Morgunblaðið - 12.12.2008, Page 27

Morgunblaðið - 12.12.2008, Page 27
27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 2008 GETUM við Íslendingar lært eitthvað sem máli skiptir af óför- um annarra þjóða og viðbrögðum þeirra við áföllum? Við fengum lærdómsríkt svar við þeirri spurn- ingu af vörum Görans Persson, fv. fjármála- og forsætisráðherra Svíþjóðar, í ræðu sem hann flutti fyrir fullu húsi í Hátíðasal Háskól- ans, 10. desember. Göran var sjálfur fjár- málaráðherra í ríkisstjórn jafn- aðarmanna þegar alvarleg fjár- mála- og bankakreppa reið yfir Svíþjóð á árunum 1992-95. Svíar urðu að grípa til rót- tækra ráðstafana til að verja sænsku krónuna falli (himinháir stýrivextir) og til að forða bankakerfinu frá hruni (tímabundin þjóðnýting lykilbanka). Það mæddi mikið á fjármálaráð- herranum, Persson, á þessum árum. Hann varð á tímabili óvinsælasti stjórnmálamaður þjóð- arinnar, sem er sönnun þess að hann var ekki haldinn ákvarðanafælni. Persson kom til Ís- lands í boði Viðskiptadeildar H.Í. og Félags fjárfesta til þess að miðla okkur persónulega af reynslu sinni. Að læra af reynslunni Ræða hans var mögnuð. Enginn sem hana heyrði gat velkst í vafa um að hann vildi ráða okkur heilt og miðla af dýrkeyptri reynslu. En hann tók það skýrt fram í upphafi máls síns að það er ólíku saman að jafna, hremmingum Svía á fyrri hluta tíunda áratugar síðustu aldar og því allsherjarhruni þjóðargjaldmiðils og fjár- málakerfis, sem Íslendingar standa nú frammi fyrir. Kreppan sem Íslendingar verða að fara í gegnum á næstu árum er miklum mun djúp- stæðari en sú sem Svíar upplifðu þá. Við þetta bætist, að nú er heimskreppa yfirvofandi, en al- þjóðleg uppsveifla létti undir með Svíum á sín- um tíma. Þrátt fyrir þennan mun er samt hægt að læra mikið af viðbrögðum Svía við kreppunni. Mönnum ber almennt saman um það, í ljósi reynslunnar, að Svíar hafi brugðist við vand- ræðum sínum af festu og öryggi, undir forystu Perssons. Það tók Svía 2-3 ár að vinna sig út úr kreppunni og að leggja grunn að uppbyggingarstarfi. Aðferðirnar sem Svíar beittu skiluðu árangri. Það var þetta sem Persson lagði áherslu á. Þótt sjálfur efnahags- vandinn sé um margt ólíkur þá er pólitíski vandinn hinn sami. Hann snýst um það að byggja upp traust á aðgerðum stjórnvalda og að sameina krafta þjóðarinnar í uppbyggingarstarfi. Hvernig ger- um við það? Persson lagði áherslu á þrennt, sem að hans mati, skipt- ir sköpum um árangur: Að segja sannleikann 1. Að segja þjóðinni satt: Ábyrgðarmenn þjóðarinnar verða að þora að horfast í augu við staðreyndir. Það á ekki að reyna að fegra veru- leikann né heldur fela hann fyrir þjóðinni. Það kemst hvort eð er upp fyrr en síðar. Það á ekki að vekja falskar vonir um að botninum sé náð eða að betri tíð bíði handan hornsins. Það á ekki að ljúga því að þjóðinni að hún þurfi ekki að færa fórnir né heldur að þetta verði sárs- aukalaus reynsla. Það á ekki að fegra framtíð- arspár. Ef eitthvað er, þá á að gera ráð fyrir hinu versta. Allt á að vera gegnsætt og opið fyr- ir gagnrýni. Enginn feluleikur, ekkert pukur. Það á að segja þjóðinni sannleikann umbúða- laust. Það er forsenda þess að hún fallist á að færa óhjákvæmilegar fórnir. – Geta núverandi forráðamenn Íslendinga eitthvað af þessu lært? 2. Vandinn er ekki sá að vita, hvað á að gera, heldur að þora að gera það. Kjarni vandans er sá að við – eins og þið núna – vorum sokkin í skuldir, sagði Persson. Ég þurfti þá, sem fjár- málaráðherra Svía, að fara