Árdís - 01.01.1938, Síða 33
-----—-----------------—---—---------------------------------
Nemendurnir borga fyrir sig sjálfir og á því lifir stofnunin. Til
þess er ætlast að nemendurnir verði nokkurs konar leikfimistrúboð-
ar um alla Danmörk. Margir nemendur frá Vesturheimi sækja þenn-
an skóla árlega.
Alþýðulýðháskólinn i Helsingjaeyri er stofnaður af manni, sem
hét Peter Mannicke; var það i lok heimsstríðsins; gerði hann þetta
með aðstoð danskra, enskra og þýzkra vina sinna. Skólinn var
stofnaður i því skyni að mynda samband milli þjóðanna, sem þá
áttu í stríði, og heldur hann áfram því starfi að styrkja alþjóða
vináttu. Verkamenn og bændur frá ýmsum löndum dvelja á þess-
um skóla svo vikum eða jafnvel mánuðum skiftir. Betri skilningur,
r.ánari þekking og tryggari vinátta milli ýmsra þjóða er sýnilegur
andlegur ávöxtur al' starfi þessa skóla.
Það sézt glögt á því, sem sagt hefir verið að lýðháskólarnir upp-
fylla verksvið hinna skólanna eða fullkomna l)að, og gera sitl ítrasta
til þess að bæta úr þörfum bændafólksins.
Kenningar Grundtvigs voru til þess ætlaðar að skapa hinum
unga bændalýð samskonar sjálfsvirðingu og hið mentaða hærri
slétta fólk hafði; án þess þó að vekja óánægju með bændalífið og
þau kjör, sem því eru samfara.
Hin viturlega stefna stjórnarinnar í skiftingu lands og lán-
veitinga á talsverðan þátt í þessu. Af því hefir það leitt að fjölda-
mörg smáhýli hafa myndast, sem framleiða nægilegt lil lífsviður-
væris fyrir eigandann og skyldulið hans. Nú er svo komið að þessir
smáhændur eru einn aðal máttarstólpinn undir hinum miklu sam-
vinnufélögum, sem ráða yfir landsafurðum og framleiðslu i Dan-
mörku. Þetta hefði samt sem áður verið ómögulegt án undirbúnings
frá lýðháskólunum. Þar unnu þeir sitt mesta þrekvirki.
Þessir skólar hafa blátt áfram verið lifandi frumla, sem þjóð-
félagslífið hefir nærst og þroskast af. Með störfum þeirra hefir
kenning Grundtvigs um “Þjóðarsálina” fest djúpar rætur. Um það
her glöggast vitni danska þjóðin sjálf nú á timum, sem nýtur hærri
mentunar, meiri upplýsingar, fullkomnara l'relsis en l'lestar aðrar
þjóðir, og er auk þess — eða þess vegna — umhurðarlyndari, mann-
úðlegri, sainvinnuþýðari en allar aðrar þjóðir og veitir öllum borg-
urum sínum tækifæri til þess að lifa sönnu lífi og þroskast án nokk-
urs ótta cða skelfingar.
Áhrif Grundtvigs fara enn þann dag í dag sívaxandi og verður
þeirra jafnvel vart hcr í landi á vorum timum. Þetta lýsir sér í
vaxandi áhuga fyrir mentun hinna fullorðnu, sem viðurkent er nú
að sé öruggasta undirstaða undir fullkomnara og auðugra þjóðfélags-
lífi og hin mesta trvgging friðar og þjóðfélagsþrifa.
Allar stofnanir geta lagt hönd á plóginn i þessu verki. — Látuin
oss reyna að sýna meira af starfandi kristni með velferð og ham-
31