Morgunblaðið - 12.12.2008, Síða 48

Morgunblaðið - 12.12.2008, Síða 48
48 MenningFÓLK MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 2008  Strákarnir í hljómsveitinni Mo- tion Boys hafa vakið verðskuldaða athygli fyrir fyrstu plötu sína, Hang On, sem kom út á dögunum. Birgir Ísleifur og félagar ákváðu að hamra járnið meðan heitt er, og hafa nú sent frá sér nýjar útgáfur af titillagi plötunnar. Vinnan fór þannig fram að hver hljómsveit- armeðlimur gerði sína útgáfu af laginu, og urðu þær eins ólíkar og þær urðu margar. Þannig gerði Tobbi hljómborðsleikari hálfgerða Crosby, Stills, Nash & Young- útgáfu og spilaði á öll hljóðfæri sjálfur, útgáfa Bjössa trommara er eins konar sambland af tónlist Si- nead O’Connor og Prince, Biggi söngvari gerði dansvæna útgáfu af laginu, en Gísli Galdur lagði áherslu á saxófónleik Óskars Guð- jónssonar sem spilaði í upp- runalegu útgáfunni. Frá og með deginum í dag fylgja útgáfurnar með þegar smáskífa lagsins er keypt á tonlist.is. Meðlimir Motion Boys fara sínar eigin leiðir Fólk Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „VIÐ ætlum að halda partí á Apótekinu,“ seg- ir Jón Atli Helgason, einn af forsprökkum Jóns Jónssonar ehf., þegar hann er spurður hvað þeir félagar ætli að gera um áramótin. „Við ætlum að vera með alveg svaðalegt „line up“. Þar verða meðal annars Sexy La- zer, það er að segja ég, DJ Margeir, Natalie, a.k.a. Yamaho og Raffaele Manna sem kallar sig DJ Baktus. Svo ætlar Urður [Há- konardóttir, fyrrverandi söngkona GusGus] að syngja, auk þess sem fleiri óvæntir gestir munu koma fram. Þá má ekki gleyma því að við ætlum að vera með svokallað klósett- diskó, það verður sem sagt plötusnúður niðri á klósetti,“ segir Jón Atli og hlær. Miðasala hefst á midi.is á allra næstu dög- um, en miðaverð verður 2.000 krónur. Þá leggur Jón Atli áherslu á að engin sérstök álagning verði á barnum. Fleiri áramótapartí hafa nú þegar verið skipulögð, en skammt frá Apótekinu, á Nasa, munu þau DJ Kiki-Ow og DJ Curver standa fyrir 90’s-partíi. Þetta er þriðja árið í röð sem þau standa fyrir slíkum gleðskap á gamlárskvöld, en eins og nafnið bendir til verður tónlist og tíska tíunda áratugar síð- ustu aldar í aðalhlutverki. Miðasala á her- legheitin hefst á midi.is á mánudaginn, en miðaverð er 3.500 krónur. Tvö stór áramótapartí hafa verið skipulögð Jón Jónsson Stebbi Steph, Margeir og Jón Atli.  Þær deilur sem blossuðu upp í vikunni vegna ákvörðunar Kimi Re- cords um að senda ekki plötur sínar til þeirra sem veita Íslensku tónlist- arverðlaunin hafa orðið til þess að á meðal yngri popp- og rokktónlist- armanna hefur risið upp hópur sem hyggst gerast virkur í réttinda- og stéttarmálum tónlistarmanna á Ís- landi. Slíkir hópar hafa með reglu- legu millibili risið upp á afturfæt- urna innan STEFs þegar þeim hefur fundist á sig hallað og skemmst er að minnast „uppreisn- ar“ ungra tónlistarmanna á áttunda áratugnum með Jóhann G. Jó- hannsson í broddi fylkingar en sú uppreisn leiddi til töluverðra breyt- inga innan STEFs. Oftar en ekki hefur það þó gerst að slíkar upp- reisnir lognast út af enda ekki heiglum hent að ráða fram úr flóknu regluverki STEFs. Nú geng- ur hinsvegar á milli manna póstur með