samkeppnislögunum um skil á milli rann- sókna lögreglu og samkeppnisyfirvalda. M.a. væri ekki kveðið á um, hvort gögn eða upplýsingar sem aflað var við rannsókn samkeppnisyfirvalda yrðu afhent lög- reglu eða hvort nota mætti upplýsingar, sem forsvars- menn félaganna hefðu veitt, sem sönnunargögn í op- inberu máli gegn þeim. Ekki væri sýnt að forstjórarnir hefðu notið réttinda sakborninga sem tryggð eru í stjórnarskrá og mannréttindasáttmála í lögreglurann- sókninni í kjölfar rannsóknar samkeppnisyfirvalda. Því var ekki hægt að reisa ákæru á lögreglurannsókninni. omfr@mbl.is Tvöföld rannsókn gagnrýnd • Bylting fyrir bakið • Styrkir magavöðvana • Frelsi í hreyfingum • Margviðurkenndur stóll Swopper vinnustóllinn www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25 Opið laugardaga til jóla kl. 11-16 Saltfiskur er mikilvægur hluti af matarmenningu íslensku þjóðarinnar frumkvöðlafyrirtæki ársins  - fiskvinnsla frá árinu  Frábær gjöf handa Íslendingum út um allan heim! Ekta saliskur lbúinn l útvötnunar. Tímarnir breytast en saliskurinn frá Ekta ski, þessi gamli góði með íslenskum kartöum og smjöri, stendur alltaf fyrir sínu. Sérútvatnaði saliskurinn er sérstaklega hentugur í seiðandi saliskré Fæst um allt land. Hafðu samband! 466 1016 www.ektafiskur.is Bæklingur á 4 tungumálum ummeðferð og eldun fylgir með. Basarinn - ódýrt Nytjamarkaður kristniboðsins, Grensásvegi 7, sími 533 4900 Opið fram að jólum, mánud.- föstud kl. 12-17, laugardaga kl. 11-16. Lokað milli jóla og nýárs. Fjölbreytt úrval af vörum á góðu verði Bækur Salts ehf, jólakort, gjafavörur frá Afríku og Asíu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.