með betlistaf í hendi fyrir rúmlega þrítuga forstjóra alþjóðlegra fjármálastofnana og slá lán. Það voru þung spor og auðmýkjandi reynsla. Árangurinn var að öllu leyti undir því kominn að geta sannfært þessa lánardrottna (markaðina) um að við myndum gera það sem þyrfti að gera til þess að geta endurgreitt skuldir okkar. Ella væri voð- inn vís. Ella hefði gjaldmiðillinn hrunið. Ella hefði verðbólgan farið úr böndunum. Ella hefði atvinnuleysið orðið óviðráðanlegt. Ella hefðum við glatað forræði eigin mála og lent undir stjórn eins konar skiptaráðanda. Þetta þýddi að öll góð ráð voru dýr. Við urðum að gera hvort tveggja: Skera niður ríkisútgjöld og hækka skatta, sem voru þó fyrir hinir hæstu í heimi. Í þessu fólst fórnarkostnaður þjóðarinnar. Sumir vildu fresta aðgerðum og milda þær í veikri von um að ástandið myndi lagast af sjálfu sér. Það var hrein óskhyggja og hefði gert illt verra, ef hún hefði fengið að ráða. Frestur er ekki á illu bestur. Við ákváðum að ráðast að rótum vand- ans strax. 3. Þriggja ára bjargráðaáætlun og útlistun á sanngjarnri dreifingu byrða: Aðgerðaáætlun sem lýsir nákvæmlega leiðum að settu marki, er lykilatriði. Það verður að binda sig við mastrið og standa af sér brotsjói, hvað svo sem á gengur. Það er vitavonlaust að ætla að grípa til aðgerða eftir hentugleikum á leiðinni eða að víkja af markaðri braut. Undanþágur koma ekki til greina því að þá munu fleiri fylgja í kjöl- farið. Það má ekki sýna neinn veikleika. Það verður að framkvæma aðgerðaáætlunina und- anbragðalaust og af festu. Þetta er forsenda þess að þjóðin láti sannfærast um, að fórnirnar séu ekki færðar til einskis. Það verður að útlista það fyrir þjóðinni frá degi til dags og af full- kominni hreinskilni að þetta sé það sem við verðum sameiginlega að gera til að ná fyr- irframskilgreindum árangri: að losa okkur af skuldaklafanum. Að koma á jöfnuði í ríkisfjár- málum, að byggja upp jöfnuð í viðskiptum við útlönd, að byggja upp gjaldeyrisvarasjóði. Að skapa forsendur fyrir lækkun skatta, þegar við höfum efni á því. Og nota bene: allt verður þetta að gerast fyrir opnum tjöldum og undir leiðarmerkjum félagslegs réttlætis. Í því felst m.a. að þeir sem komu okkur á kaldan klaka verði látnir sæta ábyrgð. Þeir sem höfðu makað krókinn í uppsveiflunni sátu uppi með verðlaus hlutabréf. Skattgreiðendur fengu framlag sitt til bjargar bönkunum að fullu endurgreitt. Sú regla skal gilda að þeir sem taka áhættu með annarra manna fé eigi líka að bera tapið. Þeir sem brutu lögin eiga að taka út sína refsingu frammi fyrir dómstólum. Auðvitað náðum við ekki til allra. Sumir létu sig hverfa. En þeir áttu þá ekki afturkvæmt á náðir sænsks samfélags. Evrópusambandið: Viðlagatrygging þjóðríkjanna Í miðri kreppunni, sagði Persson, tókum við Svíar þá ákvörðun að sækja um aðild að Evr- ópusambandinu. Við höfðum ekki að fullu unnið okkur út úr kreppunni þegar þjóðaratkvæða- greiðslan fór fram um samningsniðurstöðuna. Meirihlutinn sagði já. Bæði fyrir og eftir daginn sem þjóðaratkvæðagreiðslan fór fram hafa Sví- ar lýst óánægju sinni með Evrópusambandið. En þegar á reyndi, þegar þjóðin hafði örlög sín í eigin hendi, sagði meirihlutinn já. Það var rök- rétt niðurstaða af reynslu þjóðarinnar af kreppunni. Hið alþjóðlega fjármagn hefur vaxið hefð- bundnu sjálfstæði einstakra þjóðríkja yfir höf- uð. Við Svíar réðum ekki einir og sér við of- urvald alþjóðlegs fjármagns. Evrópusambandið er svæðisbundið svar þjóð- ríkja í Evrópu við