Morgunblaðið - 12.12.2008, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 2008
Fjölmargt er hægt að gera sér til skemmtunar og fróðleiks í aðdraganda jóla og mögulegt að næra
skilningarvitin með ýmsum hætti. Morgunblaðið birtir fram til jóla upplýsingar um einhverja
þeirra viðburða sem eru á dagskrá vítt og breitt um landið.
12 dagar til jóla
TÓNLISTARSKÓLINN á Akureyri og Leikfélag Ak-
ureyrar halda hátíðartónleika í Leikhúsinu, sunnudag-
inn 14. desember kl.14:00 og 17:00. Fram munu koma fé-
lagar úr Leikfélagi Akureyrar, Stórsveit
Tónlistarskólans ásamt tónlistarkennurum og atvinnu-
tónlistarmönnum víðsvegar af svæðinu. Aðgangur verð-
ur ókeypis en tekið verður við frjálsum framlögum sem
renna munu til Hjálpræðishersins.
Einnig verður fólki gefinn kostur á að koma með inn-
pakkaðar jólagjafir fyrir börn á aldrinum 0-16 ára og
leggja þau undir jólatré Leikfélagsins.
Jólatónleikar á Akureyri
Á MORGUN, laugardaginn 13. des-
ember, kl. 13, heldur dr. Terry
Gunnell erindi í fyrirlestrarsal
Þjóðminjasafns Íslands um trú og
siði kringum íslensku jólin í ald-
anna rás, frá heiðnum goðum til
gárunga og hrekkjóttra íslenskra
jólasveina.
Fyrirlesturinn er á ensku og er
aðgangur ókeypis.
Íslenskir jólasiðir
kynntir á ensku
UM helgina verð-
ur sjarmerandi
stemning í Mý-
vatnssveit. Jóla-
sveinar verða á
ferð í Dimmu-
borgum, mark-
aður í Jarðböð-
unum og
heimalagað jólahlaðborð í Voga-
fjósi. www.visitmyvatn.is
Heill jólaheimur
Á MORGUN, laugardaginn 13. desember,
kemur Bernd Ogrodnik í heimsókn í Íþrótta-
leikhúsið á Sólheimum í Grímsnesi með
brúðuleikhúsið sitt og sýnir „Klókur ertu Ein-
ar Áskell“. Það verður mikil stemning í hús-
inu þegar brúðurnar lifna við klukkan 13:00.
Síðan geta gestir notið þess að ganga um jóla-
þorpið.
Sunnudaginn 14. desember verða, sam-
kvæmt hálfrar aldar hefð, litlu jólin með
Lionsklúbbnum Ægi í íþróttahúsinu kl. 14:00.
Hátíðlegt á Sólheimum
JÓLALJÓS, styrktartónleikar
Kirkjukórs Lágafellssóknar og org-
anistans Jónasar Þóris, verða haldn-
ir til styrktar björgunarsveitinni
Kyndli í Mosfellsbæ í ár. Tónleikarn-
ir verða haldnir í Fríkirkjunni í
Reykjavík sunnudaginn 14. desem-
ber kl. 17.00. Fram koma m.a. Egill
Ólafsson, Jóhann Friðgeir o.fl.
Miðasala við innganginn og í safn-
aðarheimilinu kl. 9-12.
Til styrktar Kyndli
JÓLABASAR verður hjá Höddu
„undir Kerlingu “ nú um helgina
frá kl. 12-16. Til sölu verður heim-
ilisiðnaður, s.s. vefnaður, prjón,
málverk, munir úr horni og sultur,
allt gert heima af iðnum vinum og
vandamönnum. Heitt ketilkaffi
ásamt sykurpúðum sem fólk getur
hitað yfir eldi í ofni. Fífilbrekka er
undir Kerlingu á milli Holtshúsa og
Holtssels í Eyjafjarðarsveit.
Jólabasar í sveitinni
STUTT
Treystið því aldrei að sjálfslökkvandi
kerti slökkvi á sér sjálf
Munið að slökkva
á kertunum
Slökkvilið Höfuðborgar-
svæðisins
Tvöfaldir punktar
í Nettó með AMEX!
Verið velkomin í Nettó
Mjódd - Salavegi - Hverafold
Akureyri - Höfn - Grindavík
ww.netto.is
Bækur á betra verði!
TILBOÐIN GILDA 12. - 14. DESEMBER
w
w
w
.m
ar
kh
on
nu
n.
is
BORÐA, BIÐJA, ELSKA
2.673 kr
3.990 kr
33%
afsláttur
MEISTARINN
OG ÁHUGAMAÐURINN
3.894 kr
5.990 kr
35%
afsláttur
VALHOPP
1.393 kr
1.990 kr
30%
afsláttur