Morgunblaðið - 03.02.2009, Page 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 2009
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt-
ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
„ENGIN ný áform um álver verða
á dagskrá ríkisstjórnarinnar,“
segir í verkefnaskrá nýrrar rík-
isstjórnar Samfylkingar og
Vinstri grænna. Því hefur verið
velt upp hvernig ríkisstjórnin
skilgreini ný áform og hvernig
fyrirhuguð álver í Helguvík og á
Bakka falli inn í þessa fullyrð-
ingu.
„Það er búið að gera samning
um Helguvík sem reyndar bíður
staðfestingar í þinginu. Að mati
okkar tilheyrir hann verkum fyrri
ríkisstjórnar og verður því að öll-
um líkindum ekki breytt,“ segir
Kolbrún Halldórsdóttir, nýskip-
aður umhverfisráðherra. Hvað
varðar álver á Bakka segir Kol-
brún að þar liggi öll áform niðri.
„Alcoa hefur sjálft sagt að það sé
að draga úr framkvæmdum hjá
sér og þess vegna eru orku-
framleiðendurnir, sem þar hafa
verið inni í myndinni, í raun laus-
ir allra mála og geta þess vegna
leitað annarra kaupenda,“ segir
Kolbrún. „Viljayfirlýsingin sem
fyrri ríkisstjórn undirritaði við
Alcoa kemur til með að renna út í
haust og við ætlum ekki að gera
nýja samninga eða endurnýja
neitt í sambandi við Bakka.“
ylfa@mbl.is
Engin
áform um
Bakka
Eftir Ágúst Inga Jónsson
ai@mbl.is
Á FIMMTÁNDU hæðinni á Rjúpna-
sölum 14 í Kópavogi sýnir veðrið all-
ar sínar hliðar. Þar getur blásið svo
blokkin vaggar og stórar rúður
svigna og minna á risavaxnar sápu-
kúlur. Fegurðin getur verið svo
mikil „að helst gæti jafnast á við út-
sýnið af svölum himnaríkis“, eins og
Reynir Ásgeirsson, íbúi þar, orðaði
það í gær.
Reynir var bóndi á Svarfhóli í
Svínadal í Borgarfirði í um 30 ár og
bjó fyrst með kýr og kindur, en síð-
ar með naut, við skógrækt, laxveiði
og leigu á sumarbústöðum. Hann
segist hafa verið háður veðri í sín-
um búskap og því verið vanur að
fylgjast vel með því. Þar um slóðir
hafi norðaustanáttin getað verið
hressileg og þrálát.
Vildi setja upp veðurathug-
unarstöð á svölunum
Hann hafi haldið uppteknum
hætti við veðurathuganir eftir að
hann flutti í Rjúpnasalina fyrir rúm-
lega þremur árum. „Um jólin 2007
gerði hvert fárviðrið af öðru og í
framhaldi af því fór ég að velta fyrir
mér að setja upp litla veðurathug-
unarstöð á svölunum til að mæla
vindstyrk, mestu hviður, hitastig og
margt fleira“ segir Reynir.
„Ég hafði samband við Kópa-
vogsbæ til að fá ákveðnar upplýs-
ingar,“ segir Reynir „Meðal annars
fékk ég að vita að í minni augnhæð
væri ég í tæplega 149 metra yfir
sjávarmáli, en gólfflöturinn væri í
147 metrum. Í þessu samtali barst í
tal að ég væri að velta fyrir mér að
setja upp veðurathugunarstöð
þarna og viðmælandinn benti mér á
að tala við bæinn, sem hugsanlega
hefði áhuga á að setja stöðina upp
gegn því að fá að setja upplýsingar
á heimasíðu bæjarins,“ segir Reyn-
ir.
Kostnaður um 90 þúsund
– verkefninu hafnað
Hann lýsir síðan samskiptum við
embættismenn Kópavogsbæjar sem
í marga mánuði voru áhugasamir
um framkvæmdina, sem fyrir ári
var áætlað að kostaði um 90 þúsund
krónur. Svo leið og beið og að því
kom að erindinu var hafnað í byrjun
þessa árs m.a. í ljósi efnahags-
ástandsins.
