Morgunblaðið - 12.12.2008, Page 51
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
-FINNI (söngvari Dr. Spock):
„Hvernig ertu að fíla plötuna?“
-Blaðamaður: „Frábærlega. Mér
finnst hafa tekist vel til.“
-Finni: „Þetta er ekki eitthvað
sem þú ert bara að segja?“
-Blm: „Nei. Annars hefði ég eytt
talinu.“
-Finni: „En þú gætir verið að
ljúga þessu líka …“
-Blm: „Já. Þú verður því einfald-
lega að trúa mér.“
-Finni: „Ok. Kúl.“
Þannig hófst þetta skemmtilega
spjall við Finna, annan söngvara
hinnar mjög svo skemmtilegu Dr.
Spock. Það virðist bara vera sem
svo, að allt sem kemur úr hennar
ranni er skemmtilegt! Á einn eða
annan hátt …
„Við vildum gera eitthvað öðruvísi
fyrir þessa plötu, það liggur einfald-
lega í eðli þessarar blessuðu sveit-
ar,“ segir Finni og er honum nokkuð
heitt í hamsi.
„Fyrra efni hefur verið unnið
þannig að það er hent í eitt gott fyll-
irí, lögunum rumpað af í einni töku
og málið dautt. Nú ákváðum við að
fara í þveröfuga átt, vanda til verka,
hafa mynddisk með og sögu og við
lágum ennfremur yfir upptökunum.“
Finni segir að þó að þetta hafi ver-
ið ákveðið hafi þeir um leið vitað að
þeir hefðu engan tíma. Það var því
gripið til óbrigðuls, mætti segja al-
íslensks ráðs?
„Við læstum okkur inni í sum-
arbústað í tíu daga og kláruðum
flesta grunnana þar,“ upplýsir
söngvarinn. „Tvö lög fyrir hádegi og
fjögur fyrir kvöldmat. O.s.frv. Þetta
var eina leiðin. Það getur verið grá-
bölvað að ná þessum blessaða hóp
saman. En þegar hann klikkar þá er
enginn mannlegur máttur sem getur
stöðvað hann. Enginn.“
Dr. Spock hefur verið starfandi
mjög lengi, það lengi að það er kom-
inn tími á Silfursafnið að mati Finna
(„Verst þó að það væru bara fimm
lög þar.“). Hann er í senn gáttaður
og glaður með óvæntar vinsældir
sveitarinnar sem hann sá ekki fyrir.
„Það kom gamall maður að mér
áðan og spurði mig hvort ég væri
ekki Guli hanskinn,“ segir Finni og
hlær hátt. „Hann fór meira að segja
að syngja Evróvisjónlagið og spurði
mig hvað væri að frétta af skipstjór-
anum!“
En hvað er svo framundan, Finni
minn kær?
„Við ætlum að gera bestu rokk-
plötu Íslandssögunnar. Það gæti
verið þessi plata … eða sú næsta. Í
öllu falli verður hún okkar …“
Fjölleikahús dauðans
Dr. Spock gefur út plötuna Falcon Christ
Hugsanlega besta rokkplata Íslandssögunnar
Fálkinn verður til Spockverjar hleyptu Morgunblaðinu í myndaalbúm sem
fangar vel gáskafulla og rokkaða stemninguna í hljóðverinu.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 2008
Sími 564 0000
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Smárabíó
SÝND Í SMÁRABÍÓI
Sýnd kl. 4, 8 og 10
Sýnd kl. 8
Sýnd kl. 8 og 10
Madagascar er ein vinsælasta teiknimynd allra tíma!
HÖRKUSPENNANDI MYND UM
SPILLTA LÖGREGLUMENN
Sýnd kl. 10
SPRENGHLÆGILEG
GAMANMYND
SEM KEMUR ÞÉR
Í JÓLASKAP
- S.V., MBL
- S.V., MBL- TOMMI, KVIKMYNDIR.IS
The day the earth stood still kl. 5:40 - 8 - 10:20 DIGITAL B.i. 12 ára
The day the earth stood still kl. 5:40 - 8 - 10:20 LÚXUS
Four Christmases kl. 4 - 6 - 8 - 10 B.i. 7 ára
Quantum of Solace kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára
Zack & Miri make a porno kl. 5:45 - 8 - 10:15 B.i. 16 ára
Igor m/íslensku tali kl. 3:45 LEYFÐ
www.laugarasbio.is
Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó
ef þú greiðir með kreditkorti
tengdu Aukakrónum
-bara lúxus
Sími 553 2075
- TOMMI, KVIKMYNDIR.IS - S.V., MBL
FRÁBÆR MYND!
HIKLAUST FYNDNASTA MYND ÁRSINS!
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
500 kr.
Sýnd kl. 4 og 5 ísl. tal
ATH.
SÝND
MEÐ
ÍSLEN
SKUT
ALI
SPRENGHLÆGILEG
GAMANMYND
SEM KEMUR ÞÉR
Í JÓLASKAP
- S.V., MBL
LEIKURINN HELDUR ÁFRAM ...
ALLLS EKKI FYRIR
VIÐKVÆMA!
SVAKALEGUR SPENNUTRYLLIR
SEM GEFUR FYRSTU MYNDINNI
EKKERT EFTIR
50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á
ar bíómiðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum!
SAGA hinnar dularfullu en um-
svifamiklu Falcon-ættar er út-
skýrð í þaula í myndarlegum
bæklingi plötunnar. Grípum að-
eins niður í söguna:
„Eftir taugaáfall Guðna hefur
borið á persónuleikatruflunum.
Hann þykir illskeyttari og fjöl-
þreifnari en fyrr eins og kom í
ljós í baráttu hans og hálfbróður
hans Þorbjörns um náma- og
vatnsréttindi á Mt. Falcon-fjalli.
Guðni var talinn líklegur erfingi
Falcon-ættarinnar en orðrómur
um breytingar á erfðaskrá Reg-
inalds setti heldur betur strik í
reikninginn …“
Falcon Christ?