Morgunblaðið - 12.12.2008, Page 18
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 2008
FRÉTTASKÝRING
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
EITT þekktasta dæmið um viðskipti,
þar sem sama persóna situr beggja
vegna borðs við kaup og sölu, er kaup
Baugs á Vöruveltunni, móðurfélagi
10-11 verslananna árið 1999. Var Jón
Ásgeir Jóhannesson ákærður fyrir
þessi viðskipti, en ákærunni var árið
2006 vísað frá héraðsdómi með þeim
rökum að um viðskipti væri að ræða
en ekki auðgunarbrot. Frávísunin
var staðfest af Hæstarétti.
Burtséð frá niðurstöðu dómsins er
áhugavert að skoða viðskiptin sjálf í
ljósi eignatengsla þeirra fyrirtækja
sem í hlut áttu. Málið vakti m.a. at-
hygli vegna þess að forsvarsmenn
Baugs, forstjórinn Jón Ásgeir Jó-
hannesson og aðstoðarforstjórinn
Tryggvi Jónsson, lögðu mikið á sig til
að fela raunverulegt eignarhald
Vöruveltunnar. Í þessari umfjöllun
verður ekki farið yfir þennan þátt
málsins, heldur aðeins viðskiptin sjálf
og eignatengsl þeirra sem í hlut áttu.
Vöruveltan og Fjárfang
Þann 7. október 1998 keypti Jón
Ásgeir Vöruveltuna á 1,15 milljarða
króna. Síðar var hluti hlutafjár Vöru-
veltunnar seldur félaginu Fjárfari
ehf., sem var í raun í eigu Jóns Ás-
geirs. Þá var hluti seldur Íslands-
banka og Kaupþingi.
Þegar almenningshlutafélagið
Baugur kaupir Vöruveltuna þann 21.
maí 1999 átti Jón Ásgeir því 25% í fé-
laginu, 45% voru í eigu Fjárfars og
30% í eigu Kaupþings og Lands-
banka.
Greiddi Baugur 1,48 milljarða fyrir
Vöruveltuna og fékk Jón Ásgeir 1,04
milljarða í sinn hlut. Greiddi Baugur
því 325 milljónum hærra verð fyrir
Vöruveltuna, en Jón Ásgeir hafði
greitt fyrir félagið nokkrum mán-
uðum fyrr. Vegna kostnaðar við við-
skiptin hagnaðist Jón Ásgeir og fjár-
festingarfélagið Gaumur hins vegar
að minnsta kosti um 200 milljónir
króna. Gaumur var á árunum 1998 og
1999 í eigu Jóns Ásgeirs og fjölskyldu
hans.
Baugur keypti hins vegar ekki all-
ar eignir, sem fylgdu með þegar Jón
Ásgeir keypti Vöruveltuna haustið
1998. Fasteignir félagsins voru nefni-
lega seldar Litla fasteignafélaginu,
félagi undir óbeinni stjórn Jóns Ás-
geirs, í desember 1998. Greiddi Litla
fasteignafélagið 217 milljónir króna
fyrir fasteignirnar, en seldi þær aftur
til Stoða, dótturfélags Baugs, sex
mánuðum síðar fyrir 357 milljónir
króna. Í kjölfarið var Litla fasteigna-
félagið sameinað Gaumi, sem þar
með hagnaðist um 140 milljónir á við-
skiptunum.
Högnuðust Jón Ásgeir og Gaumur
því að minnsta kosti um 340 milljónir
á viðskiptunum á kostnað hluthafa
Baugs.
Í rökstuðningi Héraðsdóms
Reykjavíkur segir að atburðirnir,
sem hér hafa verið raktir, séu ekki
lýsing á fjársvikum heldur við-
skiptum, sem vera kann að hafi verið
óhagstæð fyrir Baug hf. en hugs-
anlega hagstæð fyrir Jón Ásgeir og
aðra.
Hins vegar ber að hafa í huga að
málið, eins og öll svokölluð Baugs-
mál, var opinbert mál, höfðað af sak-
sóknara. Í slíkum málum hvílir sönn-
unarbyrði á ákæruvaldinu og harðari
sönnunarkröfur eru gerðar.
Í lögum nr. 2/1995 um hlutafélög
má aftur á móti finna ákvæði eins og í
76. gr. Þar segir að stjórn og fram-
kvæmdastjóri félags megi ekki gera
neinar þær ráðstafanir, sem bersýni-
lega eru fallnar til þess að afla
ákveðnum hluthöfum eða öðrum ótil-
hlýðilegra hagsmuna á kostnað ann-
arra hluthafa eða félagsins.
