Morgunblaðið - 12.12.2008, Side 33
Minningar 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 2008
Fyrstu kynni mín af Rúnari voru
þegar Hljómar spiluðu undir hjá Kór
Flensborgarskóla 1974. Ólafur Þórð-
arson, stjórnandi kórsins, fékk
Hljóma til að mæta. Poppgoðin úr
Keflavík með Hafnfirðinginn Björg-
vin Halldórsson innanborðs tóku
okkur af ljúfmennsku. Þetta fannst
okkur krökkunum alveg magnað.
Fjórum árum seinna kynntumst
við Rúnar þegar ég fór að starfa við
hljómplötuútgáfu. Við áttum margar
samverustundir er við unnum saman
að réttindamálum útgefenda, tónlist-
armanna og höfunda. Rúnar var
jafnan yfirvegaður, ráðagóður og
traustur og hallaði aldrei á neinn.
Hann var heiðursmaður í starfi og
leik, talaði vel um alla og var trún-
aðarmaður margra sem leituðu til
hans.
Þegar slegið var á létta strengi tók
tónlistin völdin eins og vera bar.
María fylgdi Rúnari á slíkum stund-
um og tókust með okkur góð kynni.
Rúnar og María voru sérstaklega
samrýmd og góðar fyrirmyndir.
Samskipti okkar hjóna við þau voru
einstök og frá þeim stafaði ætíð mik-
illi hlýju sem við kunnum vel að
meta.
Undanfarin ár höfðum við Rúnar
fundað reglulega í tengslum við mál-
efni sem okkur voru hugleikin. Við
störfuðum saman innan raða Félags
íslenskra hljómplötuframleiðenda og
síðustu mánuðina í tengslum við
Hljómahöllina sem er að rísa á
Stapalóðinni, en þar fær Poppminja-
safn Íslands aðstöðu. Rúnar átti
einna stærsta þáttinn í að Popp-
minjasafn Íslands var stofnað 1997
og fylgdist vel með öllu sem þar fór
fram. Þegar tekin var ákvörðun um
að byggja nýtt hús fyrir Tónlistar-
skóla Reykjanesbæjar, tengja það
við Stapann og skapa framtíðarað-
stöðu fyrir Poppminjasafnið í sama
húsi, var leitað til Rúnars. Verkefnið
fékk fljótlega nafnið Hljómahöllin og
kunni Rúnar því vel. Hann mætti á
fjölda funda og lagði margt gott til
málanna. Þriðjudaginn 2. desember
vorum við Einar Bárðarson að ræða
málefni Hljómahallarinnar við Rún-
ar sem var fastur liður hjá okkur.
Rætt var um söfnun poppminja en
Rúnar var með augastað á hljóðfær-
um og munum sem hann ætlaði að
nálgast. Þegar fundinum lauk innti
ég hann eftir því hvernig hann hefði
það. Hann lét vel af sér og var bjart-
sýnn eins og alltaf. Þar með kvödd-
umst við og ætluðum síðan að hittast
í vikulokin til að ræða frekari fram-
vindu mála og undirrita saman bréf
til tónlistarfólks. Af þeirri undir-
skrift varð ekki, því Rúnar kvaddi
þessa jarðvist nóttina áður. Góður
félagi er fallinn frá og hans verður
sárt saknað, en minningin lifir. Mar-
íu, Baldri, Júlíusi, tengdadætrum og
barnabörnum votta ég dýpstu sam-
úð. Megi æðri máttarvöld veita ykk-
ur styrk til að takast á við sorgina og
lífið framundan.
Jónatan Garðarsson.
Enn einn af risum íslenska rokk-
tímabilsins er fallinn frá en minning
hans lifir.
Það var árið 1972, þegar ég var ný-
kominn til starfa á Íslandi, að G.
Rúnar Júlíusson kynnti mig fyrir ís-
lenska rokkinu. Hann var greinilega
heillaður af rokktónlistinni og naut
þess að spila í hljómsveit, bæði sín
eigin lög og annarra.
Margir kölluðu hann „Hinn ís-
lenska bítil“ en ég leyfði mér að upp-
nefna hann „Guðföður íslenska
rokksins“. Hann var fyrsti íslenski
tónlistarmaðurinn sem ég tók viðtal
við í starfi mínu sem plötusnúður og
seinna sem framkvæmdastjóri „AF-
RTS Radio station at the Nato base“
á Keflavíkurflugvelli. Viðtölin urðu
mörg í gegnum árin, bæði þar og síð-
ar á Aðalstöðinni. Með okkur skap-
aðist vinátta og við vorum í sam-
bandi af og til.