þessum breyttu valda- hlutföllum í heiminum. Við Svíar erum frá fornu fari vinir Sameinuðu þjóðanna. En við vitum af fenginni reynslu, að þessi alþjóða- samtök þjóða heims eru því miður í lamasessi. Við vildum gjarnan sjá þau styrkjast. Svæð- isbundin samtök eins og Evrópusambandið eru skref í þá átt. Sambærileg svæðissamtök þjóða í öðrum heimshlutum, í Asíu, í Ameríku og Afr- íku, munu verða til á næstu árum. Sá tími er liðinn að einstök þjóðríki geti, ein og óstudd, staðið af sér fellibylji sem munu fara hamförum á alþjóðlegum fjármagnsmörkuðum á ókominni tíð. Evrópusambandið er eins konar tryggingarfélag þjóðríkja Evrópu gagnvart fyrirsjáanlegri vá. Margt bendir til þess að hin alþjóðlega fjármálakreppa, sem nú geisar um heimsbyggðina, eigi enn eftir að dýpka. Þá mun reyna á það sem aldrei fyrr hversu haldgóð við- lagatrygging Evrópusambandsaðild mun reyn- ast þjóðum Evrópu. Þeim sem heyrðu ræðu Görans Persson í Há- tíðasal Háskólans sl. miðvikudag 10. desember ber saman um, að þetta hafi verið mögnuð ræða. Þarna talaði myndugur þjóðarleiðtogi, sem hafði staðist álagspróf reynslunnar og hreif áheyrendur sína, af því að hann sagði sannleikann. Er til of mikils mælst að gera sambærilegar kröfur til þeirra, sem telja sig hafa umboð íslensku þjóðarinnar, til þess að leiða hana út úr þeim ógöngum, sem hún hefur ratað í? Líti nú hver í eigin barm og taki til sín, þeir sem eiga. „Gjör rétt, þol ei órétt“ Eftir Jón Baldvin Hannibalsson »Er til of mikils mælst að gera sambærilegar kröfur til þeirra, sem telja sig hafa umboð íslensku þjóðarinnar, til þess að leiða hana út úr þeim ógöngum, sem hún hefur ratað í? Jón Baldvin Hannibalsson Höfundur var utanríkisráðherra Íslands á árunum 1988-95. RAX Kímin Ráðherrar kynntu tillögur um fjárlög næsta árs á fundi í gær. Þau Geir og Ingibjörg virtust ekki ósátt þegar blaðamennirnir yfirgáfu húsið. Hjörtur J. Guðmundsson | 11. desember 2008 Kreppan er rétt að byrja í Evrópusambandinu Þegar eru farnar að berast mjög alvarlegar fréttir af efnahagsmálum aðildarríkja Evrópusam- bandsins. Spánverjar og Írar hafa um nokkurt skeið verið í mjög vondum mál- um eftir gríðarlega þenslu á undanförnum árum. Hagkerfi þeirra hafa nú brotlent með skelfilegum afleiðingum. Ráðamenn ríkjanna hafa óskað eftir aðstoð Seðla- banka Evrópusambandsins en verið neit- að um hana á þeim forsendum að bank- inn geti aðeins horft til heildarhagsmuna evrusvæðisins, ekki einstakra evruríkja. Tvö aðildarríki Evrópusambandsins, Lett- land og Ungverjaland, hafa nú leitað eftir aðstoð Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF) til þess að koma efnahagslífi sínu í lag. Sú takmarkaða aðstoð sem þeim hefur stað- ið til boða af hálfu Seðlabanka Evrópu- sambandsins og sambandsins sjálfs dugir engan veginn til. Meira: sveiflan.blog.is BLOG.IS Kristinn Jón Bjarnason | 11. desember Ekkert textavarp í sjónvarpi í gegnum ljósleiðara … Þetta er mjög spenn- andi kostur. En það kom vandamál, því Vodafone býður ekki upp á texta- varp í gegnum ljósleið- arann. Með öðrum orð- um, þeir sem fá sjónvarp í gegnum ljósleiðarann geta ekki horft á textavarpið né sett textann á – í útsend- ingu. Mér skilst að Vodafone sé að kanna hvort þeir geti virkjað textavarpið hjá þeim. Ef til vill má líkja því við að fá gall- aðan hlut í hendurnar, þar sem ljósleið- arinn á að vera fullkominn samkvæmt lýsingu Gagnaveitu Reykjavíkur. … Meira: kristinnjon.blog.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.