Árdís - 01.01.1964, Page 71

Árdís - 01.01.1964, Page 71
Ársrit Bandalags lúterskra kvenna 69 eins og drottningu sæmdi og fór að skifta sér af áhugamálum annara og brátt kom hún sér illa við marga sem hún vildi kynnast betur. Henni var vísað á brott úr Frakklandi. Eftir nokkurn tíma fór hún aftur til Rómaborgar. Kristína vék sér frá einu áhugamáli til annars, altaf að leita að einhverju, hamingju ef til vill. Einu sinni reyndi hún að verða kjörin drottning yfir Póllandi. Fjárhagur hennar minkaði og hún fór úr einni borg í aðra og var miður vel látin allstaðar. Að lokum settist hún að í Rómaborg og síðustu árin bjó hún þar. Hagur hennar fór batnandi og hún kunni vel við sig í sínu nýja heim- kynni. Er árin færðust yfir hana varð hún mun blíðari í fram- komu og þar afleiðandi, naut hún meiri vinsælda enn nokkru sinni fyrr. Hún tók að safna að sér ýmsum minjagripum, málverk- um, forngripum, handritum, ýmsum dýrmætum gersemum sem urðu að sögulegu gagni. Hún tók einnig að sér fátæka námsmenn og listamenn og hlúði að öllu bókmenntalegu meðal ítala. Áður en ævinni lauk varð hún mikilsvirt af samtíðarmönnum sínum, og hvíla bein hennar í Rómaborg, en eirlíkan af henni stendur í sjálfri Péturskirkjunni. Má með senni segja að tjón mótmælenda hafi orðið kaþólsk- um ágóði. Hún hlýddi röddu samvizku sinnar og gjörði það sem hún var sannfærð um að væri rétt. Hvað olli þessum sorglegu sinnaskiftum? Hver eða hvað á sökina? Var það móðurleysið? Var það einstæðingskenndin? Var það of mikið meðlæti? Var það of mikið mótlæti? Eða var það einber þvermóðska? Hvað finnst þér? Rom. 12, 12. Verið glaðir í voninni, þolinmóðir í þjáningunni, staðfastir í bæninni. Mín sál, því örugg sértu, og set á Guð þitt traust. Hann man þig, vís þess vertu, og verndar efalaust. Hann mun þig miskunn krýna, þú fæðist litla hríð; þér innan skamms mun skína úr skýjum sólin blíð.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Árdís

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árdís
https://timarit.is/publication/755

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.