Árdís - 01.01.1964, Qupperneq 79
Ársrit Bcmdalags lúterskra kvenna
77
Ingunn Marteinsson
1873 — 1964
„Trúfasta hreina, sæla sál,
Svifin til ljóssins stranda“
Nú er hinum langa og fagra
ævidegi þessarar góðu konu lokið.
Hún var kölluð heim þann 5. sept-
ember 1964 að heimili dóttur
hennar og tengdasonar, Dr. og
Mrs. A. L. Paine, Ninette, Mani-
toba. Þar hafði hún dvalið í ást-
ríkri umönnun hin síðari ár.
Við hlið manns síns, séra Run-
ólfs Marteinssonar starfaði hún í
nærfelt sextíu ár. í því starfi kom
í ljós gáfur hennar og tækni á
ýmsum sviðum. Hvar sem leið
þeirra lá var hún elskuð og virt
af öllum sem áttu samstarf með
henni. Umhyggja hennar og ástúð
sem eiginkona og móðir var áhrifarík og fögur.
Eftirlifandi ástvinir hennar eru: tveir synir, Jón Lárus, til heim-
ilis í Manning, B.C., Dr. Herman Brandur T., í Vancouver, B.C.
Tvær dætur, Mrs. W. E. Cain (Guðrún), Armstrong, B.C. og Mrs.
A. L. Paine (Theodis), Ninette, Manitoba. Einnig átta barnabörn
og sex barna-barnabörn. Umvafin af kærleika allra þessara ást-
vina voru hin síðustu æviár hennar inndæl og björt þó heilsan væri
á veikum fæti og lífsþróttur þverrandi.
Ingunn var ein af stofendum Bandalags Lúterskra Kvenna og
lífstíðar meðlimur þess hin síðari ár. Meðlimir þess félagsskapar
þakka af hjarta liðin ár og blessa minningu hennar.
Þegar heim var snúið frá legstað þessara miklu og góðu hjóna,
jarðarfarardaginn komu þessi orð skáldsins í hug: