Morgunblaðið - 24.12.2008, Side 6
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 2008
Eftir Unu Sighvatsdóttur
una@mbl.is
„ÉG var mjög heppinn á tíma og andstæð-
ingar mínir líka, þannig að þetta var mjög tví-
sýnt. Í seinustu umferð þurfti ég að vinna til
að fá einvígi og það tókst nú, þannig að það
var ákveðin heppni fólgin í þessu,“ segir
Hjörvar Steinn Grétarsson, nýkrýndur ung-
lingameistari Íslands í skák.
Hjörvar er 15 ára gamall en þetta er ekki í
fyrsta skipti sem hann nær glæstum árangri
á skákmóti því hann er margfaldur meistari
og hampaði m.a. þreföldum Norðurlanda-
meistaratitli í skólaskák og náði 6.-15. sæti á
Evrópumóti ungmenna í fyrra. Í þetta skiptið
segist hann þó ekki hafa átt von á sigri. „Ég
vissi að það voru margir sem stúderuðu mjög
mikið fyrir þetta mót og að það yrði mjög
sterkt. Ég var sjálfur númer tvö í styrkleika
yfir mótið svo ég bjóst þess vegna ekki við að
vinna þetta og sá sem var fyrir ofan mig, sem
ég vann síðan í einvígi um titilinn, var mjög
sterkur. Þannig að það þurfti bæði hæfileika
og heppni,“ segir Hjörvar, skiljanlega
ánægður með sigurinn.
„Þetta var ekki auðvelt, þarna voru flestir
þeir sterkustu á Íslandi, það vantaði kannski
2-3, svo þetta var mjög skemmtilegt mót.“
Hjörvar segist ekki hafa verið með sérstaka
æfingaáætlun fyrir mótið, en það hafi hjálpað
að vera kominn í jólafrí til að geta undirbúið
sig betur. „Ég æfði mig samt ekkert spes, að-
allega tvo andstæðinga sem voru sterkastir
og ég vissi að ég þyrfti að æfa mig undir.“
Framundan hjá Hjörvari er skákmótið
Reykjavík Open í mars og svo vonast hann til
að fara út að keppa í sumar, en kreppan hefur
sett sitt mark á Hjörvar eins og aðra. „Út af
þessu efnahagsástandi er erfitt að fara út. Á
seinasta ári fór ég til Moskvu í febrúar, það
hefði verið mjög gaman að fara þangað aftur
því það er með sterkustu mótum í heiminum.
En ég ætla bara að bíða þangað til í sumar.“
Það er kannski eins gott því Hjörvar hefur
nóg á sinni könnu næstu mánuði, enda klárar
hann 10. bekk í vor og ætlar svo áfram í nám.
„Það er planið að fara í Verzlunarskólann, á
viðskipta- og hagfræðisvið. Það tengist dálít-
ið skákinni og ég hef mjög gaman af því. “
Bæði hæfileikar og heppni
Hjörvar Steinn Grétarsson er unglingameistari Íslands í skák 2008
Státar af mörgum meistaratitlum en lætur samt námið ganga fyrir
Morgunblaðið/Ómar
Við skákborðið Hjörvar háði einvígi um tit-
ilinn eftir spennandi keppni. Hann segist
ekki hafa átt von á að vinna þetta mót.
Í HNOTSKURN
»Hjörvar hlaut 6 vinninga í 7 skák-um á mótinu, ásamt Guðmundi
Kjartanssyni. Hjörvar vann svo einvígi
þeirra á milli 1,5-0,5.
»Guðmundur Kjartansson var þvíannar, og Daði Ómarsson þriðji á
mótinu sem haldið var á sunnudag.
FRÉTTASKÝRING
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
MEÐAL þeirra leiða sem komið
hafa til greina til að auðvelda fjár-
mögnun íslenskra fyrirtækja er að
gefa erlendum eigendum skulda-
bréfa í íslenskum krónum, svo-
nefndra jöklabréfa, kost á að breyta
bréfunum í lán til fyrirtækja sem
hafa tekjur í erlendri mynt.
Er þá einkum vísað til orkufyr-
irtækjanna og álveranna, sem hafa
tekjur sínar aðallega í dollurum og
evrum. Samkvæmt upplýsingum
blaðsins hefur einnig komið til
greina að skipta á jöklabréfunum og
erlendum eignum lífeyrissjóðanna.
Eftir að stjórnvöld settu hömlur á
flutning gjaldeyris til og frá landinu
hafa eigendur jöklabréfanna, aðal-
lega erlendir fjárfestar, ekkert get-
að hreyft við þeim. Um 300-400
milljarða króna er að ræða. Á sama
tíma hafa lánalínur til íslenskra fyr-
irtækja erlendis lokast og aðgangur
að innlendu fjármagni er takmark-
aður. Með því að losa um jöklabréfin
með þessum hætti er það talið koma
báðum aðilum til góða og draga úr
áhættu þeirra, sér í lagi fyrirtækjum
sem hafa tekjur í erlendri mynt.
Myndu samningar þá ganga út á
að halda bréfunum að hluta hér
heima til ákveðins tíma, fyrirtækin
myndu svo standa skil á bréfunum í
erlendri mynt eftir tiltekinn tíma.