skýringarmyndum af starf- semi STEFs og fjölmörgum syst- urfélögum þess svo eitthvað virðist áhuginn vera meiri nú en oft áður. Hinir ungu fræðast um starfsemi STEF Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is Á NÝJUSTU plötu Britney Spears, Circus, er að finna lag eftir íslenskættaða lagasmiðinn og upp- tökustjórann Arnþór Birgisson. „Ég gerði lagið „Out from Under“ sem er númer þrjú á Circus. Ég hafði átt þetta lag í um tvö ár og hugsaði alltaf að það yrði æðislegt fyrir Britney. Ég vann virkilega að því að koma því til hennar og loksins í sumar heyrði hún lagið aftur – hún hafði heyrt það áður og var ekki viss hvort það passaði sér – en nú passaði allt saman, textinn og lagið, svo hún ákvað að nota það. Ég er mjög kátur yfir því enda miklu betra að fá lagið á þessa nýjustu plötu heldur en Blackout sem gekk ekkert rosalega vel en nú er Britney komin á strikið aftur,“ segir Arn- þór sem svarar hinn rólegasti er blaðamaður spyr æstur hvort hann hafi hitt sjálfa stórstjörnuna. „Jú, jú ég hef hitt hana nokkrum sinnum. Vinir mínir í Svíþjóð unnu mikið hennar fyrstu plötur svo hún var tíður gestur þar í landi. Hún er mjög viðkunn- anleg og gott að tala við hana,“ segir Arnþór sem hefur búið í Svíþjóð frá því hann var tveggja ára. Arnþór vinnur hjá Murlyn Music í Svíþjóð sem er hluti af bandaríska fyrirtækinu Universal Music Publishing Group. Á heimasíðu UMPG er hann sagður einn fremsti lagahöfundur og upptökustjóri Svíþjóðar. Þegar blaðamaður nær tali af Arnþóri er hann staddur í New York. „Ég vinn mikið í Banda- ríkjunum en núna var ég að skipuleggja fyrstu þrjá mánuði næsta árs, hitta fólk og bóka mig í upptökur.“ Árið mun byrja með stæl hjá Arnþóri en í janúar vinn- ur hann m.a. með Leonu Lewis og Toni Braxton auk þess sem hann er að vinna að nýjustu plötu Enri- que Iglesias. Poppið í tísku Arnþór segist vinna 75% af tíma sínum í eigin stúdíói í Stokkhólmi þar sem hann semur lög og klárar önnur sem hann hefur byrjað að vinna í New York. „En stundum, eins og með Toni Braxton, er ég settur í stúdíó í NY að semja lög fyrir hana og svo kemur hún og við klárum þetta saman.“ Hann segir poppið aftur komið í tísku og því sé nóg að gera. „Fyrir þremur árum var t.d. mjög lítið að gerast í popptónlistinni, þá var aðeins hipphopp og rokk en núna eru allir að gera popplög. Svona sveiflur eru eðilegar í tónlist- arbransanum, en ég tel ástæðuna núna vera þá að það þurfi þessar hitt- melódíur sem fólk getur sungið með svo tónlist seljist,“ segir Arnþór og bætir við að kvikmyndir eins og High School Samdi lag fyrir Britney  Arnþór Birgisson á eitt lag á Circus, nýjustu plötu Britney Spears  Vinnur með söngkonunum Toni Braxton og Leonu Lewis eftir áramót Meðal þeirra sem Arnþór hef- ur unnið með eru: Jennifer Lo- pez, Jessica Simpson, Britney Spears, 98 Deegrees, Ronan Keat- ing, Boyzone, Westlife, Jay-Z, Sting, Ronan Keating, Samantha Mumba, Ricky Martini, Santana. Janet Jack- son, Celine Dion, Girls Aloud og Enrique Iglesias. Stjörnurnar Lýstu eigin útliti. Hávaxin, ljóshærð, bláeygð, hraustleg – alvöru víkingakona, býst ég við! Hvaðan ertu? Fædd og uppalin í Reykjavík, hef búið lengst af í Grafarvoginum. Keyptir þú flatskjá í góðærinu? (Spyr síðasti að- alsmaður, Henrý Þór Baldursson myndasöguhöf- undur). Ég verð víst að svara þessu játandi, það er gott að vera vitur eftir á. Hversu pólitísk ertu, á skalanum 1 til 10? 