Eftir rokkbandið Hljóma kom
Trúbrot sem var sambland af góðu
gömlu rokki og skemmtilegu þunga-
rokki, sem samt var þó ekki of þungt.
Rúnar og félagar hans nutu sín vel
þegar þeir spiluðu í „Old Chiefs
Club“ og „Top of the Rock“ í her-
stöðinni. Þarna var líka oft Pétur
Kristjánsson ásamt Pelican, annar
hæfileikaríkur tónlistarmaður sem
kvaddi fyrir nokkrum árum.
Við munum aldrei gleyma Rúnari
og tónlistin hans mun lifa. Hann mun
alltaf verða okkar „Herra Rokk“.
Hann hefur nú horfið af hinu jarð-
neska sviði og er sjálfsagt farinn að
spila á öðru æðra með þeim Pétri,
Ricky, Eddie, Buddy, John, George,
Ritchie og öllum hinum tónlistar-
mönnunum sem farnir voru á undan
honum. Tónlistin þeirra allra mun
alltaf lifa.
Ef þú gengur um fjöruna í Keflavík
á lognkyrru, dimmu en stjörnubjörtu
kvöldi skaltu hlusta vel. Þú gætir
heyrt óminn af tónlistinni þeirra,
þessara snillinga. Og þá mun þér
verða ljóst að þeir gleymast aldrei.
Bob Murray.
Vinur okkar og samstarfsmaður
um áratuga skeið, Rúnar Júlíusson,
er skyndilega frá okkur kallaður.
Harmafregn. Hann var allt í senn
höfundur, flytjandi og framleiðandi
tónlistar. Þótt erfitt sé að fara í
mannjöfnuð má samt fullyrða að
hann var einn okkar ástsælasti tón-
listarmaður allar götur síðan hann
fyrst steig á svið með Hljómum fyrir
um 45 árum. Mörg höfðum við séð
hann á sviðinu í Glaumbæ forðum
daga vippa sér upp á hátt og örmjótt
hátalarabox til þess að leika á bassa.
Ég held að enginn annar tónlistar-
maður, hvorki fyrr né síðar, hafi get-
að leikið það eftir sem Rúnar gerði
þá. Hrifningin á tónlistinni og þess-
um stórkostlegu loftfimleikum sveif
þar vitaskuld yfir vötnum. Hann átti
salinn, var aðalmaðurinn.
Okkar kynni af honum voru sem
stjórnarmanni í samtökum hljóm-
plötuframleiðenda og síðan í Sam-
bandi flytjenda og hljómplötufram-
leiðenda (SFH). Hann er sá
einstaklingur sem lengst hefur setið
í stjórnum þessara samtaka og sá
stjórnarmanna sem lengst hefur
samfellt rekið eigið útgáfufyrirtæki
hér á landi. Hann hefur því átt ein-
stakan feril í íslensku tónlistarlífi.
Með seiglu og eljusemi hefur hann
komist í gegnum ótal hindranir sem
verða gjarnan á vegi manna eins og
hans sem standa á eigin fótum í
rekstri útgáfufyrirtækis. Hann vann
það þrekvirki að gefa út 250 plötur á
lífsleiðinni með fjölda listamanna.
Það var drjúgur spölur fyrir hann að
sækja fundi frá Keflavík, en eitt af
hans aðalsmerkjum var stundvísi.
Hann mætti alltaf fyrstur, sama
hvernig færðin á vegum var þar á
milli. Seint verður hann sagður hafa
verið æsingamaður, enda blandaði
hann sér ógjarnan í heitustu umræð-
urnar sem sköpuðust á fundum okk-
ar. Hann vildi frekar ígrunda málin
og koma með sín sjónarmið þegar
um hægðist. Hann hafði góða nær-
veru og nutum við þess bæði á al-
mennum fundum og enn ríkulegar á
aðalfundum félagsins, en þá var
löngum skylda að fundarmenn tækju
lagið.
Það var ekki ónýtt þegar María og
Rúnar tóku Blue Bayou fyrir okkur,
sem um árabil var fastur liður í
kvölddagskrá að loknum aðalfundi.