Ekki einföld leið
En þetta er þó ekki einföld leið og
myndi m.a. kalla á að Seðlabankinn
veitti undanþágu frá gjaldeyrislög-
unum. Þar á bæ hefur þetta verið til
skoðunar, án þess að ákvarðanir hafi
verið teknar, sem og innan ríkis-
bankanna. Eigendur jöklabréfanna
eru ennfremur fjölmargir og þyrfti
að afla samþykkis allra til að þessi
ráðstöfun bréfanna gengi í gegn.
Samkvæmt upplýsingum blaðsins er
talið ólíklegt að stjórnvöld hafi frum-
kvæði að þessu, það yrði að koma frá
fyrirtækjunum og eigendum bréf-
anna til samans.
Friðrik Sophusson, forstjóri
Landsvirkjunar, staðfesti í samtali
við Morgunblaðið að þessi leið hefði
komið til skoðunar en vildi að öðru
leyti ekki tjá sig um hana.
Jöklabréfum breytt í lán?
Íslensk fyrirtæki með tekjur í erlendri mynt sýna eigendum jöklabréfa áhuga
til að auðvelda fjármögnun Ekki auðveld leið og ekki að frumkvæði stjórnvalda
SAMKVÆMT frumvarpi að fjár-
hagsáætlun Reykjavíkurborgar fyr-
ir árið 2009, sem lagt var fram í
borgarstjórn á mánudag, er lagt til
að gjaldskrá fyrir máltíðir í grunn-
skólunum verði samræmd. Gjaldið
hefur til þessa verið mismunandi
eftir skólum, en yfirleitt á bilinu
250-300 krónur á dag.
Að sögn Kjartans Magnússonar,
formanns menntaráðs, stendur ekki
til að hækka gjaldið, þó að tilefni
hafi verið til þess vegna hækkunar
á aðföngum. Verður samræmt gjald
miðað við 250 krónur á dag, þá um
5.000 krónur á mánuði miðað við
fullt fæði. Systkinaafsláttur verður
veittur en aðeins greitt fyrir í mesta
lagi tvö börn í fjölskyldu. Vegna
mikilla hækkana á aðföngum kom
ekki til greina, að sögn Kjartans, að
bjóða upp á fríar skólamáltíðir í
ljósi efnahagsástandsins. Fylgst
verði vel með hvort beri á ein-
hverjum uppsögnum á matar-
áskrift.
bjb@mbl.is
Samræmt
gjald fyrir
skólamat
KÓPAVOGSBÆR og sveitarfélagið
Árborg hafa samið við Saga Capital
fjárfestingarbanka um sölu og um-
sjón á opnu skuldabréfaútboði á
innlendum verðbréfamarkaði að
því er segir í fréttatilkynningu frá
Saga Capital. Þegar er búið að selja
skuldabréf fyrir Kópavogsbæ fyrir
alls 2,4 milljarða en bærinn stefnir
að því að sækja sér alls þrjá millj-
arða að láni með útgáfunni. Skulda-
bréfaútboð Árborgar er þá upp á
einn milljarð króna og er þegar bú-
ið að selja 860 milljónir.
Hyggjast sveitarfélögin með
þessu tryggja sér fjármagn til
framkvæmda á næstu misserum og
mæta afborgunum eldri lána.
Skuldabréfa-
útboð ganga vel
BANKARÁÐ Landsbankans ákvað
á fundi sínum í vikunni að lækka
laun Elínar Sigfúsdóttur, banka-
stjóra Landsbankans, um 450.000
kr. Þetta staðfesti Elín í samtali við
fréttavef Morgunblaðsins í gær.
Elín er nú með 1.500 þúsund kr. í
mánaðarlaun, en var með 1.950
þúsund kr.
Auk þess hefur Elín bifreið til
umráða, sem er í eigu bankans.
Elín lækkar í
launum Hvað eru jöklabréf?
Jöklabréf nefnast á ensku „glacier
bonds“ og eru skuldabréf sem er-
lendir aðilar hafa gefið út í íslenskum
krónum. Útgáfa þeirra hófst í ágúst
2005 og yfirleitt var samið við ís-
lenskan banka um vaxta- og gjald-
miðilsskipti. Nema þessi bréf nú hátt
í 400 milljörðum króna.
Af hverju er þessi leið til skoð-
unar hjá fyrirtækjum?
Íslensk fyrirtæki eiga í miklum erf-
iðleikum með að fjármagna sig á er-
lendum mörkuðum og aðgengi að
fjármagni á Íslandi er takmarkað eft-
ir að bankarnir hrundu í byrjun októ-
ber síðastliðins.
Hvernig stendur fjármögnun fyr-
irtækja eins og Landsvirkjunar?
Fyrirtækið hefur að langmestu leyti
fjármagnað sig fyrir árið 2009 en
þarf fjármögnun fyrir 2010-2013.
S&S
MAGN bréfapósts nú fyrir jól er mjög svipað
því sem verið hefur undanfarin ár, að sögn
Ágústu Hrundar Steinarsdóttur, forstöðumanns
markaðs- og kynningardeildar Íslandspósts.
„Við sjáum álíka mikið magn af bréfapósti og
síðastliðin ár en það er einhver samdráttur í
pökkum.“
Þyngd þess pósts sem Íslandspóstur hefur
tekið við og sent í desember er um 1.200 tonn.
Nægur mannskapur hefur verið til að bera
út og að sögn Ágústu leggjast allir í fyrirtæk-
inu á eitt til að allt gangi sem best fyrir sig.
1.200 tonn flæða um íslensk pósthús
Morgunblaðið/Kristinn