Árið 1999 átti Lífeyrissjóður
starfsmanna ríkisins 3,1% hlut í
Baugi og Lífeyrissjóður verzl-
unarmanna önnur 4,45%. Forsvars-
menn sjóðanna gerðu ekki at-
hugasemdir við viðskiptin á
opinberum vettvangi.
Á morgun verður fjallað um
viðskipti FL Group og Fons með
danska flugfélagið Sterling.
Viðskipti, ekki fjársvik
Jón Ásgeir Jóhannesson og Gaumur högnuðust um 340 millj-
ónir króna á sölu Vöruveltunnar til Baugs hf. árið 1999
;" < ;"1 +
34 =&
!#/
>'4 ,
=&
!" /
74 =&
!#/
?,( %-
0+# 4,
!" /
/+"$ #
;" <
+
!" /
Morgunblaðið/Ómar
Mál Ákæru vegna Vöruveltumálsins
var vísað frá dómi í Baugsmálinu.
Bætum samskiptin!
Gary Chapman hefur
áratuga reynslu af því að
leiðbeina hjónum um það
hvernig best sé að tjá ást
sína. Vegna þess hve ólík
við erum þurfum við að
læra og nota ástartáknmál
maka okkar. Hagnýt ráð
og fjöldi dæma um góðan
árangur við rétta tjáningu
ástar!
Alþjóðleg metsölubók.
Von þess sem misst hefur
Höfundur missti heila
fjölskyldu í flóðbylgjunni
um jólin 2004. Sorgin
helltist yfir, efinn fyllti
hugann, spurningarnar
urðu ágengar. Hvernig
getur vonin komið
til hjálpar við slíkar
aðstæður?
Bókin hefur komið út
í mörgum upplögum í
Danmörku.
Fimm táknmálástarinnar
Gary Chapman
Fimm leiðir til að tjá
maka sínum einlæga ást
Dauðinn, sorginog vonin
Flemming K
ofod-Svendsen
Bókaútgáfan Salt ehf.
saltforlag.is
Ný glæsileg bók fyrir
veiðimenn og fluguhnýtara
Hér hefur Sigurður Pálsson tekið saman í bók
fyrir bókaflokkinn Veiðiflugur í náttúru Íslands
Laugavegi 178 - S 551 6770 & 553 3380 - vesturrost@vesturrost.is - www.vesturrost.is
Vesturröst
Auglýsing um starfsleyfistillögur
Með vísan til 9. gr. reglugerðar nr. 785/1999 um starfsleyfi fyrir atvinnurekstur sem getur
haft í för með sér mengun eða mengandi starfsemi, munu starfsleyfistillögur
neðangreinds fyrirtækis liggja frammi hjá upplýsingaþjónustunni í Ráðhúsi Reykjavíkur
dagana 12. desember 2008 til 12. janúar 2009.
Rétt til að gera athugasemdir hafa eftirtaldir aðilar:
1. Sá sem sótt hefur um starfsleyfi svo og forsvarsmenn og starfsmenn tengdrar eða
nálægrar starfsemi.
2. Íbúar þess svæðis sem ætla má að geti orðið fyrir óþægindum vegna mengunar.
3. Opinberir aðilar, félög og aðrir þeir sem málið varðar.
Athugasemdir skulu vera skriflegar og sendast Reykjavikurborg - Umhverfis- og
samgöngusviði, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík, fyrir 12. janúar 2009.
Umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkurborgar
Fyrirtæki/gildistími
starfsleyfis í árum: 12
Orkuveita Reykjavíkur
Skólphreinsistöð á
Kjalarnesi/12 ár
Almenn
skilyrði
X
Sértæk
skilyrði
X
Heimilisfang
Bæjarháls 1
Húsnæði óskast til leigu
Fjármál heimilanna ehf, www.spara.is, leita að 60 til 90 fm
skrifstofuhúsnæði - 2 lokuðum rúmgóðum skrifstofum og
alrými eða 4 skrifstofuherbergjum. Húsnæðið þarf að vera
mjög snyrtilegt bæði innan dyra sem utan og útbúið
öllum nauðsynlegum síma- og nettengingum.
Óskastaða væri samnýting á móttöku og símsvörun með
öðrum fyrirtækjum í húsinu.
Upplýsingar í síma 868 0049
eða vesteinn@spara.is
Viðskipti tengdra aðila
, ,