Morgunblaðið - 12.12.2008, Side 35

Morgunblaðið - 12.12.2008, Side 35
Minningar 35 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 2008 ✝ Trausti Guð-jónsson húsa- smíðameistari fædd- ist á Eyjarhólum í Vestmannaeyjum 13. ágúst 1915, en ólst upp á Skaftafelli, Vestmannabraut 62 í Vestmannaeyjum. Hann lést á Landspít- alanum í Fossvogi 2. desember síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Guðjón Hafliða- son, útgerðarmaður og formaður frá Fjós- um í Mýrdal í Hvammshreppi í V- Skaftafellssýslu, f. 8. júní 1889, d. 13. júlí 1963, og Halldóra Kristín Þórólfsdóttir húsmóðir frá Hólma- seli í Gaulverjabæjarhreppi í Árnes- sýslu, f. 10. júlí 1893, d. 10. jan. 1985. Trausti var næstelstur í hópi 11 systkina: Ingólfur, f. 15. júlí 1913, d. 23. janúar 1999, Trausti, Guð- björg, f. 26. des. 1916, d. 14. sept. 2007, Auður, f. 7. apr. 1918, d. 30. maí 2001, Haraldur, f. 12. des. 1920, d. 23. nóv. 1993, Rebekka, f. 23. mars 1923, 21. jan. 1944, aðeins tví- tug úr heilahimnubólgu, Elísabet, f. 5. mars 1926, Óskar, f. 25. des. 1927, Anna, f. 10. nóv. 1929, Ester, f. 4. apríl 1934 og Hafliði, f. 21. apríl 1936. Trausti kvæntist 13. ágúst 1938 Ragnheiði Jónsdóttur frá Brekku í Gilsfirði í Barðastrandarsýslu, f. 12. okt. 1917. Börn þeirra eru: 1) Hall- dóra ljósmóðir, f. 28. júní 1938, gift orvélstjóraprófi. 19 ára réð hann sig sem vélstjóra á mótorbátnum Mýrdæling VE 283 sem var 17 tonna eikarbátur. Hann vann við skipasmíðar hjá Ársæli Sveinssyni frá árinu 1941. Hann stundaði kvöldskóla iðnaðarmanna og lauk sveinsprófi í húsasmíði 1948 og var á samningi hjá Þorsteini Sigurðs- syni frá Melstað. Hann vann við uppbyggingu Fiskiðjunnar frá árinu 1953 og var það hans aðal- atvinna meðan hann bjó í Eyjum. Sumarið 1963 vann hann við húsa- smíðar á Seyðisfirði og um vet- urinn vann hann við viðbyggingu á menntaskólanum í Lækjargötu í Reykjavík. Sumarið 1964 vann hann við uppbyggingu Slökkvi- stöðvarinnar í Öskuhlíðinni ásamt því að innrétta íbúð að Ásbraut 13 í Kópavogi sem hann hafði fest kaup á. Fjölskyldan flutti svo frá Vest- mannaeyjum um vorið 1965. Frá árinu 1965 vann hann við að inn- rétta Landsbankann að Laugavegi 77. Vorið og sumarið 1969 vann hann við að innrétta kirkjusal Hvítasunnukirkjunnar Fíladelfíu við Hátún sem var vígður 19. októ- ber sama ár að viðstöddum 700 manns. Síðustu ár sín vann Trausti svo hjá hurðasmiðju Sigurðar Elí- assonar í Kópavogi. Sumardaginn fyrsta 1999 fluttu þau Ragnheiður á Dvalarheimilið Ás í Hveragerði þar sem þau undu hag sínum vel. Tvö síðustu árin dvöldu þau á Dvalarheimilinu Grund í Reykja- vík. Trausti verður jarðsunginn frá Hvítasunnukirkjunni Fíladelfíu að Hátúni 2 í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Einari Jónassyni, frá Grundarbrekku í Vm. Synir: Trausti Ragn- ar, Gunnar Jónas, Fjalar Freyr og Sindri Reyr. 2) Guð- jón vélvirki, f. 23. apr- íl 1943, kvæntur Guð- rúnu Kristínu Erlendsdóttur frá Hamragörðum í Rang. Börn: Sigríður Heiðrún, Trausti og Erlendur. 3) Korn- elíus, húsasmíða- meistari, f. 30. maí 1946, kvæntur Elínu Pálsdóttur, úr Kópavogi. Sonur: Tryggvi. 