Árdís - 01.01.1938, Side 52
„4«—.--------—--------------------------------------------—
af dagskrárnefnd. Voru svo málin tekin samkvæmt þeirri röð.
I. —Slnrf i Icristilegri fræðslu: Mrs. Henrickson lagði fram itar-
lega skýrslu. Vmsar konur tóku til máls; var svo sett nefnd í málið.
II. —Bréfaviðskifti á inilli stjórnarnefndar og félaga: Eftir
nokkrar umræður var skrifara og forseta falið að auka samúð meðal
félaga og Bandalagsins með bréfaskriftuin, að svo miklu leyti sem
hægt væri.
III. —Samkcpni i framsögn: í umræðum kom fram áhugi fyr-
ir því málefni. Stjórnarnefnd faldar framkvæmdir til næsta þings.
IV. —Prógram fyrir fundi: Erindrekar frá ýmsum félögum
þökkuðu hið árlega prógram, sem B. L. K. hefir sent til félaga. Var
kvenfélagi Herðubreiðarsafnaðar falið að undirbúa prógram lyrir
komandi ár.
V. —Ársriiið Árdis: ítarleg, yfirskoðuð, skýrsla var lögð fram
af ráðskonu blaðsins, Mrs. Einnur Johnson. í sjóði ritsins eru nú
íi-2()7.31. óskaði hún el'tir að þingið ráðstafaði hvert breyting yrði
gerð mcð prentun ritsins. Var nefnd sett i málið. — Fundi slilið.
Fjórði fundur: Skemtifundur samkvæmt ofanprentaðri skrá.
Fimti fundnr: Mrs. B. A. Bjarnason stjórnaði bænagerð. Yfir-
skoðuð féhirðisskýrsla sýndi að i sjóði var $83.99. Haldið var áfram
mcð inál þingsins samkvæmt dagskrá.
VI. —Hannyrðasýning: Umræður sýndu mikinn áhuga að nú-
verandi fyrirkomulagi væri haldið áfram; var það samþykt.
VII. —Bindindi: Málið innleitt af Mrs. A. S. Bardal. Almennar
umræður sýndu áhuga þingsins l'yrir því málefni. Nefnd skipuð til
að leggja tillögu l'yrir þingið.
V.—Ársritið Árdis: Eftirfylgjandi nefndarálit var lagt fram;
1. Nefndin tjáir innilegasta þakklæti til ritstjóranna, Mrs. Ingi-
bjargar J. Olafson og Mrs. O. Stephensen, fyrir frábærlega vel unnið
starf.
2. Nefndin lýsir ánægju sinni yfir fjárhag Árdisar og þakkar
Mrs. Finnur Johnson fyrir hennar dugnað og fórnfýsi, sem hún
heíir sýnt frá byrjun þessa starl's.
3. Nefndin leggur til að ritið sé gefið út í líku formi og hefir
verið.
4. Nefndin leggur lil að játning þingsins sé birt í næsta riti
Árdísar.
5. Eftir nákvæma umhugsun finnur nefndin enga ástæðu til
að breyta nokkuð til með prentun ritsins.
Var nefndarálitið samþykt án breytinga, í einu hljóði. Sam-
kvæmt tilmælum Mrs. G. F. Jónasson var ákveðið að birta fundar-
gerning þingsins á ensku í blaðinu.
50