Reynir er ekki ánægður með
lokasvar bæjarins og bendir á að
upphaflega hafi ekki verið hug-
myndin að leita til bæjarins, heldur
hafi bærinn nánast óskað eftir að
taka þátt í verkefninu. Hann er þó
ekki af baki dottinn og vinnur nú að
veðurathugunarstöðinni í samráði
við íbúa hússins.
Samkvæmt upplýsingum frá
Kópavogsbæ var kostnaður við veð-
urathugunarstöðina talinn meiri en
áætlað var í upphafi og ekki réttlæt-
anlegur í því ástandi sem er núna.
Auk þess sem upplýsingar um veður
og vinda á 14. hæð þóttu sértækar.
Hugmynd um veðurathugunarstöð á svölunum kom upp eftir fárviðrahrinu
Morgunblaðið/Heiddi
Eins og
útsýnið af
svölum
himnaríkis
Eftir Magnús Halldórsson
magnush@mbl.is
„MATIÐ á eignum og skuldum
bankanna er í ákveðnu ferli og unnið
er af fullum krafti. Það þarf að flýta
matinu sem allra mest svo nýju
bankarnir geti starfað af fullum
krafti og sinnt heimilum og fyrir-
tækjum eftir bestu mögulegu getu,“
segir Gylfi Magnússon viðskiptaráð-
herra. Hans fyrsti starfsdagur í við-
skiptaráðuneytinu var í gær.
Hann segir mikilvæga tíma vera
framundan er varðar endurupp-
byggingu bankakerfisins. „Í þessu
ferli öllu má ekki kasta til hönd-
unum því það eru miklir hagsmunir
í húfi, í tengslum við matið á eignum
og skuldum. Mistök geta orðið
óheyrilega dýr og kallað á umfangs-
mikil skaðabótamál á hendur ís-
lenska ríkinu. Það er því mikið í húfi
í þessu ferli öllu.“
Greint var frá því í Morgun-
blaðinu í síðustu viku að mat á eign-
um og skuldum gömlu og nýju bank-
anna gengi hægar en áætlanir
stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins gerðu ráð fyrir. Samkvæmt
þeim átti því að vera lokið í lok febr-
úar og 385 milljarðar í kjölfarið sett-
ir inn í bankana. Alþjóðlega ráðgjaf-
arfyrirtækið Oliver Wyman
samþykkir mat á eignum og skuld-
um áður en ríkið leggur bönkunum
til féð. Útlit er fyrir að þessari vinnu
ljúki ekki fyrr en í lok apríl. „Það er
mikilvægt að ljúka þessu svo að fyr-
irtækin geti fengið þá þjónustu sem
þau þurfa, mörg hver, sárlega á að
halda.“
Mikilvægt að ljúka mati hratt
Áhersla verður lögð á það í viðskiptaráðuneytinu að hraða sem mest mati á
eignum og skuldum bankanna Útlit fyrir að upphaflegar áætlanir standist ekki
Í HNOTSKURN
» Skilanefndir gömlu bank-anna, Glitnis, Landsbank-
ans og Kaupþings, hafa um-
sjón með eignum gömlu
bankanna og annast samskipti
við kröfuhafa.
» Steingrímur J. Sigfússonfjármálaráðherra fer með
málefni nýju ríkisbankanna
eftir að innlenda starfsemi
gömlu bankanna var tekin yfir
á grundvelli neyðarlaganna
frá 6. október í fyrra.
Gylfi
Magnússon
Steingrímur J.
Sigfússon
JÓHANNA Sig-
urðardóttir for-
sætisráðherra
hefur sett
Ragnhildi Arn-
ljótsdóttur í
embætti ráðu-
neytisstjóra í
forsætisráðu-
neytinu til 30.
apríl nk. Bolli
Þór Bollason
hefur fengið leyfi frá störfum
ráðuneytisstjóra á sama tímabili
og mun sinna sérverkefnum.
