Morgunblaðið - 12.12.2008, Page 44

Morgunblaðið - 12.12.2008, Page 44
44 Dagbók MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 2008 Sudoku Frumstig 3 5 6 7 7 2 8 5 7 1 3 2 1 3 4 5 2 4 4 8 3 5 2 4 1 9 9 3 7 8 6 9 1 3 6 9 1 6 8 5 7 4 9 8 1 5 4 7 7 1 3 8 9 6 8 3 6 7 1 1 6 3 9 5 7 5 1 6 9 7 2 1 9 2 3 7 4 8 4 2 3 2 4 5 9 4 5 7 7 4 8 9 9 5 1 4 9 1 9 2 4 3 8 1 7 6 5 8 6 3 2 7 5 9 4 1 1 7 5 9 4 6 3 8 2 7 8 1 4 6 9 2 5 3 2 5 9 8 3 7 4 1 6 3 4 6 1 5 2 8 9 7 4 3 2 6 1 8 5 7 9 6 9 7 5 2 4 1 3 8 5 1 8 7 9 3 6 2 4 9 6 4 8 3 1 2 7 5 1 8 5 7 2 4 6 9 3 3 7 2 9 5 6 8 1 4 7 1 6 4 8 5 3 2 9 4 9 3 6 7 2 5 8 1 2 5 8 1 9 3 7 4 6 5 3 9 2 1 7 4 6 8 8 4 7 3 6 9 1 5 2 6 2 1 5 4 8 9 3 7 4 7 9 6 3 5 8 2 1 2 3 8 9 1 7 6 4 5 1 6 5 4 8 2 3 7 9 9 8 4 5 6 1 2 3 7 3 2 1 7 9 4 5 6 8 6 5 7 8 2 3 9 1 4 8 1 6 2 7 9 4 5 3 5 9 3 1 4 6 7 8 2 7 4 2 3 5 8 1 9 6 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er föstudagur 12. desember, 347. dagur ársins 2008 Orð dagsins: En hjálparinn, andinn heilagi, sem faðirinn mun senda í mínu nafni, mun kenna yður allt og minna yður á allt það, sem ég hef sagt yður. (Jóh. 14, 25.) Víkverji vill að gefnu tilefni hvetjafólk til þess að fara í gegnum tryggingarnar sínar og ganga úr skugga um að þar sé allt eins og það á að vera en ekki eins og fólk heldur að það sé. Kunningjar Víkverja urðu fyrir talsverðu tjóni á dögunum en töldu sig vel tryggða þannig að fjár- hagslegur skaði yrði lítill sem eng- inn. Hins vegar kom í ljós að fólkið hafði ekki þá tryggingu sem tjónið bætir og orsakanna helzt að leita í því að ekki var farið nægilega vel yf- ir hlutina þegar gengið var frá tryggingunum; hvorki af kaupanda né seljanda. x x x Tryggingar eru oft samsettar ogfólk getur valið hvað það vill hafa inni og hvað ekki. Þegar heild- armyndin er komin gerir fólk rétt í því að fara yfir hlutina og hafa það á hreinu að ekkert hafi dottið ofan í milli og það sé með þær tryggingar sem það vill. Aðeins þannig getur fólk firrt sig fjárhagslegu tjóni, nóg er nú samt og oft týnast persónu- legir munir sem ómögulegt er að bæta og fást hvergi í öðru eintaki. x x x Víkverji og kona hans fjárfestu íútiljósaseríu á dögunum. Reyndar fór frúin fyrst og fann þá langbeztu seríu sem til var og daginn eftir var Víkverji sendur í búðina að kaupa seríuna. En þá dökknaði nú í því, til voru þrenns konar seríur; rauð, glær og mislit og Víkverji ekki með miða til þess að kaupa eftir. Nú leizt Víkverja bezt á mislitu seríuna, en þekkjandi allt sitt heimafólk fór hann heim með þá rauðu, var sam- stundis gerður afturreka og skipað að koma með eina glæra. En þegar til kom gat frúin ekki fellt sig við hana, sem Víkverji vissi reyndar fyr- ir. Það varð úr, að hjónin fóru bæði út í búð, þar sem Víkverji greip strax til rauðu seríunnar, sem frúin útilokaði á augabragði og þá var bara sú mis- lita eftir. Hún var keypt og nú una bæði Víkverji og kona hans glöð við sína jólaljósaseríu. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 vígja, 4 dé- skota, 7 ber vitni um, 8 víkki, 9 hagnað, 11 sárt, 13 kviður, 14 staga, 15 ódrukkinn, 17 ná yfir, 20 lem, 22 hylkið, 23 sáta, 24 skakka, 25 áætl- unarbíllinn. Lóðrétt | 1 ríki dauðra, 2 affermum, 3 hina, 4 dá- semd, 5 spil, 6 skil eftir, 10 spela, 12 hyggja, 13 hestur, 15 ólyfjan, 16 niðurgangurinn, 18 út- gjöld, 19 fæddur, 20 venda, 21 guð. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 skaufhali, 8 taðið, 9 ramba, 10 inn, 11 akarn, 13 arinn, 15 hlass, 18 skrum, 21 tík, 22 forði, 23 jafna, 24 skeggræða. Lóðrétt: 2 kuðla, 3 urðin, 4 hyrna, 5 lampi, 6 átta, 7 hann, 12 rós, 14 rok, 15 hefð, 16 afrek, 17 sting, 18 skjár, 19 rofið, 20 móar. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rd2 c5 4. Rgf3 cxd4 5. Rxd4 Rf6 6. Bb5+ Bd7 7. Bxd7+ Rbxd7 8. exd5 Rxd5 9. 0-0 Be7 10. De2 Db6 11. R2f3 0-0 12. Hd1 Had8 13. c4 R5f6 14. h3 a6 15. Be3 Dc7 16. Hac1 Rc5 17. Rc2 Rce4 18. Rg5 Rxg5 19. Bxg5 Da5 20. Bxf6 Bxf6 21. Ra3 g6 22. Hxd8 Hxd8 23. c5 Hd5 24. c6 bxc6 25. Hxc6 He5 26. Hxa6 Db4 27. Rc2 Dxb2 28. Dc4 Dc1+ 29. Kh2 He1 30. Re3 Be5+ 31. g3 Staðan kom upp í opnum flokki á ól- ympíumótinu í Þýskalandi. Armenski stórmeistarinn Vladimir Akopjan (2.679) hafði svart gegn ítölskum koll- ega sínum Michele Godene (2.517). 31 … Bxg3+! 32. Kg2 Dxc4 33. Rxc4 Bh4 34. Hd6 He4 35. Re3 Ha4 36. Hd2 Bg5 37. Kf3 Kg7 38. Hc2 Bxe3 39. Kxe3 Ha3+ 40. Kd4 Hxh3 svartur er nú tveimur peðum yfir og innbyrti hann vinninginn stuttu síðar. Svartur á leik Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Drury. Norður ♠K62 ♥G107 ♦D106 ♣Á972 Vestur Austur ♠G109 ♠Á4 ♥K42 ♥9653 ♦ÁK74 ♦853 ♣1065 ♣DG83 Suður ♠D8753 ♥ÁD8 ♦G92 ♣K4 Suður spilar 3♠. Eftir þrjú pöss opnar suður á 1♠ í bútaleit. En norður sér möguleika á út- tekt og gefur áskorun með 3♠. Suður hafnar auðvitað, en lokasögnin er óþægilega há. Vestur tekur á ♦Á-K og spilar þriðja tíglinum. Við borðið svínaði sagnhafi strax í hjarta „til að kanna stöðuna“, vestur drap og spilaði þrettánda tíglinum, sem austur tromp- aði með ÁS. Þannig fékk vörnin tvo slagi á tromp. Drury-sagnvenjan var upphugsuð upp til að fyrirbyggja sagnslys af þessum toga, en sam- kvæmt henni segir passaður maður 2♣ með stuðning við hálit makkers og 9-11 punkta. Þá þarf ekki að fara upp á þriðja þrep. Hitt er svo annað mál að sagnhafi átti að spila upp á ♠Áx í aust- ur, því ef ásinn er í vestur mun svín- ingin í hjarta örugglega heppnast. Vestur sagði jú pass í upphafi. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Þú greinir líf þitt og pælir í hvort þú getir ekki bætt það með því að breyta forgangsröðinni. Sýndu tillitssemi. (20. apríl - 20. maí)  Naut Ef þú er farinn að kalla þig öllum illum nöfnum veistu að það er mannlegt. Taktu hugmyndum og gjafmildi annarra opnum örmum. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Ef einhver hefur ekki komist mjög langt áleiðis með verkefni eða í þroska skaltu samt ekki telja eftir þér að hrósa. Segðu öðrum að þú viljir hugsa málin áður en þú tekur ákvörðun. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Það er betra að komast einu sinni að samkomulagi við sjálfan sig og standa við það en gera það hundrað sinnum og standa aldrei við það. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Þér finnast hlutirnir ekki ganga nógu fljótt fyrir sig. Samræður um heim- speki, trú eða frumspeki gætu fengið þig til að sjá hlutina frá öðru sjónarhorni. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Valdabarátta við heimilisfólk, ekki síst foreldra, er líkleg í dag. Hugsanlegt er að útlendingar eða fólk af ólíkum upp- runa verði á vegi þínum. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Ef þú gerir rétt það sem þú gerir í dag þarftu aldrei að gera það aftur. Treystu á hæfileika þína og vertu óhræddur að breyta til. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Það eru ýmis smáatriði sem þú verður að koma í lag til þess að ná því takmarki sem þú hefur sett þér. Lof- aðu aldrei upp í ermina á þér. