Morgunblaðið - 03.02.2009, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 03.02.2009, Qupperneq 6
SAMTALS liggur nú fyrir um 1 milljarður króna til hönnunarvinnu nýs háskólasjúkrahúss, það er 400 milljónir á fjárlögum þessa árs og um 600 milljónir á fjárlögum fyrri ára sem ekki hafa verið nýttar. Beiðni um heimild til þess að hefja hönnunar- vinnuna hefur legið í fjármálaráðuneytinu frá því í mars síðastliðnum þegar svokallaðri frumathug- un var lokið, að því er forstjóri Framkvæmda- sýslu ríkisins, Óskar Valdimarsson, greinir frá. „Sú beiðni hefur ekki fengið afgreiðslu enn. Að mínu mati þarf ríkisstjórnin að veita heimild fyrir svona stóru mannvirki,“ tekur Óskar fram. Á vef Landspítalans segir að verði heimild fyrir hönnunarsamkeppninni veitt fljótlega geti hönn- un nýja spítalans hafist af fullum krafti í sept- ember næstkomandi. Allt að 100 hönnuðir fá vinnu við lokahönnun spítalans og þörf er á 500 manns til viðbótar þegar framkvæmdir hefjast. Ákveðið hefur verið að íslenska verði tungumál samkeppninnar. „Þetta er tæknileg hindrun, sem er heimil samkvæmt útboðsreglum á Evrópska efnahagssvæðinu, til þess að halda samkeppninni innanlands,“ segir Óskar. Í samkeppninni um hönnun umhverfis sjúkra- hússins var þess krafist að eigið fé arkitektastofa væri 50 milljónir og veltan 500 milljónir. Nú er krafist lægri upphæða. „Krafan um hærri upphæðirnar var sett vegna þess að það var vitað að sú þekking sem við vor- um að leita að var ekki til staðar í landinu,“ tekur Óskar fram. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er nú gerð krafa um reynslu af hönnun stórra bygg- inga. „Almennt hafa menn bara hannað skemmur í þeirri stærð,“ segir einn heimildarmanna blaðs- ins. Óskar segir að ekki hafi verið gengið endanlega frá þeim kröfum. Hins vegar séu gerðar stífar kröfur um reynslu. „Við viljum ekki fá nýliða til þess að teikna háskólasjúkrahúsið.“ ingibjorg@mbl.is Milljarður til hönnunar á fjárlögum Morgunblaðið/ÞÖK Nýr spítali Beðið er eftir heimild yfirvalda til sam- keppni um hönnun á nýju háskólasjúkrahúsi. Í HNOTSKURN »Gert er ráð fyrir að alltað 5 hópar taki þátt í samkeppni um hönnun nýs háskólasjúkrahúss. »Greidd verður ákveðinupphæð fyrir hverja til- lögu. Sigurvegarinn fær svo sjálft verkefnið. Áætlað er að 100 hönnuðir fái vinnu við lokaverkefnið. »Áætlaður byggingakostn-aður er 70 milljarðar króna á verðlagi í febrúar 2009. Gert er ráð fyrir að húsgögn og tæki nýs Land- spítala kosti 12 milljarða. 6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 2009 UM aldir var vísað til íslenska hestsins sem þarf- asta þjónsins, en tölvan hefur nú án efa tekið við þeim kyndli í huga margra. Sumir treysta ekki síður á tölvuna til daglegra samskipta en sem vinnutæki, ekki síst þar sem krafa er gerð um þögn eins og á lesstofum háskólanna. Flestir nemar kannast líka við það að sitja þögulir og svipbrigðalausir við sama borð en eiga um leið í hrókasamræðum, með hjálp spjallforrita. Morgunblaðið/Árni Sæberg Þögul stund með þarfasta þjóninum Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is STARFAÐ verður eftir nýjum siða- reglum í stjórnarráðinu. Ekki ligg- ur fyrir hvernig nýir siðir verða innleiddir eða önnur stefnumið um jöfnuð og upplýsingar í verk- efnaskrá nýrrar ríkisstjórnar Sam- fylkingarinnar og Vinstrihreyfing- arinnar – græns framboðs. Í verkefnaskránni eru ákvæði um upplýsingagjöf, samráð og siða- reglur og lýst yfir áformum um undirbúning að breytingum á reglum við skipan dómara og end- urskoðun laga um ráðherraábyrgð. „Það hefur verið mjög áberandi í umræðunni að undanförnu, ekki síst í mótmælunum, að fólki finnst skorta á gegnsæi og mikið vanti á að veittar séu hreinskiptar upplýs- ingar um það hver vandinn raun- verulega sé og hvernig stjórnvöld ætli að bregðast við,“ segir Árni Þór Sigurðsson, alþingismaður VG, um forsendur þessara hugmynda. Hann vísar einnig til ummæla tals- manna fyrri ríkisstjórnar, ekki síst Sjálfstæðisflokksins, um að mistek- ist hafi að upplýsa þjóðina. Úr þessu ætlar nýja stjórnin að bæta með því að koma upplýs- ingum á framfæri við fjölmiðla, á netinu og á annan hátt. Liður í þessu er að auka samráð við sveit- arfélög, aðila vinnumarkaðarins og almenning í landinu. Árni Þór bendir á að sveitarstjórnirnar hafi kvartað undan því að hafa ekki fengið að vera með í ráðum, þótt þau séu