Morgunblaðið - 12.12.2008, Page 29
ÆTLA má að nýtt
frumvarp mennta-
málaráðherra um tak-
markanir á auglýs-
ingatíma í sjónvarpi
geti skilað Rík-
isútvarpinu stór-
auknum tekjum.
Þetta gengur þvert á
fullyrðingar Páls
Magnússonar út-
varpsstjóra í Morgunblaðinu 10.
des. sl. Þar hefur hann áhyggjur
af því að takmarkanirnar verði til
að skerða tekjur stofnunarinnar
um 350 til 400 m.kr., sem sé um
helmingsskerðing miðað við síð-
asta ár.
Ef þetta er nið-
urstaða útvarpsstjóra
er ekki annað að sjá
en hann geri í út-
reikningum sínum ráð
fyrir því að söludeild
RÚV haldi áfram á
braut stórfelldra und-
irboða á auglýs-
ingamarkaði, sem
staðfest eru í áliti
Samkeppniseftirlitsins
14. nóv. sl. Í mínum
forsendum geri ég
ekki einu sinni ráð
fyrir að RÚV hækki verð, einungis
að verðskrá verði fylgt.
Frumvarp menntamálaráðherra
gerir ráð fyrir að mögulegar heim-
ildir RÚV á sjónvarpsauglýs-
ingamarkaði séu almennt skertar.
Auglýsingatímar mega í framtíð-
inni einungis vera 6 mínútur af
hverri klukkustund í stað 12 mín-
útur eins og nú er. Milli klukkan
19 og 22 mega auglýsingatímar
vera 3 mínútur á klukkustund.
Þetta hljómar eins og miklar tak-
markanir en samkvæmt gögnum
frá Capacent um nýtingu auglýs-
ingatíma á RÚV er skerðingin
engin á almennum tíma en 35% á
kjörtíma. (Capacent könnun jan.
til okt. 2008 sýnir fram á að lengd
auglýsingatíma milli 19 og 22 er 4
til 5 mínútur og á almennum tíma
0 til 6 mínútur.) Ef gengið er út
frá því að stofnunin fylgi núver-
andi verðskrá, veiti afslætti skv.
eigin afsláttaskrá og sé með raun-
hæfa nýtingu á þeim auglýs-
ingatímum sem til ráðstöfunar
eru, er hægt að auka tekjur af
auglýsingasölu Sjónvarpsins um
ríflega 600 m.kr. á ári. Þetta er 80
til 90% tekjuauki. Einnig er miðað
við rafrænar mælingar Capacent
á áhorfi sjónvarps í þeim útreikn-
ingum sem hér eru lagðir til
grundvallar. Meðfylgjandi er
tekjuútreikningur fyrir kjörtíma.
Málið er einfalt. Fylgi RÚV
settum reglum um auglýsingasölu
getur það aukið tekjur sínar veru-
lega. Því er fyrirhuguð hækkun
nefskatts óþörf. Það er miklu
áleitnari spurning hvort nógu
langt sé gengið í takmörkunum á
RÚV á auglýsingamarkaði til að
markmið frumvarpsins um að
bæta samkeppnisumhverfi á fjöl-
miðlamarkaði nái fram að ganga.
Pétur Pétursson
skrifar um auglýs-
ingatíma í sjónvarpi
»Málið er einfalt.
Fylgi RÚV settum
reglum um auglýs-
ingasölu getur það auk-
ið tekjur sínar verulega.
Pétur Pétursson
Höfundur er framkvæmdastjóri
sölusviðs 365 miðla ehf.
RÚV á grænni grein
Umræðan 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 2008
L
jó
sm
.:
M
a
ry
E
ll
e
n
M
a
rk
Ráðg jafarstofa Hvatar
Hvöt, félag sjálstæðiskvenna í Reykjavík, hefur safnað saman fagaðilum og sérfræðingum úr sínum
röðum, sem eru tilbúnir til að leggja sitt af mörkum við að leiðbeina fólki vegna ástandsins sem
skapast hefur.
Fagaðilar og sérfræðingar veita ráðgjöf um:
Velferðarmál Fjármál heimila
Almannatryggingar Félagsmál
Skattamál Sálræna ráðgjöf
Atvinnuleysistryggingar Húsnæðislán
Einnig verða úrræði ríkisstjórnarinnar kynnt og hvernig almenningur getur nýtt sér þau.
Ráðgjafarstofan fékk góðar viðtökur um síðustu helgi og því hefur verið
ákveðið að hafa opið aftur á morgun laugardaginn 13. desember. Opið
hús frá kl. 13-16 að Skúlagötu 51.