4) Sím- on Eðvald, bóndi í Skagafirði, f. 1. ágúst 1948, kvæntur Ingibjörgu Jó- hönnu Jóhannesdóttur frá Egg í Hegranesi. Börn: Jónína Hrönn, Jó- hannes Hreiðar, Ragnheiður Hlín og Gígja Hrund. 5) Sólveig Rósa Benedikta, sjúkraliði, f. 12. júlí 1950, gift Sigurði S. Wiium úr Reykjavík. Börn: Hrefna Rós, Sig- urður Heiðar og Elva Ósk. 6) Vörð- ur Leví, prestur og fv. lög- regluþjónn, f. 21. okt. 1952, kvæntur Ester Karin Jacobsen frá Noregi. Börn: Erdna Ragnheiður, Sigmund Leví, Karin Milda og Rak- el Kersti. 7) Guðrún Ingveldur sjúkraliði, f. 5. mars 1954, gift Geir Jóni Þórissyni úr Reykjavík. Börn: Þórir Rúnar, Narfi Ísak, Símon Geir og Ragnheiður Lind. Trausti lauk barnaskólanámi 1927. 1937 lauk hann minna mót- Í dag verður til moldar borinn elskulegur faðir minn, Trausti Guð- jónsson, frá Skaftafelli í Vestmanna- eyjum. Hann var fæddur 13. ágúst 1915 í Eyjum. Og var því orðinn rúm- lega 93 ára gamall og þrotinn af kröftum og heilsu. Þegar Sólveig, systir mín, hringdi í mig að kvöldi 2. desember og sagði mér að faðir okk- ar hafi verið að yfirgefa þennan heim setti mig hljóðan litla stund því alltaf virðist dauðinn koma á óvart, en varð svo glaður yfir því og þakklátur Guði fyrir að hafa tekið hann til sín. Því hvað er betra fyrir sjúkan gamlan mann sem á lifandi trú á Jesúm Krist en að fá að fara til Hans. Faðir minn lærði húsasmíði á yngri árum. Hann var við bygging- arvinnu er hann féll niður af vinnu- palli, úr ca tveggja metra hæð og of- an á steypustyrktarjárn sem rakst inn í kviðarholið. Hann var á milli heims og helju í nokkrar vikur. Hon- um var ekki hugað líf. Móðir mín hef- ur sagt mér að læknarnir hafi beðið hana um leyfi til að kryfja líkið, svo vissir voru þeir um að hann lifði þetta ekki af. Slysið var 16. desember 1957. Hann hefur því lifað í 51 ár síðan þessi atburður gerðist. Það var mikið beðið fyrir föður mínum og er það bjargföst trú mín að Guð hafi gripið þarna inn í og þyrmt lífi hans. Þegar pabbi komst svo aftur til vinnu fór hann að vinna við ýmis létt- ari innistörf svo sem netagerð og við að vigta aflann upp úr vertíðarbátum sem lögðu upp í Fiskiðjunni. Einnig vann hann á trésmíðaverkstæði Fisk- iðjunnar. Man ég eftir okkur bræðr- unum þvælast innan um trésmíðavél- arnar, leitandi að bútum af gluggakörmum, sem við lékum okkur með. Vorið 1965 flutti fjölskyldan burt frá Eyjum og settist að í Kópavogi. Unnum við feðgarnir nokkur ár sam- an við trésmíðar. Síðast hjá Sigurði Elíassyni, við hurðagerð í Kópavogi. Þar lauk faðir minn starfsferli sínum. Nokkur ár bjuggu foreldrar mínir að Ási í Hveragerði, við gott atlæti. Síð- ustu árin voru þau svo á hjúkrunar- heimilinu Grund þar sem mamma mun búa áfram. Mesta gæfuspor pabba trúi ég að hafi verið að eignast konu sína, móð- ur mína, Ragnheiði Jónsdóttur frá Gilsfjarðarbrekku, en þau gengu í hjónaband 13. ágúst 1938 og héldu því upp á 70 ára brúðkaupsafmæli núna á sl. sumri. Mamma hefur í öll þessi ár staðið við hlið manns síns í blíðu og stríðu og fætt honum 7 mannvænleg börn. Barnabörnin eru 23 og barnabarna- börnin 49 þegar síðast var vitað. Ég þakka Guði fyrir pabba. Ég er stoltur af að hafa átt hann að föður. Elsku mamma. Þakka þér fyrir all- ar bænirnar þínar fyrir okkur