Morgunblaðið - 12.12.2008, Page 17
Fréttir 17INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 2008
HUGMYNDIR
um ríflega 400
milljóna króna
sparnað með því
að færa verkefni
Varnarmála-
stofnunar undir
stofnanir dóms-
málaráðuneyt-
isins og hugs-
anlega
samgöngu-
ráðuneytis eru fugl í skógi en ekki í
hendi. Þetta sagði Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir utanríkisráðherra á
blaðaðmannafundi í tengslum við
niðurskurðartillögur ríkisstjórn-
arinnar í gær.
Hugmyndir úr Skógarhlíð
„Það eru hugmyndir sem hafa
komið úr Skógarhlíðinni en er ekki
alveg sannfæring fyrir í utanrík-
isráðuneytinu að fái staðist,“ sagði
Ingibjörg en áréttaði að mikil hag-
ræðingar- og sparnaðarkrafa væri
gerð til Varnarmálastofnunar eða
sem nemur rúmlega 250 milljónum
króna. „Stofnunin verður að glíma
við það og hún hlýtur auðvitað að
skoða alla möguleika,“ sagði Ingi-
björg og bætti við aðspurð að utan-
ríkisráðuneytið þyrfti vitanlega að
koma að þeirri vinnu. halla@mbl.is
Sparnaðartillögur
fugl í skógi
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir
ÞANN 4. desember sl. hlutu Inga
Rós Þráinsdóttir hjartalæknir, Há-
kon Ólafsson, heila- og taugaskurð-
læknir, og Tryggvi Egilsson öldr-
unarlæknir kennsluverðlaun
læknakandítata fyrir árið 2008.
Voru verðlaunin veitt fyrir fram-
úrskarandi klíníska kennslu í dag-
legu starfi á deildum og á vöktum.
Verðlaunin voru veitt í fyrsta sinn
árið 2007, þegar þau voru veitt Þor-
birni Guðjónssyni hjartalækni.
Á Landspítalanum starfa hátt í
60 læknakandítatar og voru það
kandítatarnir sjálfir sem tilnefndu
verðlaunahafana í frammistöðu-
viðtölum sem tekin voru við þá.
Kennsluverðlaun
STUTT
samstarf milli skólanna tveggja sem
gefur frekari tækifæri til stúdenta-
skipta.
Háskóli Íslands hefur á undan-
förnum árum lagt áherslu á að efla
samstarf við virta kínverska háskóla.
Kennarar frá HÍ hafa farið og kennt
við skólana, m.a. alþjóðasamskipti,
heimspeki og mynsturgreiningu á
sviði rafmagnsverkfræði. Að auki
hafa nemendur frá Háskólanum sótt
námskeið og dvalið um lengri tíma
við kínversku háskólana. Kínverskir
stúdentar við Háskóla Íslands eru
nú 19 talsins og stunda nám í ýmsum
greinum, m.a. íslensku, tölvunar-
fræði, fjölmiðlafræði, rafmagnsverk-
fræði og raunvísindum.
HÁSKÓLINN Bejing Foreign Stu-
dies University (BFSU) bauð í
fyrsta sinn í haust upp á 4 ára nám í
íslensku og eru 16 nemendur skráðir
í námið.
Kristín Ingólfsdóttir, rektor Há-
skóla Íslands, og Gunnar Snorri
Gunnarsson, sendiherra Íslands í
Kína, heimsóttu skólann á þriðjudag
og hittu nemendur, kennara og
stjórnendur skólans. Þrátt fyrir
stuttan námstíma heilsuðu nemend-
ur og kynntu sig á íslensku auk þess
sem þau sungu íslenskt jólalag með
glæsibrag.
Í heimsókninni skrifuðu Kristín og
Peng Long, rektor skólans, undir
samstarfssamning um rannsókna-
Íslenskunám í Kína
Íslenska Kínversku nemendurnir ásamt Yan Ping Li, starfsmanni íslenska sendiráðsins í Peking, Gunnari Snorra
Gunnarssyni sendiherra, Kristínu Ingólfsdóttur, rektor HÍ, og Geir Sigurðssyni, lektor í kínverskum fræðum.
RANGLEGA var fullyrt í blaðinu í
gær að Marel hf. hygðist ekki gefa
starfsmönnum sínum jólagjafir
þetta árið. Að sögn Ylfu Edithar
Jakobsdóttur starfsmannastjóra fá
starfsmenn veglega matarkörfu
líkt og verið hefur mörg sl. ár. Hins
vegar hyggst fyrirtækið ekki gefa
helstu viðskiptavinum sínum jóla-
gjafir heldur gefa andvirði þeirra
til mæðrastyrksnefndar.
Marel gefur starfs-
fólki matarkörfu