Ragnhildur er fædd 20. júní ár-
ið 1961. Hún útskrifaðist sem lög-
fræðingur frá lagadeild Háskóla
Íslands árið 1991. Ragnhildur
hefur gegnt embætti ráðuneyt-
isstjóra í félags- og trygginga-
málaráðuneytinu frá árinu 2004.
Hún starfaði áður í nefndadeild
Alþingis og í heilbrigðisráðuneyt-
inu og var fulltrúi félagsmála-
ráðuneytisins og heilbrigðisráðu-
neytisins í sendiráði Íslands í
Brussel.
Settur ráðu-
neytisstjóri
Ragnhildur
Arnljótsdóttir
FYRSTA verk nýs heilbrigðis-
ráðherra, Ögmundar Jónassonar,
var að fella úr gildi innritunargjöld
á sjúkrahús sem tóku gildi um ára-
mótin. „Þetta er í samræmi við þá
gagnrýni sem við höfum haldið
uppi í vetur, nefnilega að þarna sé
um að ræða gjöld sem séu með öllu
óviðunandi,“ segir ráðherrann.
Hann kveðst jafnframt vera að
skoða nýboðaðar skipulagsbreyt-
ingar í heilbrigðiskerfinu. „Það er
nú þannig að ýmsum kann að vera
erfitt að hnika til og um aðrar kann
að vera sátt. En þar sem mikið
ósætti ríkir vil ég skoða málin bet-
ur.“
Ögmundur kveðst ætla að hitta
bæjarstjórann í Hafnarfirði í vik-
unni vegna boðaðra breytinga á St.
Jósefsspítala og einnig þá sem
tengjast starfseminni þar.
ingibjorg@mbl.is
Innritunar-
gjöld afnumin
Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur
ylfa@mbl.is
RÁÐHERRARNIR níu sem létu af embætti á
sunnudaginn og aðstoðarmenn þeirra verða á
launum út febrúar. Síðasti starfsdagur ríkis-
stjórnar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar var
1. febrúar en samkvæmt reglum um biðlaun
reiknast þau frá fyrsta degi næsta mánaðar og
því hefst greiðsla biðlauna ekki fyrr en 1. mars.
Heildarmánaðarlaun þeirra ráðherra sem ekki
eiga lengur sæti í ríkisstjórn eru tæpar átta
milljónir og eru heildarlaun aðstoðarmanna
þeirra tæpar sjö milljónir. Samtals nema launa-
greiðslurnar fyrir febrúarmánuð u.þ.b. 14,5 millj-
ónum króna.
Allt stefndi í að ný ríkisstjórn tæki við völdum
sl. föstudag en framsóknarmenn töldu drög að
stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar „innihalds-
lítil“, svo vitnað sé í formanninn Sigmund Davíð
Gunnlaugsson, og því töfðust stjórnar-
myndunarviðræður. Flest lyklaskiptin urðu því
ekki fyrr en á sunnudagskvöldið.
Fyrrverandi forsætisráðherra, Geir H.
Haarde, og átta ráðherrar úr ríkisstjórn hans;
Árni Mathiesen, Björn Bjarnason, Björgvin G.
Sigurðsson, Einar K. Guðfinnsson, Guðlaugur
Þór Þórðarson, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Þórunn
Sveinbjarnardóttir auk aðstoðarmanna fá þannig
full laun út mánuðinn fyrir að hafa enn verið við
störf 1. febrúar. Að því búnu taka biðlaunin við í
sex mánuði en þau eru jafnhá ráðherralaun-
unum.
Biðlaun ráðherra reiknast frá fyrsta degi næsta mánaðar
Verða á launum út febrúarmánuð
Morgunblaðið/Golli
Umskipti Ráðherrarnir fyrrverandi og aðstoð-
armenn þeirra verða á launum út febrúar.