hluti af hinu opinbera og mikilvæg við framkvæmd efnahags- aðgerða. Með samráði við almenning er meðal annars átt við samskipti við formleg og óformleg samtök fólks. Árni Þór nefnir í því sambandi samtök sem staðið hafa fyrir mót- mælum, umræðu um aukið lýðræði og ýmis hagsmunasamtök um bætt- an hag heimilanna. Nýja ríkisstjórnin ætlar að starfa samkvæmt nýjum siðareglum í stjórnarráðinu þar sem ráðherrar og æðstu embættismenn opinbera fjárhagslegar skuldbindingar og hagsmunatengsl. Á bak við þetta ákvæði liggur ekki að ráðherrum og embættismönnum verði óheimilt að eiga hluti í fyrirtækjum eða sitja í stjórnum þeirra, svo dæmi séu tekin, heldur að þessi tengsl og önnur séu sýnileg. Þingmenn VG birta á vef flokksins ítarlegar upp- lýsingar um tekjur sínar og hags- munatengsl og vissar upplýsingar um eigur sínar einnig – en ekki fjárhagslegar skuldbindingar. Árni Þór telur að þær gætu orðið fyr- irmynd siðareglna ríkisins en legg- ur áherslu á að setja þurfi form- legar og skýrar reglur. Þingið setji sér siðareglur Þess má geta að síðasta rík- isstjórn var með áform um að setja ráðherrum, alþingismönnum og stjórnsýslu ríkisins siðareglur. Mál- ið komst ekki af undirbúningsstigi. Vinna sem hafin var við gerð siðareglna á þinginu lognaðist út af. Ekki er reiknað með því að rík- isvaldið setji alþingismönnum siða- reglur, eðlilegt er talið að Alþingi geri það sjálft, en reikna má með að flokkarnir sem að stjórninni standa beiti sér í málinu á Alþingi. Nýir siðir innleiddir  Eftir er að útfæra ýmis ákvæði um jöfnuð og upplýsingar sem boðuð eru í verk- efnaskrá nýrrar ríkisstjórnar  Ætlunin er að halda þjóðinni upplýstri um málin Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurð- ardóttur hyggst hefja vinnu við endurskoðun laga um ráðherra- ábyrgð. Þótt lög um ráðherraábyrgð sem byggjast á ákvæðum stjórn- arskrár hafi verið til í 45 ár hefur ekki reynt á ákvæði þeirra enda málsmeðferð snúin. Gengið er út frá því að Alþingi kæri ráðherra fyrir embættisrekstur þeirra og landsdómur dæmi þau mál. Þegar ákvæði um þessa vinnu er sett í verkefnaáætlun rík- isstjórnarinnar er bankahrunið mönnum ofarlega í huga og um- ræða um ábyrgð ráðherra á því sem gert var og ekki gert. Hug- myndin mun vera að reyna að skerpa á málsmeðferðinni, hvern- ig látið er reyna á ábyrgð ráð- herra. Skerpt á meðferð mála vegna ráðherraábyrgðar GEIR H. Haarde, formaður Sjálf- stæðisflokksins, gekkst í gær undir speglunar- aðgerð á há- skólasjúkrahús- inu í Amsterdam þar sem fjarlægt var illkynja mein í vélinda. Að- gerðin heppnaðist vel að mati lækna og er Geir væntanlegur heim til starfa síðar í vikunni. Ráðgert er að hann fari í fram- haldsmeðferð eftir u.þ.b. tvo mán- uði. Geir gekkst undir aðgerð Geir H. Haarde AKUREYRSKA sjónvarpsstöðin N4 er hætt útsendingum. Stöðin mun reyndar áfram sýna fundi bæjar- stjórnar Akureyr- ar að kvöldi fund- ardags, annan hvern þriðjudag, en skipulögð dag- skrá heyrir að öðru leyti sögunni til. Þorvaldur Jónsson, eigandi og framkvæmdastjóri, segir því miður ekki grundvöll fyrir rekstrinum. Hann segist hafa reynt að fá fleiri að rekstrinum, en ýmis fengið neit- un eða ekki svar. Tæpt ár er síðan N4 hóf stafræn- ar útsendingar á landsvísu. Auk þess að reka sjónvarpsstöð- ina hefur fyrirtækið gefið út sjón- varpsdagskrá, N4 Dagskrá Norður- lands, og sú útgáfa verður óbreytt. N4 hættir útsendingum JÓHANNA Sigurðardóttir, nýr for- sætisráðherra, mun flytja stefnu- ræðu sína á Alþingi að kvöldi mið- vikudags með umræðum í kjölfarið. Samkvæmt upphaflegri starfs- áætlun þingsins, sem ekki er í gildi lengur, var gert ráð fyrir að þing- fundur færi ekki fram fyrr en á fimmtudag. Honum var hinsvegar flýtt um einn dag og hefst þess í stað klukkan 13.30 á morgun. Þá verður gengið frá kjöri nýs forseta Alþingis, varaforseta og fulltrúa í nefndir þingsins. Síðan verður gert hlé á þingstörfum klukkan 19.50 þegar stefnuræðan er flutt. Tilkynnt hefur verið að Guðbjartur Hannesson, þingmaður Samfylkingar í Norðvesturkjör- dæmi, verði forseti Alþingis. Guð- bjartur, sem tekur við forsetaemb- ættinu af Sturlu Böðvarssyni, þingmanni Sjálfstæðisflokks, hefur setið á þingi frá árinu 2007. Þess má geta að þingfundur morgundagsins verður einungis sá fimmti í röðinni síðan fyrir jól. Stefnuræðan á miðvikudag

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.