Árdís - 01.01.1938, Side 44
••<>11—
Bæði Vigdís Sigurdson og Lilja Guttormsson hafa flutt til annara
skóla, en hafa hver í sínu lagi haldið áfram með kristindóms kenslu
og hafa bréfaviðskifti við nefnd þessa. Tvær góðar og fórnfúsar
stúlkur fyltu skörðin þar sem ofannefndar stúlkur voru og hafa
svnt framúrskarandi viljaþrek í þessu starfi. Eru þær Miss Stefanía
Eyford að Hayland og Miss Danielson að Siglunes. Talað hel'ir verið
um að stofna “correspondence course” i kristindómsfræðslu, en með
því sú aðferð útheimtir mikla vinnu, hefir hún ekki verið tekin upp.
önnur hugmynd hefir komið til orða — að stofna “training camp”
eða sumarskóla þar sem margir gætu komið saman að læra og leiða
og kenna kristin fræði. Þessi hugmynd verður að þroskast i hugum
þeirra, sem fórnfúsir eru. Hver veit nema opnist vegir og þessar
ýmsu hugmyndir rætist og verði kröftug meðul í þjónustu Drottins.
Eitt erum við fullvissar um: hvert það fræ, sem sáð er til góðs,
mun vor himneski laðir blessa og gefa ávöxt á sínum tíma.
Þjóðbjörg Hc.nrickson Flora Benson
JÁTNING ÞINGSINS
Vér, erindrekar, meðlimir og embættiskonur, samankomnar á
hinu fjórtánda þingi Bandalags lúterskra kvenna viljum á ný bindast
böndum kærleika og vináttu.
Af alhug viljum vér kappkosta að vinna að heill ]>ess málefnis,
sem félag vort vill hlynna að:
Að styðja að eflingu lúterskrar kristni i bygðum vorum.
Að vinna að sameiningu og samvinnu hinna ýmsu kvenfélaga
í Hinu ev. lút. kirkjufélagi..
Að stuðla að andlegum þroska kvenna í gegnum félagsstarf vort;
einnig að beita áhrifum til blessunar í uppeldismálum, friðarmálum
og bindindi.
Vér skuldbinduin oss til að vinna saman á þessu þingi með það
eitt í huga að finna sem æskilegasta úrlausn allra vorra áhugamála.
42