Margir muna líka Rúnar með gítar í
hendi inni í eldhúsi í húsakynnum
STEFs þegar spilað var langt inn í
sumarnóttina og allir viðstaddir tóku
að sjálfsögðu undir með Rúnari eins
og geta og þor leyfðu. Stefnumótun-
arfundurinn í Stykkishólmi í upphafi
árs og síðasti aðalfundurinn rísa
einnig hátt í minningunni um Rúnar.
Þetta voru stundir sem við geymum
vel og gleymum ei. Við erum öll rík-
ari að hafa átt þessar stundir með
Rúnari. Stundir sem vert er að
þakka. Harmur tónlistarmanna við
fráfall öðlingsins Rúnars Júlíusson-
ar er sár en sárast er fráfall hans fyr-
ir fjölskylduna hans í Keflavík.
María og Rúnar kynntust ung og
urðu þeirrar gæfu aðnjótandi að
deila af heilum hug áhuga sínum á
tónlist. Sá áhugi er borinn áfram til
næstu kynslóðar af sonum þeirra
hjóna. Við viljum að lokum koma á
framfæri innilegum samúðarkveðj-
um frá stjórn SFH til Maríu og fjöl-
skyldunnar allrar.
F.h. stjórnar SF,
Gunnar Guðmundsson,
framkvæmdastjóri.
✝ Kristmann Jóns-son fæddist á
Krossanesi við Reyð-
arfjörð 19. september
1915. Hann lést á
hjúkrunar- og dval-
arheimilinu Holtsbúð
í Garðabæ 29. nóv-
ember síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Jón Gunnarsson
bóndi á Stöðvarfirði,
f. 4. maí 1877, d. 8.
september 1970, og
Sigríður Sigurð-
ardóttir húsfreyja, f.
23. febrúar 1884, d. 13. mars 1942.
Systkini Kristmanns voru Sig-
urveig, f. 3. október 1912, d. 26. maí
2004, og Þorleifur, f. 16. apríl 1927,
d. 21. júní 1970.
Eiginkona Kristmanns er Sig-
urlaug Gísladóttir frá Hofsstöðum í
Garðabæ, f. 28. maí 1918. Foreldrar
hennar voru Gísli Jakobsson bóndi
á Hofsstöðum, f. 24. nóvember
1882, d. 23. febrúar 1962, og Sigrún
Sigurðardóttir húsfreyja, f. 29. des-
ember 1887, d. 24. desember 1977.
Börn Kristmanns og Sigurlaugar
eru: 1) Stefán Sólmundur haffræð-
ingur, f. 11. júlí 1953, kvæntist Guð-
laugu Richter rithöfundi, f. 13. maí
1953 (fráskilin). Börn þeirra: a)
Gunnar Örn forritari, f. 8. nóv-
ember 1973, sambýliskona Gyða
Einarsdóttir kennari, f. 13. mars
1978, dóttir þeirra er Freyja, f. 11.
eru Egill Kristmann Vilhelm, f. 6.
desember 1995, Ragnar Gísli Gust-
av, f. 14. febrúar 1997, Peter Ólaf-
ur Carl, f. 5. mars 1999, Jón Ing-
ólfur Sven, f. 2. september 2000,
og Valdemar Eiríkur Sture, f. 17.
maí 2004.
Kristmann gekk elsta syni Sig-
urlaugar í föðurstað: Gísli Ólafs-
son þingvörður, f. 13. nóvember
1947, kvæntur Katrínu Guðrúnu
Sigurðardóttur stuðningsfulltrúa,
f. 24. desember 1947. Dóttir þeirra
er Sigurlaug listnemi og tónlist-
arkona, f. 16. október 1984.
Kristmann hóf snemma ævistarf
sitt sjómennskuna þegar hann fór
að stunda sjó strax eftir fermingu
á bátnum Hlýra með móðurbróður
sínum Sólmundi frá Stöðvarfirði.
Kristmann stundaði sjómennsku,
bæði í Vestmannaeyjum og víðar á
vetrarvertíð og trilluútgerð frá
Stöðvarfirði á sumrin. Um tíma
var hann vélstjóri. Kristmann var
heiðraður fyrir ævistarf sitt af sjó-
mannadagsráði á efri árum. Krist-
mann var stofnfélagi í Bræðra-
félagi Garðakirkju. Kristmann
stofnaði sína fjölskyldu í Garða-
hreppi og byggði þar heimili. En
Austfirðirnir áttu hug hans og
eignaðist hann eyðibýlið Steina-
borg á Berufjarðarströnd þar sem
fjölskyldan dvaldi á sumrin við
fiskveiðar og útiveru. Kristmann
eyddi ævikvöldinu í Garðabænum
og síðustu tæpu tvö árin í góðri
umsjá starfsfólksins í Holtsbúð.
Kristmann verður jarðsunginn
frá Garðakirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 11.
júlí 2006. Sonur
Gunnars og Berg-
lindar Ágústsdóttur
myndlistarkonu, f.
15. maí 1975, er Funi,
f. 13. júlí 1999. b)
Lilja sjávarlíffræð-
ingur, f. 5. júlí 1982,
sambýlismaður Berg-
ur Finnbogason arki-
tekt, f. 6. nóvember
1982. Stefán er
kvæntur Jóhönnu
Engelbrecht, f. 18.
júní 1958, sonur
þeirra er Sólmundur,
f. 10. mars 1995. 2) Sigurjón sjó-
maður, f. 23. janúar 1955. Sonur
hans og Gyðu Richter, f. 24. júní
1955, er Gísli Már tækniteiknari og
tónlistarmaður, f. 26. apríl 1974,
sambýliskona Hafdís Hreið-
arsdóttir tónlistarkona, f. 14. apríl
1972, sonur þeirra Kári, f. 26. júní
2006. Sonur Gísla Más og Drífu Jó-
hannesdóttur, f. 22. ágúst 1974, er
Alex Birgir, f. 8. febrúar 1994.
Dóttir Sigurjóns og Unnar Bern-
harðsdóttur, f. 17. september 1970,
er Kristjana, f. 28. apríl 1991. 3)
Sigrún Hrönn lögfræðingur, f. 9.
júlí 1959, giftist Guðmundi Hólmari
Guðmundssyni, f. 17. október 1955
(fráskilin). Börn þeirra eru Bergur
Hrannar, f. 28. mars 1981, og Ósk,
f. 4. september 1985. Sigrún Hrönn
er gift Peter Landvall örveirufræð-
ingi, f. 2. ágúst 1946, synir þeirra
Bless, elsku pabbi minn. Nú er
komið að kveðjustund.
Þú sýndir mér fegurðina þegar ég
komst til vits og ára, fegurðina í
náttúrunni á fjörðunum fyrir austan
og á hafinu á trillunni Sæbjörgu
þegar við rerum til fiskjar þegar ég
var aðeins unglingur. Sú fegurð lífs-
ins býr með mér enn og allir draum-
arnir sem léku í loftinu þótt allir
hafi ekki ræzt. En þannig er lífið,
börn vaxa úr grasi, verða fullorðin
og fjarlægjast um stund en ræt-
urnar hafa sterk tök á okkur öllum.
Í fyrrasumar leitaði ég fæðing-
arstaðar þíns og fann við norðan-
verðan Reyðarfjörð, stað sem þú
hafðir stundum minnst á og ég vildi
vitja. Hann var ótrúlega fallegur
undir klettum við sævibarða strönd
þar sem fólk bjó fyrrum og var
hamingjusamt, eins og þú sagðir.
Ég trúi því en svo breytast tímarnir
og þú varðst sjómaður, fyrst ný-
fermdur hjá móðurbróður þínum,
Sólmundi, en síðar stjóri á þínum
eigin báti. Þar rættust þínir
draumar og þú leyfðir okkur systk-
inunum að kynnast þeim heimi
seinna og taka þátt. Þú kenndir mér
léttleikann sem var snar þáttur í
þínu viðmóti og hefur komið sér vel
í mínu starfi þegar ég fullorðnaðist.
Þetta allt hefur fyllt mitt líf sem ég
er þakklátur fyrir.
Stefán Sólmundur.
Kristmann Jónsson
Fleiri minningargreinar um Guð-
mund Rúnar Júlíusson bíða birtingar
og munu birtast í blaðinu næstu
daga.