2. Helstu áhugamál? Líkamsrækt, dans, útivera, hundar, ferðalög, vinir og fjölskylda. Hvað uppgötvaðir þú síðast um sjálfa þig? Að ég er hrikalega góð í að taka vítaspyrnur, eða kannski bara heppin líka. Hvaða plötu hlustar þú mest á þessa dagana? Ég kaupi mér aldrei geisladiska, hlusta alltaf á tónlist sem ég næ í sjálf sem er svona bland af þessu og hinu. Muse er samt alltaf í uppáhaldi, og síðustu daga hafa íslensku jólalögin fengið að fljóta með. Hvaða bók lastu síðast? Ég las helminginn af bók sem heitir Áður en ég dey á leiðinni hingað til Afríku í flugvélinni, er ekkert svo viss um að ég klári hana á leiðinni til baka þar sem hún var frek- ar niðurdrepandi. Uppáhaldskvikmynd? A Night At The Roxbury og Along Came Polly. Kynþokkafyllsti karlmaðurinn fyrir utan maka? Johnny Depp og Channing Tatum. Heldurðu að þú vinnir og verðir valin Ungfrú heimur? Ég held ég eigi alveg jafnmikið skilið að vinna eins og hver önnur stelpa sem lendir í topp 15, en það er mikið af flottum stelpum og því ómögulegt að segja til um hvernig þetta fer. Hver er fallegasta fræga kona í heimi? Jessica Alba og Charlize Theron. Get ekki gert upp á milli. Hvað fer mest í taugarnar á þér? Óheiðarleiki, og þegar fólk sem ég er með í bíl setur ekki á sig belti. Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór? Ég ætlaði að verða búðarkona eða skúringakona, óhætt að segja að draumurinn liggi ekki þar leng- ur. Hver eru þín mestu mistök? Að hafa ekki byrjað að æfa körfubolta. Og þinn stærsti sigur? Ætli það sé ekki bara að vera komin svona langt í Miss World. Hver yrði titillinn á kvikmynd um ævi þína? Blon- des Do It Better ;) Hver myndi leika aðalhlutverkið? Charlize The- ron eða Kate Hudson. Hvers viltu spyrja næsta viðmælanda? Hver er besta jólagjöf sem þú hefur fengið? ALEXANDRA HELGA ÍVARSDÓTTIR AÐALSKONA ÞESSARAR VIKU VAR KJÖRIN UNGFRÚ ÍSLAND Í MAÍ. Á MORGUN KEPPIR HÚN FYRIR ÍS- LANDS HÖND UM TITILINN UNGFRÚ HEIMUR, EN KEPPNIN FER FRAM Í SUÐUR-AFRÍKU. Musical hafi hjálpað poppinu mikið í að komast aft- ur í tísku. En svo vel vill til að Arnþór hefur átt eitt lag í þeim myndum. Vann í lottó Um þrettán ár eru síðan Arnþór byrjaði í tónlist- arbransanum og segir hann það hafa verið eins og að vinna í lottó að ná svona langt. „Ég var heppinn snemma og samdi rétta lagið fyrir strákabandið 98 Degrees, „Give Me Just One Night“ sem varð mjög vinsælt í Bandaríkjunum 2000 og þá var ég kominn inn,“ segir Arnþór sem á sér þann framtíðardraum að koma ungum lagahöfundum á framfæri. „Draumurinn er að finna hæfileikafólk í lagasmíð- um í Svíþjóð og Skandinavíu og koma þeim á samn- ing hjá mér. Nú geri ég allt sjálfur en það yrði gam- an að fá ungt hæfileikafólk til að vinna með sér og ekki vera sjálfur einn allan sólarhringinn eins og núna. En þetta er mikið stríð, maður verður að halda áfram að vinna annars er maður fljótur að detta út.“ Farsæll Arnþór Birgisson hefur í nægu að snúast við að semja tónlist fyrir stórstjörnur poppsins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.