Free consultancy due to the economic situation. Open from 13-16
on December 13th Skúlagata 51. A Polish speaking person will be
at the premises from 13-16.
Nánari upplýsingar um ráðgjafarstofuna og félagsstarf Sjálfstæðisflokksins
má finna á heimasíðu flokksins, www.xd.is, eða í síma 515 1700.
Alhliða ráðgjöf fyrir fjölskyldur og einstaklinga. Allir velkomnir!
Í KJÖLFAR hruns íslensku
viðskiptabankanna í byrjun októ-
ber, aðeins viku eftir að fjárlög
ársins 2009 voru lögð fram, var
nauðsynlegt að stokka spilin upp á
nýtt, endurskoða allar fjárfest-
ingar og framkvæmdir með hlið-
sjón af enduruppbyggingu efna-
hagslífsins. Sú ákvörðun að fresta
tímabundið öllum framkvæmdum
á vegum hins opinbera var hluti af
þessu, tekin í þeim tilgangi að geta
horft betur yfir sviðið og móta
framtíðina út frá nýjum veruleika.
Nú liggur fyrir að endurskoða
hefur þurft fjárlögin að mestu
leyti áður en frekari umræða um
þau getur átt sér stað á Alþingi.
Nú sér fyrir endann á þeirri vinnu.
Kann ég öllum sem þar hafa kom-
ið að bestu þakkir. Við uppfærslu
fjárlaga er lagður grunnur að
framkvæmdum sem í verður ráð-
ist á næsta ári. Skiptir máli að þær
séu vel ígrundaðar, og forgangs-
raðað verði út frá eftirfarandi for-
sendum: Þær séu arðbærar til
skemmri og lengri tíma, séu
mannaflsfrekar, bæði á undirbún-
ings- og framkvæmdatímabili,
skapi atvinnu á því svæði þar sem
mest hefur dregið úr atvinnu-
framboði og kalli ekki á mikinn
innflutning aðfanga.
Strembnar vikur eru að baki, en
nú blasir við endurreisnarstarf
sem kallar á samheldni og sam-
starf sem aldrei fyrr. Stjórnvöld
hafa gripið til aðgerða til varnar
heimilunum og atvinnulífinu í
landinu og vinna nú hröðum hönd-
um að uppbyggingu fjármálalífs-
ins í samvinnu við alþjóðlegar
bankastofnanir svo hér fái þrifist
öflugur fyrirtækjarekstur til lang-
frama. Líkt og áður sagði eru
ýmsar aðkallandi framkvæmdir á
vegum ríkisins kynntar í endur-
skoðuðu fjárlagafrumvarpi.
Við látum ekki stundarhags-
muni raska því starfi sem fyrir
höndum er. Við horfum frekar til
framtíðar, til komandi kynslóða.
Þetta er raunveruleikinn sem við
stöndum frammi fyrir, vandasamt
verkefni sem við verðum að klára.
Við ráðum fram úr því eins og
öðru.
Verk að vinna
Höfundur er fjármálaráðherra
Árni M. Mathiesen
MORGUNBLAÐIÐ birtir alla út-
gáfudaga aðsendar umræðugreinar
frá lesendum. Blaðið áskilur sér rétt
til að hafna greinum, stytta texta í
samráði við höfunda og ákveða hvort
grein birtist í umræðunni, í bréfum
til blaðsins eða á vefnum mbl.is.
Blaðið birtir ekki greinar, sem eru
skrifaðar fyrst og fremst til að
kynna starfsemi einstakra stofnana,
fyrirtækja eða samtaka eða til að
kynna viðburði, svo sem fundi og
ráðstefnur.
Innsendikerfið
Þeir sem þurfa að senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðs-
ins. Formið er undir liðnum „Senda
inn efni“ ofarlega á forsíðu mbl.is.
Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Ekki er lengur tekið við greinum
sem sendar eru í tölvupósti.
Í fyrsta skipti sem formið er notað
þarf notandinn að nýskrá sig inn í
kerfið, en næst þegar kerfið er notað
er nóg að slá inn netfang og lykilorð
og er þá notandasvæðið virkt.
Ekki er hægt að senda inn lengri
grein en sem nemur þeirri hámarks-
lengd sem gefin er upp fyrir hvern
efnisþátt en boðið er upp á birtingu
lengri greina á vefnum.
Nánari upplýsingar gefur starfs-
fólk greinadeildar.
Móttaka
aðsendra
greina
@ Fréttirá SMS