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Þegar ástin er eins og kvik- syndi sem gleypir þig meir og meir er mál að biðja einhvern um aðstoð. Sum- um finnst það frábært, öðrum hræðilegt. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þú uppgötvar að það sem þú hélst að væri leyndarmál er á allra vit- orði. Fyrr eða síðar kemur að skulda- dögum og þá færð þú að finna til te- vatnsins. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þótt þú sért félagslyndur þarftu að gefa þér tíma til að vera einn með sjálfum þér. Andaðu rólega, tíminn vinnur með þér. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Fiskurinn ljómar á einstakan hátt, eins og hann búi yfir leynilegri áætlun sem er í þann mund að ganga upp. Láttu það þó ekki henda þig að láta smáatriði fara framhjá þér. Stjörnuspá 12. desember 1977 „Hún syngur, hún spilar og hún semur lög. Þetta er ein- stök plata,“ sagði í auglýsingu sem birtist þennan dag um tíu laga plötu sem Fálkinn gaf út með flutningi tólf ára stúlku. Þannig hófst ferill Bjarkar Guðmundsdóttur. Á plötunni var lagið Jóhannes Kjarval, sem Björk samdi. 12. desember 1998 Örn Arnarson varð Evrópu- meistari í 200 metra baksundi á móti í Sheffield á Englandi og setti Íslandsmet, synti á 1 mínútu og 55,16 sekúndum. „Það gekk allt upp,“ sagði Örn í viðtali við DV. Árin 1999 og 2000 endurtók hann leikinn. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist … Jónas Helgfell Magnússon fyrr- verandi bóndi á Uppsölum í Eiðaþinghá er áttræður í dag, 12. desember. Af því tilefni verður opið hús milli kl. 17 og 20, í Mötuneytissal Alþýðuskólans á Eiðum. 80 ára „ÉG ER í miðri vinnutörn eins og svo oft áður þannig að það verður lítið um hátíðarhöld,“ segir Dagur Kári Pétursson kvikmyndagerðarmaður, sem fagnar 35 ára afmæli sínu í dag. „Ætli ég láti mér ekki nægja að baka pönnukökur fyrir nokkra vel valda úr hópi fjölskyldu og vina.“ Er Dagur Kári önnum kafinn við lokavinnslu kvikmyndar- innar The Good Heart „Við ætlum að reyna að ljúka klippivinnunni fyrir jól og stefnum á að klára myndina í febrúar.“ Ekkert hefur hins vegar enn verið ákveðið um frumsýningarstað og -tíma, en Dagur Kári hyggst þó taka sér góða hvíld þeg- ar vinnslu myndarinnar lýkur. „Þetta er búin að vera ágætis törn og ég er ekki farinn að ákveða hvað tekur við næst.“ Lítið hefur verið um stórar afmælisveislur hjá honum í gegnum tíð- ina. „Einhverra hluta vegna forðast ég að halda veglegar afmælis- veislur en kýs þess í stað að hafa þær lágstemmdar og fámennar,“ segir hann og bendir á að stutt sé í stórar hátíðir á þessum árstíma. „Allan minn uppvöxt var haldið upp á afmæli fyrir vini og skólafélaga en þegar afmælisdagurinn fór að falla saman við prófatíma fjaraði þetta út og hefur verið á rólegu nótunum síðan.“ annaei@mbl.is Dagur Kári Pétursson 35 ára Lítið um hátíðarhöld Nýirborgarar Húsavík Jóhanna Heiður og Halla Bríet fæddust 12. september. Halla Bríet fæddist kl. 14.22 og Jóhanna Heiður kl. 14.23. Þær vógu hvor um sig 2.500 g og voru 43 cm langar. Foreldrar þeirra eru Gyða Evertsdóttir og Kristján R. Arnarson. Með þeim á myndinni er Henný Birgitta, systir þeirra. Reykjavík Kristján Karl fæddist 22. september kl. 14.35. Hann vó 4.370 g og var 52 cm langur. For- eldrar hans eru Halldóra Guðríður Gunnarsdóttir og Guðjón Karl Þórisson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.