afkom- endum þínum. Það eru mikil forrétt- indi að hafa verið alin upp í trú á Jesúm Krist og vera fullviss um að hitta þau sem á undan okkur eru far- in á himnum hjá Honum. Ykkar sonur, Símon. Það er margs að minnast núna þegar hugurinn reikar og ég veit að næsta þriðjudag verður pabbi ekki á sínum stað þegar ég kem í heimsókn á Grund til mömmu. Fyrsta minning mín af pabba mín- um, Trausta Guðjónssyni, sem verð- ur borinn til hinstu hvílu í dag, er þegar ég var á fjórða ári. Þann dag, 16. desember 1957, hafði pabbi slas- ast mjög alvarlega og allir á heim- ilinu voru daufir og mamma grét. Þetta var skrítinn dagur fyrir rúm- lega þriggja ára stelpu, sem lék sér áhyggjulaus allan daginn og átti væntumþykju foreldranna og sex systkina. En nú lá pabbi slasaður á sjúkrahúsinu og var ekki hugað líf. Pabbi var harðduglegur og ósérhlíf- inn. Hann var búinn að undirbúa jólin og hafði smíðað dótakistla handa okkur þrem yngstu systkinunum. Mamma hafði saumað náttkjóla handa okkur tveimur yngstu systr- unum. Minn var drapplitaður með fallega pífu og örsmáum litlum græn- leitum blómum, fallega saumaður eins og mömmu einni var lagið, enda frábær saumakona. Það var beðið mikið fyrir pabba og við trúðum að Guð gæti gert kraftaverk og svo sannarlega gerði Guð kraftaverk. Um vorið 1958 fékk pabbi vinnu á netaverkstæði, ekki það að hann gæti unnið, nei, hann reyndi af veikum mætti að vinna inn smápening fyrir þessarri níu manna fjölskyldu. Pabbi sagði mér seinna að eigend- ur verkstæðisins hefðu verið svo góð- ir við sig, leyfa sér að sitja þarna á stól og reyna að hnýta net, en auðvit- að gat ég þetta ekki, sagði hann. Það var ekki ónýtt fyrir mig 4 ára þá, að skottast til pabba þarna niður á Græðisbraut á netaverkstæðið og fá hólka undan netagarninu til að setja á sippuband. Auðvitað gat ég ekki verið minni en Solla systir, þurfti að gera eins og hún. Pabbi var duglegur að koma með mér í sunnudagaskólann klukkan eitt á sunnudögum í Betel. Einhvern tíma hafði hann ekki nennt með mér og horfði á eftir mér út Vestmanna- brautina og hafði víst fengið sam- viskubit yfir því að hafa ekki nennt með mér, en hann bað mig oft fyr- irgefningar á því. Pabbi bar nafn með rentu, hann var traustur, trúr, hár og myndarleg- ur. Mér fannst ég eiga flottasta pabba í heimi. Við leiðarlok hef ég Guði svo margt að þakka, þakka fyrir foreldra mína, sem kenndu mér strax í vöggu að biðja til frelsara míns og treysta honum í öllu. Foreldrar mínir voru ástfangin af hvort öðru og voru ófeimin að sýna okkur og hverjum sem var, að þau elskuðu hvort annað. Þegar ég var að hugsa um að fara í sjúkraliðanám eftir gagnfræðapróf fannst pabba það alveg út í hött. „Þú átt bara að kynnast góðum manni og gifta þig og láta manninn þinn sjá um þig,“ sagði hann. Þá spurði ég pabba hvort það hefði ekki verið gott að mamma kunni að sauma þegar hann hefði slasast og verið frá vinnu meira og minna í mörg ár. Pabbi hugsaði sig um smástund og sagði svo: „Jú, Inga mín, það er alveg rétt, þú skalt bara drífa þig í sjúkraliðanámið og vertu dugleg og vinnusöm.