Árdís - 01.01.1938, Síða 31
Grundtvig áleit að lýðháskólarnir ættu ekki að vera þjóðeign nc
undir þjóðstjórn, en hann trúði á fullkomið frelsi í skoðunum og
skilningi, og lét skólana sjálfa — það er að segja nemendurna —-
ráða því hvað lært væri sérstaklega og hvaða málefnum þeir vildu
iylgja.
Helenu Marsh l'arast orð á þessa leið um fyrirkomulag lýðhá-
skólanna og stefnu þeirra: “Þessir skólar eru einstakir að því er
fyrirkomulag snertir; nemendurnir búa i stofnuninni og eru þar
óháðir. Fræðslan er einstaklingsbundin að því, er kenslu snertir, því
lnin er sniðin eftir upplagi og hugarfari hvers um sig.
Samvinnufræðsla er æfinlega eitt af því, sem kent er; sama er
að segja um kvikfjárrækt, saumaskap, smíðar o. s. frv.
Tilgangurinn er þó ekki sá að þetta séu einungis verkfræði-
skólar. Það er stofnun lil þess sniðin að ella sanna menningu þjóð-
arinnar. Þess vegna er ])að að á meðal námsgreinanna er: bók-
mentir, hljómfræði og söngur, æfisögur merkra manna, listamálning,
o. s. frv.
Árangurinn af þessari mentun er auðsær í Danmörku; um hann
bera vott fullir skápar merkra bóka á heimilum bændanna, ennfrem-
ur tækni bændanna til þess að beita með fullum árangri öllum ný-
tízku vélum og verkfærum og hagnýta sér nútíma vísindi á allan
hátt í framleiðslu og vinnuaðferð.
Á mörgum dönskum bændabýlum getur að líta efnafræðisáhöld
til vísindalegra tilrauna og mælinga.
Síðast en ekki sízt eru skólar þessir siðferðislegir í eðli sínu, þvi
þeir leilast við að rótfcsta þá skoðun Grundtvigs að þjófírækni og
trú vcrfíi afí sameinnst i citi —• að því sann-danskari sem maðurinn
verði þvi sannkristnari sé hann.
Á lýðháskólunum er morgninum skift i þrjú tíinabil. Fyrst er
fyrirlestra tímabilið — hver fyrirlestur hefst með söng; aðallega
eru sungin trúarljóð eða sálmar, eða bæði sálmar og ættjarðarkvæði.
Fyrirleslurinn er venjulega uin eitthvert sögulegt efni og æfin-
lega þannig valið að það lyfti á flug til mannúðar hugsjóna og áhuga
til umbótastarfa. Persónusambandið milli kennara og nemenda er
lífið og sálin í þessum stofnunum.
Annað tímabilið fara fram líkamsæfingar, þar sem vinnuhertir
vöðvar eru mýklir á ný og stæltum taugum kend sveigja og ná-
kvæmni.
Danskar iþróttir og likamsæfingar eru nú orðnar heimsfrægar.
Þriðja tímabilinu er varið lil spurninga. Nemandinn spyr spurn-
inga, sem ekki einungis snerta nútíðarmálefni, heldur alt mögulegt,
sem inannlegum skilningi kemur við. Og kennarinn leitast við að
svara öllu.
29