V i n n i n g a s k r á
32. útdráttur 11. desember 2008
A ð a l v i n n i n g u r
Kr. 2.000.000 kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
4 4 1 8 6
V i n n i n g u r
Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur)
2 4 5 6 3 5 4 9 4 2 3 7 8 0 3 1
V i n n i n g u r
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
32449 35918 47715 53897 60256 72547
34079 47457 50749 54519 69392 72928
V i n n i n g u r
Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur)
7 2 7 7 3 7 0 1 7 1 5 8 2 6 3 3 1 4 0 1 7 2 4 6 5 6 0 6 1 0 3 3 7 3 1 7 2
9 9 8 7 4 0 5 1 7 2 9 3 2 6 4 4 0 4 0 2 3 7 4 7 5 0 9 6 3 5 0 8 7 5 0 6 4
1 3 7 7 8 0 7 7 1 7 6 6 0 2 6 6 3 6 4 0 3 0 1 4 9 6 4 1 6 3 8 3 2 7 5 6 7 0
1 6 6 5 9 0 0 3 1 8 1 6 4 2 9 5 4 4 4 2 0 7 1 4 9 7 7 2 6 4 0 8 1 7 6 3 9 3
1 8 2 0 9 0 4 0 1 8 2 4 7 3 0 3 0 3 4 3 2 8 7 5 1 0 1 3 6 4 1 2 2 7 6 8 0 5
1 8 3 2 9 2 4 2 1 8 6 0 8 3 1 9 1 0 4 3 3 1 2 5 1 0 3 1 6 4 9 4 9 7 7 4 0 5
1 9 2 8 9 3 2 6 2 0 6 9 2 3 2 2 7 1 4 3 8 0 2 5 1 1 0 8 6 8 5 0 2 7 7 5 5 1
2 4 4 7 1 0 0 5 4 2 0 7 6 8 3 4 1 9 4 4 4 3 2 8 5 1 2 2 2 6 8 5 8 8 7 7 8 5 1
3 3 4 1 1 0 5 9 7 2 1 3 3 6 3 5 2 9 6 4 4 8 8 2 5 2 2 3 7 6 8 9 6 9 7 8 5 8 4
5 5 1 7 1 1 5 9 3 2 3 7 6 7 3 7 0 3 5 4 5 3 9 5 5 3 7 4 9 6 9 0 3 9
6 0 7 7 1 3 5 1 0 2 3 9 8 5 3 7 6 3 5 4 5 5 0 2 5 5 6 2 9 7 0 2 7 4
6 4 2 3 1 4 1 0 8 2 5 5 9 4 3 8 1 9 6 4 6 3 1 2 5 6 0 6 6 7 1 0 0 9
6 7 7 5 1 6 4 8 7 2 6 2 3 9 3 9 1 7 6 4 6 4 4 7 5 9 7 1 9 7 2 4 9 2
V i n n i n g u r
Kr. 7.000 Kr. 14.000 (tvöfaldur)
2 3 7 9 8 9 9 1 9 5 5 7 2 9 5 8 9 3 8 9 8 2 4 9 7 1 7 6 2 1 3 3 7 2 8 2 0
6 8 5 1 0 0 7 2 1 9 7 3 2 2 9 6 0 6 3 9 0 6 4 4 9 9 3 1 6 2 8 3 0 7 3 2 2 6
9 9 6 1 0 5 3 4 2 0 0 6 6 2 9 7 4 4 3 9 6 9 9 5 0 0 4 7 6 3 0 5 6 7 3 3 8 5
1 0 6 9 1 0 8 9 9 2 0 5 2 4 3 0 5 2 0 4 0 4 3 5 5 0 7 0 7 6 3 8 6 4 7 3 8 6 0
1 2 3 4 1 1 0 2 1 2 0 8 4 5 3 0 6 3 4 4 0 5 3 3 5 0 7 8 1 6 3 9 1 9 7 3 9 6 1
1 6 3 9 1 2 6 4 7 2 1 0 7 3 3 0 9 1 7 4 2 0 4 2 5 0 9 5 3 6 4 7 5 4 7 4 0 3 3
1 6 6 2 1 2 7 9 5 2 1 1 5 5 3 1 1 1 3 4 2 0 6 4 5 1 0 7 0 6 5 8 1 0 7 4 2 0 4
