Árdís - 01.01.1938, Síða 21
-------»•-»»------------------------»«-----------*'**-'***-!"<-III'-«■—!!<>••
ekki haft við neinn verulegan sannleika að styðjast, en markmiðið
auðsjáanlega að æsa upp hatur á milli þjóðanna.
T<*c£ tuttugu ár eru liðin síðan vopnahlé var samið og heims-
styrjöldinni lokið. í tuttugu ár hafa stjórnarráð hinna ýmsu þjóða
haft friðarmálið lil meðferðar og fólkið látið sér lítið varða um út-
komu þess, treyst í blindni stjórnunum að leiða það happsamlega
lil lykta. Hvað lengi ætli þjóðirnar híði el'tir friði frá þeim mönnum,
sem altaf hafa hrint þeim út i bardaga? Ef um varanlegan frið er
að ræða, verður hann að koma innan að frá fólkinu sjálfu, sem heild,
en ekki frá valdhöfunum aðeins.
Fyrsta sporið er að skygnast inn i okkar eigið hugarfar og sjá
hvað mikinn frið er þar að finna. Við getum ekki hoðað frið með
sannfæringarkrafti ef við eignm ekki einlæga friðarhugsjón i okkar
eigin sálum. Því á meðan hugsun okkar er sjúk af gremju og andúð
til náungans erum við að styðja stríðsandann i staðinn fyrir friðar-
hugsjónina. Næst er að reyna af alhug að hlynna að hræðralags-
hugsjóninni, því með því eina móti er von um varanlegan frið. Það
er einkennilegt hvað margir hugsa sem svo, að lílið lið sé að sér, en
það eru einmitt þeir, scm eru að reyna að skorast undan því að gera
skyldu sína í þessu máli.
Það er kominn tími til þess að þjóðirnar vakni og hristi af sér
aðgerðarleysis drungann, sem hefir lagst á þær. Ef hver einstakl-
ingur gerði sér það að skyldu að hlynna að og útbreiða bræðralags-
hngsjónina i sínu umdæmi er hægt að komast að raun um hvort
alheims friður er veruleiki eða aðeins draumur.
Skyldi þá friður á meðal jarðar búa vera aðeins fagur draumur,
sem aldrei fær að rætast? Eru þeir menn sem barist hafa fyrir frið-
arhugsjóninni einungis draumóramenn, sem sjá leiftur sinnar eigin
hugsjónar. Er bræðralagshugsjónin aðeins hilling, sem lokkar
mennina áfram en fjarlægist og hverfur svo sjónum þegar takmarkið
sýnist vera að nálgast. Getur það ekki átt eftir að koma fram, að
þeir menn, sem ímynda sér að hægt sé að halda áfram öld eftir öld
að s.ætta misklíð milli þjóðanna með því að drepa þúsundir manna,
séu draumóramennirnir, en hinir, sem sjá hilla undir friðarboða
bræðralagshugsjónarinnar séu þeir sem vaka. Guð gefi að svo sé.
19