“ Í dag vil ég þakka mínum him- neska föður fyrir þennan yndislega jarðneska föður sem hann gaf mér. Guð blessi þig, elsku mamma og veiti þér styrk að þreyja þar til við fáum að hitta pabba aftur í dýrðinni hjá Jesú. Þín yngsta dóttir, Inga. Nú er afi okkar kominn í himins dýrð. Við erum þakklát Guði fyrir að hafa gefið okkur tíma til að kynnast afa, á okkar fullorðinsárum. Sérstaklega erum við þakklát fyrir að hafa fengið að njóta þess síðast- liðið sumar á ættarmóti fjölskyldunn- ar þegar afi var hinn hressasti og tók þátt í söng og gleði. Afi hafði skemmtilegan húmor og sérstaklega fyrir þá sem lentu í honum, setningar eins og „Inga, skilur þú börnin þín?“, „Ég heyri ekkert það sem þið eruð að segja“ (þó svo hann hafi alveg heyrt það sem við sögðum en kaus að hunsa það) og „Lifandis læti eru alltaf í þessu börnum“ eru ávallt ofarlega í huga þegar talað er um hann afa. Það eru blendnar tilfinningar sem við berum í dag, söknuður en jafnframt léttir yfir að nú fái afi loksins að enda þetta stríð og hvílast í faðmi föðurins. Við erum þakklát afa og ömmu fyrir að vera okkur trúarstólpar sem hefur erfst til barnabarnanna eins og segir í sálmi 103:17-18 „En miskunn Drottins við þá er óttast hann varir frá eilífð til eilífðar og réttlæti hans nær til barna- barnanna, þeirra er varðveita sáttmála hans og muna að breyta eftir boðum hans.“ Amma okkar, við elskum þig og megi almáttugur Guð gefa þér styrk í sorginni. Þórir Rúnar, Narfi Ísak, Símon Geir og Ragnheiður Lind Geirsbörn Afi er farinn heim. Heim til Drott- ins; heim í dýrðina sem hann þráði svo heitt. Ábyrgð hvers foreldris er að koma börnum sínum til manns. Það gerðu afi og amma fölskvalaust, öllum sjö. Afi og amma sýndu þeim berlega að fermingarheitið: „Ég vil gera Jesú Krist að leiðtoga lífs míns“ er ekki gefið í eitt sinn, heldur á hverjum degi. Öll sjö hafa þau gert sér grein fyrir að Jesús Kristur er lif- andi, upprisinn frelsari sem hefur áhuga á einstaklingnum og þráir að eiga samfélag við börnin sín. Öll sjö fengu þau það veganesti að eitt sinn skal hver maður deyja og eftir það fá sinn dóm. Og þegar staðið er fyrir framan dómarann verður ekki spurt um kynþátt eða þjóðerni. Það verður ekki spurt hversu mikið var gefið til góðgerðarmála né hversu gott var látið af sér leiða. Nei, Biblían segir okkur að það sé fyrst spurt hvort Jes- ús Kristur hafi verið leiðtogi lífsins. Orðin úr Jóhannesarguðspjalli: Því svo elskaði Guð heiminn að hann gaf son sinn eingetinn til þess að hver sem á hann trúir, glatist ekki, heldur hafi eilíft líf hafði afgerandi áhrif á líf afa. Hann skildi að Guð elskaði hann svo mikið, að hann gaf sína dýrmætustu gjöf, til þess að hver sem tæki við Jesú sem frelsara sínum, glataði ekki sál sinni heldur ætti eilíft líf í faðmi frelsarans í vændum. Þess vegna gaf afi Jesú líf sitt … á hverjum degi. Ég minnist afa með hlýju og sökn- uði. Ég minnist allra góðu stund- anna. Sérstaklega minnist ég þess þegar ég var við nám við Háskóla Ís- lands einn vetur. Þá fór ég vikulega, í hléi á milli kennslustunda, í morgun- kaffi til afa og ömmu á Ásbrautina. Þá var margt skrafað og margt rætt. Þá var alltaf endað á bæn. Það voru góðar stundir. Ég man líka eftir til- svörunum hans. Eftir að hann hætti að vinna nýtti hann hvert tækifæri til að sitja úti á svölum og láta sólina skína á sig. Hann var því oft spurður hvort hann hefði verið erlendis. Þá kom alltaf sama svarið: „Nei, þetta er sólin á Ásbrautinni“ og svo glotti hann. Nú er það ekki ekki lengur sól- in á Ásbrautinni sem yljar honum, heldur kærleikur Krists, þar sem hann er með systkinum sínum, for- eldrum og vinum sem öll gáfu Jesú Kristi líf sitt á sínum jarðvistartím- um. Afi er kominn heim; þangað ætla ég líka. Fjalar Freyr Einarsson. Í dag kveðjum við afa Trausta sem nú hefur fengið hvíld eftir langa ævi. Það er þó ekki sorg sem okkur systk- inunum er efst í huga heldur þakk- læti. Þakklæti fyrir að hafa fengið tækifæri til að kynnast þér og upplifa sjálf hvernig maður þú varst en ekki bara af afspurn. Það er nefnilega ekki sjálfgefið að við skyldum fá þetta tækifæri. Vinnuslysið sem þú lentir í fyrir um 50 árum hafði nærri tekið þig burt úr þessu lífi, frá eig- inkonu og sjö ungum börnum. En óbilandi trú þín, fjölskyldunnar, ætt- ingja og vina á Guð og Jesú Krist kom þér ekki aðeins til heilsu á ný heldur gastu tekið fullan þátt í þjóð- félaginu á nýjan leik. Í uppvexti okkar systkinanna í Ketu var það skýr táknmynd þess að sumarið væri komið þegar hlerinn á stóra stofuglugganum á sumarhús- inu ykkar á Bjargi hafði verið fjar- lægður og rjúka fór úr strompinum. Það var okkur mikils virði að fá að hafa ykkur ömmu hjá okkur nokkrar vikur flest þau sumur sem við vorum í foreldrahúsum. Þar kynntumst við ykkur best og minningarnar eru ljúf- sárar. Það var líka alltaf tilhlökkun- arefni að heimsækja ykkur ömmu á Ásbrautina þar sem þið áttuð ykkar heimili lengst af. Þar höfðuð þið amma búið ykkur heimili sem var einstaklega hlýlegt og fallegt. Það var alltaf eitthvað sérstakt við heim- ilið ykkar á Ásbrautinni. Hljóðin frá umferðinni, lyktin í búrinu, taktfast- ur sláttur veggklukkunnar og eftir- tektarverð ljósakrónan yfir borð- stofuborðinu skapaði heimilinu eftirminnilegt umhverfi en það var eitthvað meira. Þar átti Jesú heima alla tíð en trú ykkar hjóna var sterk og afkomendum ykkar til eftir- breytni. Elsku amma Ragnheiður. Við trú- um því að góður Guð muni áfram hugsa um þig og styrkja þig við frá- fall afa. Við munum einnig leggja okkar af mörkum. Jónína, Jóhannes, Ragnheiður og Gígja Símonarbörn og fjölskyldur. Trausti Guðjónsson ✝ Ástkær móðir okkar og tengdamóðir, LÁRA KRISTÍN SIGURÐARDÓTTIR, Laugateigi 54, Reykjavík, andaðist á líknardeild Landspítalans í Kópavogi þriðjudaginn 9. desember. Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju fimmtu- daginn 18. desember kl. 13.00. Skúli Þór Magnússon, Guðrún Jóhannesdóttir, Árni Magnússon, Jóhanna Magnúsdóttir, Óskar Margeirsson. ✝ Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, PÁLL HELGASON frá Kaldárholti, lést á dvalarheimilinu Lundi á Hellu þriðjudaginn 9. desember. Jarðsett verður frá Árbæjarkirkju laugardaginn 13. desember kl. 14.00. Þorbjörn Helgi Pálsson, Sóley Pálmadóttir, Jóhanna Ósk Pálsdóttir, Viðar Þór Ástvaldsson, Anna Lára Pálsdóttir, Ragnheiður Pálsdóttir, Þórarinn B. Þórarinsson, Árni Pálsson, Elín Grétarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.