Árdís - 01.01.1938, Síða 62
Jóns Bjarnasonar skóli, (>52 Homc St.—Talsími 31 208
Kæru vestur-íslenzku mæður:
Árdís er vestur-íslenzkt kvennablað, gott tímarit, og verðskuld-
ar mikla útbreiðslu. Eg vona því að eg nái til margra með þessu
sendibrél'i mínu. Á ælileiðinni heí'ir það orðið hlutverk mitt að fást
nokkuð við kenslu: í barnaskólum, í sunnudagaskólum, í Wesley
College, í Jóns Bjarnasonar skóla, kenna fermingarunglingum og
jafnvel leitast við að kenna í prédikunarstólnum. Oft hefi eg haft
mikið yndi af þessum kenslutilraunuin mínum, átt, meðal annars
dásamlegar stundir í flutningi orðsins í guðsþjónustunni. En að
því sleplu hefi eg haft einna mest yndi af fermingarflokkunum og
íslenzku stundunum. Sem stendur á eg engan kost á fermingar-
flokki; en eg er til þess búinn að kenna íslenzku öllum sem líklegir
eru til mín að koma. En því miður get eg ekki ferðast til allra
vestur-íslenzkra ungmenna lil að kenna þeim. Getið þið þá, góðu
k^nur, sagt mér hvernig eg á að kenna þeim íslenzku, ef þeir ekki
koma til mín? Ef þið sendið unglingana ykkar í Jóns Bjarnasonar
skóla, skal eg gera mitt bezta til að kenna þeim íslenzku. Viljið
þið nú ekki reyna skólann og reyna mig?
Hið 26. starfsár skólans hefst 15. sept. næstkomandi.
Við þráum og þurfum nemendur til að læra íslenzku.
Eg reiði mig á ykkar stuðning.
Með vinsemd, ykkar einlægur,
fí. Marteinsson, skólastjóri.
60