1 8 9 9 1 3 1 3 8 2 1 2 5 1 3 1 2 2 2 4 2 2 8 3 5 1 0 9 1 6 6 2 5 5 7 4 4 4 7
2 0 2 9 1 3 1 5 2 2 1 7 2 7 3 1 9 8 2 4 2 3 4 2 5 1 2 1 3 6 6 3 2 6 7 4 5 9 5
2 8 1 9 1 3 1 6 2 2 2 3 4 0 3 2 2 4 2 4 3 0 2 2 5 1 3 4 0 6 6 4 2 2 7 4 6 2 4
2 9 7 6 1 3 2 9 4 2 2 4 6 2 3 2 2 7 2 4 3 1 7 1 5 1 4 8 0 6 6 8 6 3 7 4 6 6 6
3 0 3 8 1 3 3 8 1 2 2 6 9 1 3 2 2 8 5 4 3 2 5 3 5 1 9 6 4 6 7 4 7 0 7 4 8 3 8
3 1 5 1 1 3 5 7 7 2 2 8 4 2 3 2 3 7 7 4 3 4 8 8 5 2 3 0 5 6 7 7 3 7 7 5 5 6 5
3 3 5 1 1 4 0 0 0 2 2 8 4 4 3 3 0 5 4 4 3 5 6 7 5 2 4 6 1 6 7 8 4 7 7 6 5 7 4
4 0 0 1 1 4 5 2 0 2 3 6 9 1 3 3 1 7 0 4 3 9 3 5 5 2 5 1 9 6 7 9 1 3 7 7 3 3 4
4 7 4 1 1 4 6 6 5 2 3 8 3 1 3 3 2 0 0 4 4 0 2 6 5 3 5 6 1 6 8 1 6 7 7 7 6 3 2
4 9 0 9 1 5 4 1 0 2 4 0 5 8 3 4 1 0 3 4 4 0 6 5 5 4 0 5 0 6 8 9 3 0 7 7 7 9 3
4 9 6 7 1 5 4 5 7 2 4 2 6 0 3 4 4 9 7 4 4 9 4 3 5 4 1 4 6 6 9 1 4 7 7 8 3 6 3
5 3 5 2 1 5 8 5 4 2 4 6 0 4 3 4 8 4 6 4 6 1 9 1 5 4 7 2 8 6 9 6 3 1 7 8 3 9 8
5 6 3 8 1 5 9 9 5 2 5 0 9 4 3 5 4 8 6 4 6 5 9 9 5 5 2 1 8 6 9 7 9 4 7 8 6 1 4
5 6 5 0 1 6 0 5 4 2 5 8 3 8 3 5 6 9 2 4 7 3 2 1 5 6 3 7 1 6 9 8 5 6 7 8 8 2 3
5 7 8 6 1 6 2 5 1 2 5 8 7 1 3 6 1 5 8 4 7 7 0 8 5 7 5 2 2 6 9 9 8 1 7 8 9 2 4
6 3 7 9 1 6 5 2 7 2 6 0 3 5 3 6 4 4 0 4 7 8 3 4 5 8 1 9 1 7 0 1 7 4 7 9 0 1 2
6 4 8 8 1 7 2 5 6 2 6 6 2 1 3 6 7 7 3 4 8 0 4 1 5 8 3 3 7 7 0 6 5 5 7 9 4 4 9
6 8 2 5 1 7 5 0 4 2 8 4 0 0 3 6 9 8 6 4 8 1 0 0 5 8 9 0 9 7 0 7 0 0 7 9 6 8 1
7 0 5 5 1 7 6 2 2 2 8 4 3 5 3 7 4 0 0 4 8 2 5 4 5 9 1 0 8 7 0 7 5 2 7 9 8 9 0
7 1 6 1 1 7 9 3 9 2 8 4 6 0 3 8 3 2 1 4 8 3 1 8 6 0 2 5 4 7 1 0 4 8
7 3 3 3 1 8 3 9 8 2 8 5 2 4 3 8 3 9 4 4 8 5 3 0 6 0 8 9 1 7 1 0 5 2
7 6 5 7 1 8 4 7 9 2 8 6 2 9 3 8 4 1 4 4 8 9 0 4 6 1 3 1 0 7 1 6 2 6
9 4 0 1 1 8 5 4 9 2 8 7 5 9 3 8 6 7 8 4 9 1 1 4 6 1 4 0 5 7 1 7 4 0
9 6 3 1 1 9 5 0 8 2 9 1 8 9 3 8 7 6 8 4 9 1 7 6 6 1 7 8 9 7 1 9 3 8
9 6 6 1 1 9 5 2 3 2 9 2 6 6 3 8 8 2 3 4 9 6 1 5 6 2 0 0 5 7 2 2 7 3
Næstu útdrættir fara fram 18. des, 23. des 2008 & 2. jan 2009
Heimasíða á Interneti: www.das.is