Árdís - 01.01.1938, Síða 41
SKÝRSLA FORSETA
Þakklæti er í hugura okkar yfir að hafa verið gel'ið tækifæri að
koma saman enn einu sinni — að mæta á hinu fjórtánda þingi þessa
ielagsskapar. Við þökkum fyrir þolinmæði Alföðurs við tilraunir
okkar til starfa á liðnum árum og biðjum um leiðsögn hans á kom-
andi tíð.
Það er okkur gleðiefni að á þessu þingi bætist við félagsskap
okkar eitt kvenfélag og nokkur hópur kvenna, sem ganga inn sem
einstaklingar þar sem þær tilheyra ekki félögum þeim, sem Banda-
lagið mynda. Vildi eg nota þetta tækifæri til að bjóða þeim konum
og stúlkum, sem unna því málefni, sem Bandalagið starfar að, að
gerast meðlimir þess. Um leið og eg ennþá endurtek boð okkar til
allra kvenfélaga, sem utan við standa, en starfa i sama anda, að
sameinast Bandalagi lúterskra kvenna.
Á þessu síðasta ári hafa hin sömu mál og áður verið tekin til
meðferðar af stjórnarnefnd Bandalagsins. Starfið í kristilegri
fræðslu hefir verið í höndum milliþinganefndar. Hefir Mrs.
Henrickson nú sem fyr gefið því mikið af tíma sinum og kröftum.
Verður lögð fram skýrsla frá þeirri nefnd.
Ársrit okkar hefir hepnast betur en nokkur okkar þorði að gera
sér vonir um. Það var á ])ingi hér í Langruth fvrir sjö árum að sú
ákvörðun var tekin að gefa út ársrit. Man eg eftir að þegar eg frétti
um það óttaðist eg að það yrði okkur ofurefli. Guðs blessun hefir
hvílt yfir því. Eg hygg að þeir sem ritið hafa lesið, hai'i haft heldur
gott at' þeim lestri. Kaupendur ])ess ljölga með hverju ári og nú
þetta siðasta ár má heita að hvert einasta eintak hafi selzt. Við sem
unnið höfum að útgáfu þess höfum verið með einum hug og hefir öll
samvinna verið hin ákjósanlegasta. Konur út um bygðir hafa sýnt
álniga við útbreiðslu ])ess. Og nú þegar önnur íslenzk blöð eru að
safna skuldum á Árdis allálitlegan sjóð. Að sá sjóður megi vaxa,
er okkur öllum áhugamál. Vildum við óska að Bandalagið ga*li siðar
meir notað hann til styrktar kristindómsstarfi.
Sanikepni i framsögn fer fram á þessu þingi eins og i fyrra, með
fieiri þátttakendum. Hvort sú samkepni heldur áfram næsta ár, er
í höndum þessa þings. Ekkert nema gott ætti að leiðn af þvi, ef rétt
er á haldið. Nokkur útgjöld eru því samfara; helir þvi verið ákveðið
að taka frjáls samskot á þeim fundi, sem sainkepnin fer fram, til
að láta upp i þann kostnað.
Á þessu síðasta ári hefir starfsnefnd Bandalagsins haft nýja
liugsjón með höndum, sem eg vildi leiða athygli ykkar að: Væri
39